24.11.1980
Neðri deild: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (788)
65. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Ég vil láta þess getið í tilefni af flutningi þessa frv., að skömmu eftir að álagningu var lokið á s.l. sumri í öllum skattumdæmum skipaði ég nefnd til að fjalla sérstaklega um álagningu skatta á bændur. Þessi nefnd var þannig skipuð, að í henni var einn fulltrúi tilnefndur af Stéttarsambandi bænda, einn fulltrúi tilnefndur af fjmrn., og er það Guðmundur Þorsteinsson bóndi á Skálpastöðum, en ríkisskattstjóri er formaður nefndarinnar. Stéttarsamband bænda mun hafa tilnefnt formann sinn, Gunnar Guðbjartsson, í nefndina.
Það liggur ljóst fyrir, að það er einkum tvennt sem bændur hafa gagnrýnt í sambandi við núverandi tekjuskattskerfi: Í fyrsta lagi það, að lögin gera ráð fyrir að heimilt sé að áætla mönnum tekjur. Það er ríkisskattstjóri sem hefur með þá áætlun að gera. Í öðru lagi er það tekjufærsla vegna skulda. Mönnum eru reiknaðar tekjur af óverðtryggðum eða lítt verðtryggðum skuldum. Að sjálfsögðu eru þessi ákvæði skattalaganna í fullu samræmi við það sem gerist með aðra skattgreiðendur og aðra sem líkt stendur á um. Þannig hefur ríkisskattstjóri heimild til þess að áætla tekjur ýmissa hópa, og á það sérstaklega við og er framkvæmt í þeim tilvikum þegar ekki eru taldar liggja fyrir nægilegar upplýsingar um raunverulegar tekjur manna.
Það er nokkuð ljóst, að hvað bændur varðar er hægt að finna ýmis dæmi þess, að illa settir, fátækir bændur hafa fengið töluvert mikla skatta vegna beitingar tveggja ákvæða. Sérstaklega á það við þegar þessum ákvæðum lýstur saman þannig að þau eiga bæði við viðkomandi skattþegn. Þá geta komið út nokkuð óvenjuleg og lítt skýranleg dæmi um miklar skattgreiðslur manns sem litlar tekjur hefur. Er því fyllsta ástæða til að athuga hvernig þessar reglur eru og hvernig þær hafa komið út í framkvæmd. Af þeirri ástæðu var nefndin skipuð. Hún hefur hins vegar enn ekki lokið störfum, hún hefur ekki skilað neinum tillögum frá sér eða neinni niðurstöðu um rannsókn sína og ég hef þess vegna ekki séð ástæðu til að gefa neina yfirlýsingu af minni hálfu um það, hver yrði stefna fjmrn. í þessum málum.
Það er ljóst, að það er ákveðnum vanda undirorpið að undanskilja sérstaklega einhverja ákveðna stétt manna. Á hinn bóginn er ljóst að þörf er á því að ríkisskattstjóri hafi heimild til að áætla á menn tekjur þar sem um er að ræða hátekjumenn sem nokkuð örugglega hafa verulegar tekjur almennt, en hafa hins vegar öll tök á því sjálfir að gefa upp þær tekjur sem þeim sýnist. En spurningin er auðvitað sú, hvort ekki er eftir öðrum leiðum hægt að hafa fullt eftirlit með því, hverjar eru raunverulegar tekjur bænda, hvort ekki sé hægt að komast að því með því að gæta að viðskiptum þeirra við söluaðila. Í öllu falli er ljóst og óumdeilanlegt, að þessi ákvæði hafa komið mjög illa út þegar um er að ræða ýmsa fátæka og illa stæða bændur og er því ljóst að einhverjar ráðstafanir verður að gera í þessum efnum.
Stundum hefur verið sagt: Málið er í athugun. Svo er nú. Ég vænti þess, að þeirri athugun fari senn að ljúka og þegar henni lýkur verði mótuð skýr stefna í þessu máli af hálfu ríkisstj. og þingmeirihluta.