25.11.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

53. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég verð nú að segja það, að mér finnst með ólíkindum að hæstv. ráðh., sem svarar hér fsp. með þeim hætti sem þingheimur hefur hlýtt á og hlustar á andsvör þm., bæði hv. fyrirspyrjanda og hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar, skuli sitja í sæti sínu án þess að gefa skýringar eða svara þessum hv. þm. Það er ljóst af máli þeirra þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Matthíasar Bjarnasonar, að þingheimi hefur verið gerð óvirðing. En mér finnst hæstv. ráðh. bæta við þá vanvirðu, sem þingheimi er sýnd, með því að gefa ekki nánari skýringar á hvernig á því stendur, að hann lætur sér aðgerðaleysi ríkisstj. og bankastofnana lynda. Það er talað mikið um að vald sé dregið úr hendi Alþingis og í hendur embættismanna, í hendur kerfisins, að fulltrúasamkoma þjóðarinnar ráði ekki stefnu og því síður framkvæmd. Í þessu máli hefur þingið markað stefnu og ákveðið framkvæmd, en kerfið hefur ekki látið sér lynda hvað þingið hefur mælt fyrir um. Spurningin í þessu máli er alvarlegri en efnisatriði fsp. í raun og veru segir til um. Spurningin er: Láta alþm. sér það lynda, að svona sé farið með viljayfirlýsingu löggjafarsamkomu þjóðarinnar? Alþm. geta ekki kvartað yfir því, að virðing Alþingis sé ekki mikil meðal almennings í landinu, ef þeir láta sér slíkt lynda.