20.11.1980
Sameinað þing: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (741)

91. mál, nýting silungastofna

Flm. (Vigfús Jónsson):

Herra forseti. Ég er hér flm. að till. til þál. um aukna nýtingu íslenskra silungastofna. Meðflm. mínir eru hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, Sverrir Hermannsson, Pétur Sigurðsson og Halldór Blöndal. Þáltill. er á þskj. nr. 101 og svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna ástand íslensku silungastofnanna og beita sér fyrir stóraukinni nýtingu þeirra í öllum þeim vötnum, sem hæf þykja til slíks, hvort heldur er í byggðum eða óbyggðum.“

Allir ættu að geta verið sammála um það að nýta auðlindir lands og sjávar svo sem best má vera. Eitt af því, sem til auðlinda telst hér á landi og út undan hefur orðið hvað nýtingu snertir, eru hin fjölmörgu fiskivötn bæði í byggðum og óbyggðum. 80 þessara vatna eru yfir einn ferkm. að stærð, og þau, sem fisk fóstra, munu skipta hundruðum. Ég hef það fyrir satt, að á Melrakkasléttu einni saman séu fiskivötn svo tugum skipti. Eftir því sem menn vita best er ársframleiðslugeta íslenskra vatna frá 15–40 kg af fiski á hektara.

Samkv. því má ætla að samanlögð ársframleiðslugeta þeirra kunni að nema þúsundum tonna. Daginn í dag eru velflest stöðuvötn á Íslandi sáralítið eða ekkert nýtt. Eftir því sem ég kemst næst er Mývatn e.t.v. eina vatnið á landinu þar sem silungastofnarnir eru fullnýttir, a.m.k. ef um er að ræða stærri vötn. Í þeirri fortíð, er fæðuöflun Íslendinga var mjög erfið og fólk barðist við hungurvofuna, var sóknin í fiskivötnin mun meiri og silungastofnunum víða haldið í hæfilegri stærð, þannig að fiskstofninn næði eðlilegum þroska. En eftir því sem fæðuöflun fólks varð auðveldari, eftir því minnkaði sóknin í vötnin og offjölgun silungastofnanna kom til, með þeim afleiðingum að nú er fjöldi vatna ofsetinn og silungurinn í þeim svo rýr að hann er óhæfur til manneldis.

Það er engu líkara en íslensku silungastofnarnir og fiskivötnin hafi horfið í skuggann fyrir hinni árangursríku laxarækt í fallvötnunum. En menn skyldu athuga — það, að fleira er matur en feitt kjöt, og það er álit margra, að íslensku stöðuvötnin búi yfir engu minni verðmætum en fallvötnin hvað fisk snertir ef þeim væri sómi sýndur.

Með tilliti til þess, að ljóst er að hinar hefðbundnu búgreinar hér á landi munu ekki veita mörg ný atvinnutækifæri á næstu árum, og einnig þess, að ef eðlileg búseta fólks á að halda áfram í sveitunum, hlýtur að vera skynsamlegt að hefjast handa um mun betri nýtingu veiðivatnanna. Slík nýting hlýtur að bjóða mörg atvinnutækifæri og mikla verðmætasköpun í formi fjölbreyttrar matvælaframleiðslu, bæði fyrir innlenda og er lenda markaði. En því nefni ég erlenda markaði að ég veit til þess, að íslensk fyrirtæki, sem fást við matvælaiðnað, hafa áhuga á íslenskum silungi og telja sig geta selt hann erlendis og sum munu meira að segja hafa gert það. Þar á ég einkum við Þingvallamurtuna. Hún hefur verið flutt út niðursoðin og þótt góð markaðsvara.

Íslenskir silungastofnar eru auðvitað mjög misjafnir að gæðum, og hygg ég að þar valdi mestu um offjölgunin. Fækkun í stofnunum hlýtur því að verða mikið verkefni og því mikilvægt að í því sambandi verði upp teknar svo skjótvirkar og ódýrar veiðiaðferðir sem við verður komið. En það er frumatriðið að kanna ástand stofnanna og haga aðgerðum samkv. því, og kemur þá fleira til greina en fækkun, t.d. kynbætur og stofnskipti í vötnum. Einnig má trúlega bæta lífsskilyrði sumra vatna án mikils tilkostnaðar, e.t.v. flytja silung í fiskilaus vötn. Það hefur sums staðar verið gert hér á landi og hefur tekist.

En hér kemur fleira til greina en matvælaframleiðsla því að skilyrði til sportveiði í vötnunum ættu að geta orðið næsta takmarkalítil ef rétt er á haldið. Til þess að svo megi verða þarf þar margt að gera, t.d. að stórauka kynningar- og leiðbeiningarstarfsemi í sambandi við vötnin og leggja vegi, byggja sumarhús og koma upp bátum með fullkomnum öryggisútbúnaði. Í raun og veru er búnaður báta, sem notaðir eru á veiðivötnum hér á Íslandi, alveg sérstakt mál og þyrfti að taka það miklu fastari tökum. Slysatíðni á íslenskum vötnum hefur jafnan verið ótrúlega mikil og hún verður vart minnkuð með öðru en bættum öryggisbúnaði bátanna og leiðbeiningastarfsemi.

Á undanförnum árum hefur réttilega mjög verið rætt um nauðsyn þess að auka fjölbreytni í íslenskum landbúnaði. Tel ég nýtingu veiðivatnanna einn álitlegasta kostinn hvað það snertir og mundu margir aðrir en bændur njóta góðs af því. Hefur m.a. verið bent á að trúlegt er að slík nýting mundi tengjast mjög matvælaiðnaði og eins ferðamannaþjónustunni sem er orðin nokkuð mikil í landinu eða mikilvæg, má segja. En til þess að sú nýting, sem hér um ræðir, megi takast, þarf, eins og áður er að vikið, stórauknar rannsóknir og leiðbeiningaþjónustu og mætti í því sambandi taka með sjógöngusilunga því að einnig þeir hafa verið hornreka hvað fiskrækt snertir. Veiðimálastofnunin hefur að vísu sýnt þessu máli áhuga, en hana skortir bæði tæki og mannafla til þess að skjótur árangur geti náðst. Mér virðist hér vænlegast til árangurs að styrkja þær stofnanir sem forustu geta veitt í rannsóknum og stefnumörkun í fiskræktarmálum, auk þess sem eyða þarf því furðulega áhugaleysi og tómlæti sem ríkt hefur um þessi mál.

Ég vil vekja athygli á því, að þær búgreinar, sem við stundum í landinu, eru mjög misfljótar til svörunar. Við skulum taka t.d. ef við förum að rækta skóg. Þó að ég sé ekki að hafna skógrækt er það staðreynd, að hún svarar ekki tilkostnaði fyrr en eftir áratugi. Aftur á móti ef við tökum fiskivötn til ræktunar án fullrar nýtingar, þá svarar það tiltölulega mjög fljótt, e.t.v. eftir 2–3 ár, og að því leyti til tel ég að þessi kostur sé mjög aðgengilegur. Við Íslendingar stöndum nú frammi fyrir því, að stofnar sjávarfiska eru líklega ofnýttir meira og minna, og þá dreg ég í efa að við höfum efni á því að nýta ekki betur þessar auðlindir.

Herra forseti. Ég vona að ég hafi sannfært menn um það, að hér sé um gott mál að ræða, það fái gott fylgi, og ég læt því máli mínu lokið.