20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (723)

106. mál, efnahagsráðstafanir

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það er alvarleg þversögn í þessum málflutningi stjórnarandstöðunnar sem gerir það að verkum að allar þær ræður, sem þeir hafa flutt hér í dag, eru markleysa. Þeir segja á annan veg að ríkisstj. sé gersamlega tillögulaus í efnahagsmálum, hafi engar tillögur, engar hugmyndir og ekki neitt. Á hinn bóginn koma þeir hér, frambjóðendur til forsetakjörs á Alþýðusambandsþingi og aðrir fulltrúar á Alþýðusambandsþingi, og æsa sig yfir því, að ríkisstj. skuli ekki greina frá því sem hún sé þegar búin að ákveða. Vill ekki hv. stjórnarandstaða gera það upp við sig í eitt skipti fyrir öll, hvort hún ætlar að halda því fram, að ríkisstj. sé stefnulaus í efnahagsmálum, eða hvort hún ætlar að halda því fram, að ríkisstj. hafi svo harða og klára stefnu í efnahagsmálum, að hún þori ekki að sýna hana á Alþýðusambandsþingi? (HBI: Hvar eru þínar tillögur?) Ég kem að því, góði, bíddu rólegur. — Það er ekki hægt að halda þessu hvoru tveggja fram nema menn vilji bara leika sér að því að forheimska sjálfa sig og þjóðina. Allur málflutningur stjórnarandstöðunnar í dag hefur gengið út á þetta tvennt.

Svo spyr hv. Halldór Blöndal um till. okkar. Ég skal segja Halldóri Blöndal það, að ég hef ekki haft kynni nema af tveimur ríkisstj., en vinnubrögðin í þessari ríkisstj. að stefnumótun í efnahagsmálum eru hátíð hjá þeim vitleysisgangi sem tíðkaðist þegar Alþfl. var í ríkisstj., eru hátíð hjá þeim seinagangi sem tíðkaðist þegar Geir Hallgrímsson var forsrh. Hvernig voru vinnubrögðin þá? Jú, Geir Hallgrímsson skipaði nefnd til þess að kanna verðbólguvandann. Hún starfaði í tvö ár og skilaði svo till. sem ríkisstj. gat ekki farið eftir. Hver voru vinnubrögðin í Alþfl.? Þau voru að lýsa hvað eftir annað yfir, utan stjórnar, utan þingsala sem hér á þingi, hvað hann vildi gera, þannig að það var ekki nokkur starfsfriður innan ríkisstj.

Ástæðan fyrir því, að ég skaut svona vinsamlega að hæstv. viðskrh. hér í dag, er að mér hefur fundist upp á síðkastið að hann væri að falla í þær freistingar að taka upp nýja stílinn í Alþfl. (PS: Var það laust skot?) Já, það var laust skot. Þess vegna vil ég segja það, að samstarfið í efnahagsnefnd ríkisstj. var gott. Hún skilaði góðum till. og það er þegar farið að framkvæma sumar þeirra. (HBI: Hvaða tillögur er farið að framkvæma?) Hv. þm. Halldór Blöndal fylgist lítið með því, hve skammt duga yfirlýsingar þm. Sjálfstfl. Í umr. um fjárl. belgdi Matthías Á. Mathiesen sig yfir því, að 1. des. mundi vísitalan verða 14%, og lagði síðan í öllum sínum málflutningi út af því. En hver var raunin? Hún var miklu minni. (GeirH: Hvað var hún?) Ef hv. þm. Geir Hallgrímsson hefur ekki fylgst með því, hver vísitalan er, þá vænti ég þess, að svokallaður forystumaður stjórnarandstöðunnar kynni sér efnahagsmálin betur áður en hann kemur næst hér annað hvort til þess að tala eða grípa fram í. (GeirH: Hvað er miklu minna?) Það er miklu minna? (GeirH: En 14%). 10% eru miklu minna en 14%, hv. þm. Geir Hallgrímsson. (HBI: Þú ert búinn að missa málið.) Nei, nei, langt frá því. Það er rétt sem Benedikt Gröndal og hæstv. forsrh. hafa sagt hér, að það væri vissulega tilefni til þess að sýna fram á þversagnirnar í málflutningi stjórnarandstöðunnar hér, bæði Sjálfstfl. og Alþfl.

Ég ætla að ljúka ræðu minni, herra forseti, með því að segja tvennt:

Hv. stjórnarandstaða þarf ekki að óttast að vinnubrögðin í þessari ríkisstj., a.m.k. eins og ég þekki hana, muni skapa hér sundrungu í efnahagslífi landsins. Þvert á móti, þessi ríkisstj. hefur sýnt það nú þegar í vinnubrögðum sínum í efnahagsmálum að hún hefur markað alger þáttaskil, bæði frá ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar og frá þeirri ríkisstj. sem Alþfl. tók þátt í. Ég vil að lokum spyrja hv. þm. Karvel Pálmason: Þorir hann á Alþýðusambandsþingi að leggja fram kjaraskerðingartillögur Alþfl. frá því í sept. 1978, kjaraskerðingartillögur Alþfl. frá því í des. 1978, kjaraskerðingartillögur Alþfl. frá því í apríl 1979, kjaraskerðingartillögur Alþfl. frá því í sept. 1979 og kjaraskerðingartillögur Alþfl. frá því í jan. 1980, og láta greiða atkv. um þær á Alþýðusambandsþinginu? (Gripið fram í: Ef þær verða betri en ykkar).