20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (711)
106. mál, efnahagsráðstafanir
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Þetta eru vissulega merkilegar umr. fyrir margra hluta sakir. Þær eru merkilegar vegna þess, að hér er verið að reyna að hafa uppi á efnahagsstefnu ríkisstj. og í umr. um það telur forsrh. Íslands ástæðu til og æskilegt að flytja okkur fræðilegar bollaleggingar um fyrirspurnir. Þetta eru merkilegar umr. fyrir okkur stjórnarandstöðuþingmenn. Þær eru merkilegar fyrir stuðningsmenn þessarar ríkisstj., sem bundu sjálfsagt einhverjar vonir við hana í upphafi. Og síðast en ekki síst eru þetta vissulega merkilegar umr. fyrir þjóðina alla. Hér hefur verið spurt um það, hvort fyrir muni liggja, þegar Alþýðusambandsþing kemur saman, tillögur ríkisstj., hvort þær verði kynntar þar. Svarið er nei. Annarra spurninga er spurt, og svarið við þeim er ýmist útúrsnúningar eða æpandi þögn. Og hver er svo niðurstaðan af þessu öllu saman? Hún er auðvitað sú sem raunar hefur tengi verið vituð, að innan ríkisstj. er engin samstaða í efnahagsmálum, — og það sem meira er, að núv. ríkisstj. hefur enga stefnu í efnahagsmálum. Það þarf í rauninni í þessu sambandi einskis frekar að spyrja, nema þá helst hvenær ríkisstj. hafi hugsað sér að gefast upp. Þess getur varla verið langt að bíða.