25.11.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (808)
351. mál, greiðsla útflutningsbóta og niðurgreiðslna til bænda
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Ég lýsti hér yfir áðan, að ég hefði áhuga á því að athuga þessar leiðir frekar en gert hefur verið, og þarf ekki að ítreka það. Ég vil hins vegar taka það fram út af ræðu hv. síðasta ræðumanns, að hann sagði að við þá athugun, sem gerð hefði verið á árinu 1979, þá minnti sig að ef tekinn væri um helmingur af niðurgreiðslufé og greitt til bænda með þessari aðferð, þá kæmi það örlítið óhagstæðar út heldur en eftir þeirri aðferð sem nú gildir.
Nú vill svo til, að bæði hv. þm. Steinþór Gestsson og hv. fyrirspyrjandi Eyjólfur Konráð Jónsson hafa flutt till. til þál. um stefnumörkun í landbúnaði á þskj. 111 og þar birta þeir þennan útreikning á fskj. VI, sem er útreikningur Stéttarsambands bænda á þessu máli. Og það er mjög nærri því, eins og hv. þm. Steinþór Gestsson segir, að sé gert ráð fyrir að um helmingur niðurgreiðslna, eins og þær voru á fjárlögum ársins 1979, gengi beint til bænda, þá samsvaraði það um 25% framleiðslukostnaðar búvara, sem yrði þar með greitt beint til bænda, eins og hér hefur verið rætt um. Niðurstaðan úr þessum útreikningum er þannig, að með þessum hætti yrði verð á mjólkurlítra 70 kr. hærra en eftir þeirri aðferð sem notuð hefur verið og heildsöluverð á 1. flokks dilkakjöti 486 kr. hærra. Mér þykir rétt að vekja athygli hv. þm. á þessu fskj. með till. sem hann hefur flutt hér á Alþingi og varpar nokkru ljósi á þetta mál. Hér með er þó auðvitað ekki nema hluti sögunnar sagður, vegna þess að þó að leiðir fyndust til að jafna þennan mun, þá er eftir að ráða fram úr þeirri flækju, hvernig á að koma þessu til skila þannig að sanngjarnt sé. Og þar kemur m.a. til álita hverjir teljast bændur og hverjir ekki. Hvernig á að fara með menn, sem stunda framleiðslu án þess að hafa lögformlega ábúð, auk allra annarra smáframleiðenda? Þarna eru mörg vafaefni — sem þeir vita sem gerst þekkja til í félagskerfi landbúnaðarins — sem er býsna flókið að ráða fram úr og veldur því, að slík takmarkatilfelli verða, að þar er erfitt að finna leiðir til að framkvæma þetta þannig að sanngjarnt verði. Vel má vera að þær leiðir finnist, en því miður hefur reynst torsótt að finna þær enn sem komið er.