20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (700)
92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég á örfá orð vantöluð við hæstv. viðskrh.
Ég vil byrja á að lýsa yfir að ég er honum algjörlega sammála um að það var ljótt af hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni að taka til máls, því að svo höllum fæti stóð ríkisstj. fyrir í þessum umr.
Hæstv. ráðh. sagði að hann væri búinn að svara fsp. minni um breytingu á gjaldmiðlinum og hann hefði engu við það að bæta. Ég verð nú að segja að þetta er nokkuð mikil kokhreysti. Þessi sami hæstv. ráðh. er búinn að gefa Alþ. yfirlýsingu um að gjaldmiðilsbreytingunni verði ekki frestað vegna erfiðleika á seðlaveltu, sem leiðir af því að það hafi ekki verið gerðar nægar ráðstafanir til þess að láta prenta gömlu seðlana. Það er upplýst í þessu máli, að seðlaveltan er mest í desember, og það er kappnóg af seðlum og mynt í desember. Það er upplýst, að seðlaveltan minnkar árlega næstu mánuði eftir desember. Og svo segir hæstv. ráðh: „Ég hef engu við að bæta.“ Hann þarf ekki að gera neina grein fyrir því sem hann er að halda fram í þessu máli. Hvað halda þessir ráðherrar eiginlega að þeir séu? Eru þeir hættir að reikna með að Alþingi Íslendinga sé til? Dettur ráðherrum í hug að það sé hægt að víkjast undan að gefa eðlilegar upplýsingar og skýringar á þeim fullyrðingum sem þeir eru að gefa Alþingi? Nei, það er ekki komið svo enn þá.