20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (726)
106. mál, efnahagsráðstafanir
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil varpa til hæstv. félmrh. þeirri spurningu, hvort hann vilji beita sér fyrir því í sambandi við efnahagsaðgerðirnar að kaupmáttur sólstöðusamninganna náist.
Varðandi ummæli hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar vil ég segja að það var athyglisvert, að þessi hv. þm. gerði annað tveggja að varpa fram staðhæfingum, sem hann gerði enga tilraun til að standa við, eins og þeirri, að sumar till. efnahagsnefndarinnar væru þegar komnar til framkvæmda, án þess að hann treysti sér að nefna eitt einasta dæmi um það. (Gripið fram í.) Það hefur engin tillaga efnahagsmálanefndarinnar komið til framkvæmda þar, heldur hefur einungis verið frestað að framkvæma lög. Engin jákvæð aðgerð hefur átt sér stað, það er bara venjulegt aðgerðaleysi ríkisstj. og við skulum ekki tala um það. Það hefur engin tillaga efnahagsnefndarinnar komið til framkvæmda, ekki ein einasta, svo að kunnugt sé, svo að þarna fór hv. þm. með algert fleipur eins og hann er vanur þegar sá gállinn er á honum. Á hinn bóginn horfði hann alltaf til baka. Við vorum, bæði ég og hv. þm. Pétur Sigurðsson, sem flutti þessa fsp. og ég fsp sem fyrr var til umr. í dag, að reyna að beina umr. fram á við, hvað við tæki. Við þm. getum haldið langar ræður hér um fortíðina og deilt um það sem liðið er. En spurningin er um þá ríkisstj. sem nú situr: Hvað ætlar hún að gera? Af hverju telur hún að hún hafi rétt til að sitja þarna? Ég verð að segja að það kom mér ekkert á óvart þótt hæstv. forsrh. sliti setningar úr samhengi, það er altítt. Hann reynir gjarnan með þvílíkum brögðum að verja eigin málefnaskort. En þegar hann er spurður mjög ótt og títt og nákvæmt kemur í ljós að lokum að málstaðurinn er bágur. Hann hefur ekkert fram að færa. Hann myndaði ríkisstj. um ekki neitt. Hann þóttist bjarga sæmd Alþingis, en smánin er núna fyrir framan okkur í hverju horni, hverjum krók, í rjáfrinu og niðri í kjallara, ef undan eru skildir starfsmenn þingsins og stjórnarandstaðan.