20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (713)

106. mál, efnahagsráðstafanir

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Aðeins örfá orð um dagskrá í tilefni af því sem hæstv. forsrh. sagði e.t.v. ekki að ástæðulausu um fsp. almennt.

Ég vil byrja á því að telja það vera grundvallartilgang fsp. hér á Alþ. að kalla fram upplýsingar — ekki fyrir þm. sjálfa, heldur fá upplýsingar á opinberum vettvangi sem þm. telja að þjóðin þurfi að fá. Auðvitað getum við persónulega spurt ráðh. Ég tel tvímælalaust að þær fsp., sem við höfum verið að tala um þrjár í röð, séu allar þinglegar. Þær eru allar um einföld efni og má svara þeim í tiltölulega stuttu máli. Meira að segja var hægt að svara einni þeirra með já eða nei.

Hitt er svo annað mál, að þar sem fsp. eru tíðkaðar erlendis snýst mestur vandinn um það, hvers konar framhaldsfyrirspurnir þm. eru leyfðar. Hæstv. forsrh. nefndi breska þingið sem fyrirmynd, en þar situr forseti í stól sínum og úrskurðar jafnóðum hvort framhaldsfyrirspurn, sem þm. kemur með, er leyfileg eða ekki. Þá dæmir hann eftir því, hvort honum finnst eðlilegt að heimta að ráðh. svari framhaldsfyrirspurn án þess að hafa þann undirbúningstíma sem honum er annars ætlaður í þingsköpum.

Núverandi fyrirkomulag á fsp. var samþ. 1972. Það er tiltölulega nýtt. Fyrir þann tíma voru engin tímatakmörk, sérstaklega ekki hjá ráðh., og þá gerðist það ærið oft að ráðh., sem voru ánægðir með frammistöðu sína í einhverju máli og vildu koma því á framfæri, fengu þm. til að leggja fram fsp., svo stóðu þeir upp og fluttu hálftíma fyrirlestur. Þetta var afnumið og ræðutími beggja skorinn niður 1972. Ég var í þeirri nefnd sem starfaði í nokkur ár að undirbúningi þess máls og var 1. flm. að frv. þegar það var lagt fram og endanlega afgreitt 1972.

Eitt af meginatriðunum, sem rætt var í sambandi við breytinguna 1972, var hvort ætti að takmarka umr. um fsp. við fyrirspyrjanda og ráðh., sem svarar, og leyfa engum öðrum að tala um þá fsp. Þetta var alvarlega rætt og margir voru þeirrar skoðunar, að svona ætti þetta að vera. En hitt varð ofan á, að takmarka málfrelsi ekki svo mikið. Þess vegna var ákveðinn tveggja mínútna ræðutími fyrir alla þm. og þar með var umræðum boðið heim.

Ég er sammála hv. 1. þm. Reykv. um það, að ef þessar umr. hefðu ekki orðið í fsp.-tíma, þá hefðu þær orðið utan dagskrár, og ef ekki utan dagskrár, þá á einhvern annan hátt, vegna þess að öll þing þurfa að geta komið að stórpólitískum umr. sem ekki geta beðið eðlis síns vegna. Vill þing hafa einhverjar leiðir til að slíkar umr. geti farið fram. Þess vegna sagði ég fyrr í þessum umr., að það væri tilgangslaust fyrir ríkisstj. að fara undan í flæmingi því að hún yrði að svara þeim spurningum sem liggja hér til grundvallar.