21.10.1980
Sameinað þing: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

340. mál, fæðispeningar sjómanna

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir svarið, þó að ég verði að segja að ég er ekkert sérlega hrifinn af innihaldi þess. Ég skal ekkert um það dæma, hvort hægt hefði verið að hraða málinu meir en raun ber vitni, en ég dreg mjög í efa það sem fram kom í hans máli, að forustumönnum sjómanna á Vestfjörðum hafi verið kunnugt um gang þessa máls til þessa dags. Ég dreg það mjög í efa af viðtölum við forustumenn sjómanna þar. En ég skal ekki segja meira um það.

Ef ég hef tekið rétt eftir, þá var í þessari grg. frá formanni stjórnar Aflatryggingasjóðs gert ráð fyrir að gildistaka ætti sér stað 1. des. n.k. Eins og fram kom áðan var eftir því óskað sérstaklega, að gildistaka væntanlegra breytinga á reglugerð eða lögum ætti sér stað 1. júní s.l., og undirstrikað af staðgengli hæstv. sjútvrh. hér í lok maí að við það yrði staðið. Ég vil því í áframhaldi af þessum upplýsingum, hafi ég tekið rétt eftir að það væri till. stjórnar Aflatryggingasjóðs að þetta tæki ekki gildi fyrr en 1. des. n.k., spyrja hæstv. ráðh.: Verður ekki staðið við það loforð sem búið er að gefa af hans hálfu, að breyting á reglugerðinni eða lögunum, hvort sem heldur verður eða hvort tveggja, verði miðuð við 1. júní og gildi frá þeim tíma?