20.11.1980
Sameinað þing: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (747)

101. mál, verslunarþjónusta í dreifbýli

Flm. (Guðmundur Gíslason):

Herra forseti. Ég hef hér lagt fram till. til þál. á þskj. 112 um bætt skilyrði til verslunarþjónustu í dreifbýli. Höfuðtilgangur till. er að benda á nokkra þætti sem valda erfiðleikum í umræddum rekstri. Ég vænti þess, að með þessu verði flýtt fyrir lagfæringum.

Till. hljóðar svo með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að vinna að bættri verslunarþjónustu í dreifbýli, m.a. með eftirgreindum hætti:

1. Skipaútgerð ríkisins verði efld á grundvelli áætlana útgerðarinnar.

2. Heimilað verði að selja eldri vörubirgðir verslana á endurkaupsverði.

3. Unnið verði að jöfnun orku-, síma- og flutningskostnaðar.

4. Byggðasjóði verði heimilt að lána til verslunarbygginga í dreifbýli með sama hætti og til annarra atvinnuvega.“

Eins og segir í reglugerð eru ýmis ytri skilyrði verslunar í dreifbýli ekki sambærileg við það sem gerist á höfuðborgarsvæðinu eða nærri stórum innflutningshöfnum. Bent hefur verið á nauðsyn þess að efla starfsemi Skipaútgerðar ríkisins, enda er ljóst að flutningar á sjó eru tvímælalaust hagkvæmastir þar sem um miklar vegalengdir er að ræða.

Á umliðnum árum hafa verið unnar nokkrar athuganir á þessum málum. Má í því sambandi nefna starf milliþinganefndar um verðjöfnun á vöruflutningum, sem skilaði áliti í okt. 1976, og einnig á starf strandferðanefndar, sem skipuð var af samgrh. 12. júní 1978, en hún hefur unnið að tillögugerð um endurbætur á rekstri Skipaútgerðarinnar. Í áfangaskýrslu nefndarinnar frá því í ágúst 1980 eru tilgreindar helstu niðurstöður og till., með leyfi forseta:

„Sú undirbúningsvinna, sem fram hefur farið, hefur leitt til þess, að nú eru að mestu tilbúnar teikningar og lýsing af skipum, sem uppfylla þær kröfur sem gera þarf til nýrra strandferðaskipa um tæknilegan búnað og hagkvæmni í rekstri. Rekstraráætlun hefur verið gerð fyrir útgerðina miðað við að þrjú skip verði smíðuð og lagt í aðra þá fjárfestingu sem þarf að fylgja, svo sem vöruskemmu í Reykjavík og tækjabúnað.

Niðurstaða rekstraráætlunar er að frá árinu 1982 þurfi ekki rekstrarframlag frá ríkissjóði til rekstrarins að frátöldum fjármagnskostnaði, þ.e. afborgun og vöxtum, og frá árinu 1985 muni reksturinn bera sig í heild að fjármagnskostnaði meðtöldum og jafnvel skila hagnaði.

Mun mikilvægari telur nefndin þó þann árangur sem fyrirsjáanlegur er í bættri þjónustu við landsmenn og minni þungaumferð á vegum. Í rekstraráætluninni er reiknað með að flutningsgjöld haldist óbreytt miðað við annað verðlag frá því sem það hlutfall var í apríl á þessu ári eða þar um bil. Ljóst er þó að kostnaður við upp- og útskipun mun lækka um um það bil helming. Einnig má reikna með að afslættir frá höfnum úti á landi aukist og heildarlækkun flutningskostnaðar geti orðið á bilinu 10–30%, sem kæmi neytendum til góða. Að sjálfsögðu er lækkunin mun meiri þegar flutningar færast af bílum á skip.

Arðsemi fjárfestingarinnar í heild hefur verið metin. Er þá miðað við forsendur rekstraráætlunarinnar. Annars vegar eru metin áhrif á rekstur fyrirtækisins sjálfs og hins vegar þjóðfélagslegur ávinningur miðað við fast verðtag, þannig að þeir vextir, sem reiknast, eru sambærilegir við vexti af verðtryggðum lánum.

Fyrirtækisleg arðsemi, afkastavextir, reiknast um 20%, og sé tillit tekið til óvissu má fullyrða að hún sé á bilinu 15–25%. Þjóðfélagsleg arðsemi svarar á sama hátt til 40–50% afkastavaxta.

Tillaga:

1. Á grundvelli framanritaðs er gerð sú tillaga, að smíðuð verði þrjú skip af þeirri gerð, sem rætt er um í skýrslu þessari, fyrir Skipaútgerð ríkisins.

2. Ákvörðun um smíðina verði þó bundin því, að samkomulag náist við hlutaðeigandi stéttarfélög um mönnun og vinnutilhögun um borð.

3. Tveir möguleikar koma til greina varðandi útboðstilhögun: a) Skipin verði boðin út á alþjóðlegum markaði. b) Samið verði í samráði við iðnrn. við innlenda stöð eða stöðvar um smíði án útboðs.

Sé ákveðinn vilji fyrir hendi að nýta fjárfestingu þessa til innlendrar iðnþróunar virðist síðari kosturinn betri. Ekki er þó hér unnt að fullyrða, hvaða áhrif þessir valkostir hafa á kostnað við smíðina.

Í framhaldi af þessari till. verður þó að taka fram, að aðrir þættir í uppbyggingu útgerðarinnar verða að fylgja ef sá árangur á að nást sem hér er lýst. Einnig þarf að tryggja að aðstaða í höfnum úti á landi verði fullnægjandi og í samræmi við þá möguleika, sem skipin bjóða upp á.“

Þannig liggja nú fyrir till. um bættan tækjakost Skipaútgerðarinnar, og er fullkomin ástæða til þess að skora á stjórnvöld að vinna ötullega að framgangi þeirra mála og stuðla með því að lækkun flutningskostnaðar og aukinni ferðatíðni, sem kemur íbúum landsbyggðarinnar mjög til góða.

Til frekari jöfnunar á flutningskostnaði almennt eru ábendingar áðurnefndrar mþn. um verðjöfnun vöruflutninga athyglisverðar, þar sem rætt er um beitingu skattkerfisins í því skyni. Í till. nefndarinnar segir, með leyfiforseta:

„Skattkerfinu verði breytt í því skyni, að jafna aðstöðumun vegna mismunandi framfærslukostnaðar. Eitt aðalmarkmið sérhvers skattkerfis er að stefna að skattajöfnuði. Skattajöfnuður er að vísu ekki áþreifanlegt eða mælanlegt hugtak, sem hægt er að skilgreina í eitt skipti fyrir öll. Hins vegar er almennt viðurkennt að skattajöfnuður feli í sér að fólk, sem býr við sömu aðstæður, eigi að greiða sambærilega skatta og gjaldþol manna sé þýðingarmikið varðandi skattlagningu, þannig að mismunandi gjaldþol eigi að leiða til mismunandi skatta.“

Hugmynd nefndarinnar um beitingu tekjuskattsálagningar virðist mun aðgengilegri en stofnun verðjöfnunarsjóðs í þessu sambandi. Þó má reiknað með að aukið eftirlit með búsetuskráningu fólks þyrfti að koma til svo komið verði í veg fyrir misnotkun.

Takist að hrinda í framkvæmd nefndum breytingum á rekstri flutninga og jöfnun þess kostnaðar stuðlar það óhjákvæmilega nokkuð að því að bæta úr þeim erfiðleikum sem verslun í dreifbýli býr við vegna mikilla vörubirgða sem til eru komnar af stopulum samgöngum. Engu að síður er nauðsyn að heimila versluninni að selja vörubirgðir á endurkaupsverði. Er þetta að því leyti mikilsverðara fyrir verslun í dreifbýli, að þar er veltuhraði birgða oftast mjög lítill og er því útsöluverð vöru oft lægra en endurkaupsverð sömu vöru í næstu sendingum. Af þessu skapast mikil rýrnun þess fjármagns, sem bundið er í birgðum, og hætt er við að það geti riðið starfseminni að fullu í slíkri verðbólgu sem nú er.

Við endurmat vörubirgða yrði miðað við ákveðinn verðlagsgrundvöll á hverjum tíma, verðlagsgrunn, sem viðurkenndur og uppgefinn yrði af opinberum aðilum. Ekki er ástæða til að ætla að endurmat birgða orsaki aukinn mismun í vöruverði þar sem notuð yrði ákveðin viðmiðun við hverja breytingu.

Nokkrir stórir kostnaðarliðir í rekstri verslunar eru mjög mismunandi eftir staðsetningu í landinu. Má í því sambandi nefna orku- og símakostnað. Á undanförnum árum hefur verið unnið að jöfnun símakostnaðar, en þar þarf enn að bæta úr. Er þar um að ræða stórt hagsmunamál fyrir verslun í dreifbýli því mest öll vöruútvegun á sér stað símleiðis.

Jafnframt samræmingu símgjalda þarf að vinna að gagngerum endurbótum á símakerfinu, því þó víða sé orðið sjálfvirkt samband við þéttbýlli staði eru bilanir tíðar, álag og sambandsleysi varanlegt.

Orkukostnaður er mjög misjafn eftir aðstæðum. Bæði er þar um að ræða mismun á raforkutöxtum og einnig mismunandi möguleika á hagkvæmum hitagjöfum. Verslun í dreifbýli býr víða við þann kost að verða að nota rafmagn eða olíu til upphitunar, þar sem ekki er völ á hitagjöfum svo sem hitaveitu. Óþarft er að fjölyrða um óhagkvæmni olíunotkunar, enda öllum ljós eins og verðþróun þeirrar vöru er. Hins vegar er ástæða til að benda á það misræmi sem fyrir er í landinu á verði raforku. Er knýjandi að þar verði bætt úr hið bráðasta.

Til uppbyggingar verslunarhúsa hefur atvinnuvegurinn verið hornreka hvað varðar útvegun lánsfjármagns. A.m.k. hefur ekki verið um sambærilega möguleika að ræða við það sem aðrir atvinnuvegir hafa átt kost á.

Byggðasjóður hefur haft það hlutverk að jafna búsetuskilyrði í landinu með ráðstöfun lánsfjár. Þrátt fyrir það hefur Byggðasjóður ekki lánað til verslunarhúsa í dreifbýli. Reglur Byggðasjóðs miðast í flestum tilfellum við það að veita viðbótarlán er nemi 10–25% af framkvæmdakostnaði þegar stofnlánasjóðir hafa samþ. lánshæfni framkvæmdar. Til að leiðrétta þann mismun, sem nú ríkir í þessum efnum, þarf því að breyta reglum sjóðsins þannig að heimilt verði að lána til byggingar verslunarhúsa í dreifbýli. Verði í því sambandi gerð úttekt á ytri skilyrðum verslunarinnar til ákvörðunar um mörk þau er skapi lánshæfni.

Það er von mín að þau atriði, sem ég hef með till. þessari vakið athygli á, verði tekin til rækilegrar skoðunar og endurbætur gerðar.

Herra forseti. Að umr. lokinni legg ég til, að till. verði vísað til atvmn.