25.11.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í B-deild Alþingistíðinda. (800)

53. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Aðeins í upphafi máls míns vil ég geta mér þess til, að þeir hv. þm. Sjálfstfl. þoti á þessum misserum óvirðingu fremur af hálfu annarra en núv. ríkisstj., en þar er náttúrlega um að ræða innanflokksmál Sjálfstfl. Þetta atriði breytir ekki því, að við höfðum nokkra ástæðu til þess að ætla að þáltill. — sem eins og um hefur verið getið fól í sér fyrirmæli til ríkisstj. um fyrirkomulag á þessum greiðslum til bænda — næði fram að ganga. Ég get verið alveg sammáta því, að rétt sé að hafa samráð við bændur um framkvæmdaratriði. En ég staðhæfi að það hafi ekki þurft að skipa sérstaka nefnd af hálfu bændasamtakanna í þessu sambandi. Það lá fyrir vilji Alþingis um þetta mál, og ég hef á sama hátt og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson innt eftir því fróða menn í bankakerfinu, hvort annmarkar séu á því fyrirkomulagi, að hver bóndi, sem það vill, tilgreini reikningsnúmer eða að hann fái ávísun senda heim til sín og fái greiðslu með þeim hætti, og svörin hafa verið ákaflega skýr: Á þessu er enginn annmarki.

Ég get ekki tekið undir þá hugmynd, sem ég ímynda mér að vísu að hafi ekki verið gjörhugsuð hjá hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni, að Alþingi álykti um þetta mál öðru sinni. Ég held að hv. Alþingi geti ekki verið að jagast við bankakerfið um svona mál. Viljinn hefur verið látinn í ljós og þá er að framkvæma hann.