20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (732)

106. mál, efnahagsráðstafanir

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera örstutta aths. og vekja athygli þingheims á því, að hv. þm. Karvel Pálmason frambjóðandi í forsetakjöri til Alþýðusambands Íslands, þorði ekki að svara þeim spurningum sem ég bar fram áðan. Hann þorði ekki að svara því, hvort hann væri maður til að leggja kjaraskerðingartillögur Alþfl. frá öllum þeim dagsetningum síðan í ágúst 1978 fram í jan. 1980 sem ég minnti á áðan. Karvel Pálmason þorir ekki að leggja feril Alþfl. og stefnu hans fyrir næsta Alþýðusambandsþing. Það er stóra niðurstaða þessarar umr., að þessi frambjóðandi til forsetakjörs á Alþýðusambandsþingi þorir ekki að standa við stefnu eigin flokks.