24.11.1980
Efri deild: 17. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (758)
17. mál, olíugjald til fiskiskipa
Frsm. 1. minni hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Ég er ekki maður til að fara að standa í neinu karpi hér. Mér hefur líklega orðið það mismæli að segja að frsm. hafi talað um að það ætti að fara á ríkisframfæri, en líklega sagði hann „eftir öðrum leiðum“, og þá þóttist ég vita hvaða aðrar leiðir það væru. Tímann hef ég ekki með mér svo að ég get ekki rætt þetta frekar við ráðh. að þessu leyti.
En mig langar að spyrja ráðh.: Hvað ætlar hann að flytja inn marga togara út á Júlíus Geirmundsson sem Kaupfélag Suðurnesja fékk á sínum tíma?