20.11.1980
Sameinað þing: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (744)
91. mál, nýting silungastofna
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil ekki lata hjá líða að lýsa ánægju minni með þessa till. sem hefur komið fram um aukna nýtingu silungastofna. Þetta er auðvitað eitt af þeim stóru málum sem við hefðum átt fyrir löngu að huga að.
Ég er búinn að tala oft hér á þessu háa Alþingi fyrir því, að íslenskir bændur notuðu veiðivötn sín og reyndu að rækta fisk í þeim vötnum sem dauð eru og létu grisja þau vötn sem ofsetin eru, vegna þess að staðreyndin er að það eru fleiri vötn á Íslandi sem eru ofsetin en þau sem eru dauð. Ég minnist þess sérstaklega vegna þess að fyrsta málið, sem ég flutti hér á Alþ., var um sérstakt gjald á veiðileyfi útlendinga, að sú till. var grundvölluð m.a. á því, að þetta gjald rynni í Fiskræktarsjóð sem síðan leysti úr þeim brýna peningavanda sem allir eru í sem stunda fiskrækt á Íslandi. Þá man ég eftir því, að hér á hinu háa Alþingi voru ýmsir sem fundu þessari till. flest til foráttu og töldu hreina skrílmennsku af undirrituðum að leggja fram till. af þessu tagi, þetta væri aðför að bændastéttinni. Ég er mjög ánægður og hrífst af því að hugur t.d. framsóknarmanna í þessu máli skuli hafa breyst í þessa veru. Ég er viss um að hv. þm., vinur minn Stefán Valgeirsson, er orðinn sammála mér um að okkur ber auðvitað að virkja þá tekjumöguleika sem við höfum til þess að efla Fiskræktarsjóð, sem er tómur sjóður og okkur til vansæmdar að hafa ekki reynt að bæta þar úr.
Það er svo með alla fiskrækt að hún kostar gífurlega fjármuni. Nú stendur yfir endurskoðun á lax- og silungsveiðilögunum, og ég á sæti í þeirri nefnd, sem endurskoðar þau lög. Þar hefur umtalsverður hluti af starfinu farið í að kanna hvernig efla megi Fiskræktarsjóð.
Ég get vel tekið undir það, að það er þarft verk og gott að auka nýtingu silungastofna. En við þurfum líka að finna fjárhagsgrundvöll, og ég hefði gjarnan viljað að á þessu þingi hefði verið endurflutt það frv. til l. sem þeir hv. þm. Stefán Jónsson, minnir mig, og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson fluttu um stórkostlega eflingu Fiskræktarsjóðs. Fyrr en sá sjóður er kominn í tag og grundvöllur fenginn fyrir almennri fiskrækt í landinu er sáralítið hægt að gera.
Menn greinir nokkuð á um hagkvæmni þess að rækta upp veiðivötn. Sjálfur get ég tekið dæmi af mér persónulega. Ég hef í 8 ár ræktað upp lítið veiðivatn austur á Rangárvöllum. Þar settum við í bleikjuseiði úr Kollafirði fyrir 8 árum, en þetta var svokallað dautt vatn. Þetta hefur gengið það vel að upp úr þessu vatni tek ég nú vor og haust umtalsvert magn af fallegri bleikju sem er 4–5 og allt upp í 7 pund.
Þetta er slíkt ævintýri að með ólíkindum er. Það er m.a. af þeirri ástæðu, að ég hef alltaf Litið svo á að bændur ættu að líta í kringum sig, kanna hliðarbúgreinar og þá einkum fiskbúskap, eins og það hefur verið nefnt.
En sem sagt, þessi till. er af hinu góða og ég er sannfærður um að sá dagur rennur upp, að Íslendingar eigi í veiðivötnum sínum, ám og tækjum einhvern mesta fjársjóð sem til er. Það er m.a. þess vegna sem ég og fleiri þm. höfum á vissan hátt gagnrýnt afstöðu embættismanna og stjórnvalda á hverjum tíma til þeirrar ræktunar sem farið hefur fram hjá Skúla Pálssyni í Laxalóni. Þar hefur hann verið að basla við að rækta regnbogasilungsstofn. Regnbogasilungur er með þeim ósköpum fæddur, að hann vex hraðar en nokkur silungategund sem við vitum um. Þetta er mjög góður átfiskur. Danir hafa milljarðatekjur á hverju ári af framleiðslu á regnbogasilungi sem seldur er niðursoðinn.
Nú er staðan í því máli sú, að um hér um bil aldarfjórðungsskeið hefur Skúli Pálsson verið að basla við að koma þessum stofni upp. Þetta er talinn af helstu vísindamönnum á sviði fiskræktar eini alheilbrigði regnbogasilungsstofninn í heiminum í dag, enda fær Skúli pantanir á hrognum fyrir tugi millj. kr. á hverju ári.
Ég get vel skilið þá embættismenn sem óttast að fisksjúkdómar kunni að hafa hlaupið í þennan stofn án þess að þar hafi fundist nokkuð kvikt, nokkur veira, nokkur baktería. En ég er þeirrar skoðunar, að í sambandi við till. af þessu tagi mætti líta til regnbogasilungsins t.d. sem af andstæðingum Skúla hefur stundum verið kallaður sporðminkur til þess að renna stoðum undir það, að þarna væri hættuleg skepna á ferðum.
Ég held að þessum þætti í fiskræktarmálum á Íslandi ætti að gefa meiri gaum, og auðvitað mun tíminn leiða það í ljós, að Skúli Pálsson fór rétta leið. Það má vera að það hafi verið einhver stirfni í samskiptum hans við embættismenn, því miður, og harma ég það mjög. En allt, sem lýtur að málum af þessu tagi, rennir stoðum undir búskap í þessu landi, rennir stoðum undir það jafnvægi sem við sækjumst flestir eftir að verði í búskap Íslendinga. Þetta er ekkert minna atriði í raun og veru heldur en ræktun á laxveiðiám yfirleitt, og stangveiðimenn, t.d. erlendir, sækjast ekkert síður eftir góðum silungavötnum og silungsám heldur en góðum laxveiðiám.
Ég er þess vegna áfram um að þessi till. fái afgreiðslu sem fyrst og allt sem stefnir í þessa átt, og þó að hér sé ekki á ferðinni nein afgerandi lausn, nein kraftaverkasmíð, þá er þetta allt í áttina. Þetta er eitt af þeim sporum sem við erum að stíga smátt og smátt eftir því sem skilningur eykst á þessu stóra máli.