25.11.1980
Sameinað þing: 25. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 920 í B-deild Alþingistíðinda. (830)
55. mál, opinber stefna í áfengismálum
Flm. (Árni Gunnarsson):
Herra forseti. Hér liggur fyrir till. til þál. um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum. Það hefur verið svo hér á landi að ríkisvaldið hefur ekki fram að þessu mótað neina opinbera stefnu í áfengismálum. Sú eina stefna, sem ríkisvald hefur mótað, er að ríkið skuli hafa einkasölu á áfengi og það sé ríkið sjálft sem verðleggi þennan varning. Önnur hefur stefnan ekki verið.
Flm. þessarar till. telja mjög tímabært að móta opinbera stefnu í þessum málaflokki, telja þetta vera orðið eitt stærsta heilbrigðismál þjóðarinnar og það mál sem nánast snertir hverja einustu fjölskyldu í landinu, hvert einasta heimili, beint eða óbeint.
Það er nú svo, að hér á hinu háa Alþingi hafa umr. um áfengismál yfirleitt farið heldur í taugar á þm. og umr. um þennan stóra þátt í öllu okkar lífi hafa sáralitlar verið. Það er rétt eins og þm. hafi veigrað sér við að ræða þennan málaflokk, kannske vegna þess að þeir standa í þeirri trú, að annaðhvort þurfi menn að vera alkóhólistar, annaðhvort fyrrverandi eða núverandi, eða bindindismenn til að geta fjallað um þessi mál. Þetta er hins vegar mesti misskilningur.
Þessi málaflokkur snertir hvern einasta mann í þjóðfélaginu. Þessi málaflokkur og afleiðingar ofneyslu áfengra drykkja er orðið svo alvarlegt mál að geðlæknar tjá mér að mjög umtalsverður hluti af þeim sjúklingum, sem fylla rúm í geðsjúkrahúsum hér á landi, séu þar vegna beinna eða óbeinna áhrifa af ofneyslu áfengra drykkja. Þetta er fyrir utan alla aðra þætti, slysaþætti, dauða manna og annað slíkt, svo stórt og umfangsmikið mál að okkur ber að ræða það, okkur ber að móta einhverja stefnu, eins og aðrar þjóðir eru nú að gera í stórum stíl. Ég vil minna á að þetta mál þótti orðið svo alvarlegt að það var tekið til sérstakrar umfjöllunar á þingi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þar var um það fjallað og þar voru samþykktar áskoranir til ríkisstjórna aðildarþjóða um verulegt og umtalsvert átak í þessum efnum.
Ég vil í upphafi máls míns geta þess, að eftir því sem næst verður komist munu um 5000 Íslendingar hafa hlotið meðferð vegna alkóhólisma á s.l. fimm árum, 5000 Íslendingar. Þar af hafa um 600 manns notið vistar í Bandaríkjunum, 476 nutu til þess styrks frá Tryggingastofnun ríkisins og rúmlega 100 kostuðu sína meðferð sjálfir. Á deild 10 í Kleppsspítalanum og vistheimilinu á Vífilsstöðum, sem er í mörgum tilfellum framhald af deild 10, er um nálægt 3 500 innlagningar að ræða síðustu fimm árin. Vistheimilið á Vífilsstöðum var opnað í maí 1976. Um 2 500 manns hafa svo fengið meðferð á sjúkrastöð SÁÁ, sem fyrst var opnuð í Reykjavík 1. desember 1977, en hefur verið á Silungapolli síðan í maí 1979. Um 750 manns hafa notið framhaldsmeðferðar hjá SÁÁ að Sogni, en starfsemin þar hófst í ágúst 1978. Það er kannske rétt að geta þess, að nú bíða um 200 manns eftir því að komast að að Silungapolli, það bíða um 200 manns eftir því að fá meðferð vegna áfengissýki. Á Sogni er biðlistinn um tveir mánuðir, tveggja mánaða biðlisti eftir því að komast að á Sogni.
Ég er þeirrar skoðunar, að með þessar tölur í huga verðum við aðeins að hægja á okkur og líta í kringum okkur og athuga hvar við stöndum.
En það er annað atriði í þessu máli sem ég vil vekja sérstaka athygli á, að þótt Reykvíkingar hafi tiltölulega góðar aðstæður til að leita lækninga á þessum sjúkdómi eru aðstæður utan Reykjavikur margfalt verri. Mig langar að nefna t.d. Akureyri og bæina við Eyjafjörð. Mig langar að vitna í bréf sem skrifað var þáv. heilbrrh., Magnúsi H. Magnússyni, í janúar 1979, með leyfi forseta. Þar segir um núverandi ástand á Akureyri:
„Samkvæmt lýsingu ríkir algert neyðarástand á Akureyri hvað varðar meðferð áfengissjúklinga eða allmiklu verra en nokkurn tíma hefur ríkt hér á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er meðfylgjandi yfirlýsing Læknafélags Akureyrar í hverri þeir segja aðstöðu til afvötnunar vera mest aðkallandi þátt í bættri heilbrigðisþjónustu á Akureyri í dag. Ekki má gleyma öllum nágrannabæjunum, sem eiga í nákvæmlega sömu erfiðleikum í þessu efni. Sérstaklega er hér átt við Siglufjörð, Sauðárkrók og Húsavík, þar sem ástandið er mjög slæmt. Hvað smærri kauptún varðar, t.d. Dalvík, Ólafsfjörð, Raufarhöfn, Þórshöfn o.fl., er ekki vitað um stærð vandamálsins, en vissulega er það til staðar.“
Með leyfi forseta vil ég einnig fá að vitna í bréf frá 11. okt. 1979, sem sent var þáv. heilbrh. Magnúsi H. Magnússyni. Þar er fjallað um afvötnunarstöð í Kristnesi, sem hefur verið mikið áhugamál manna norður á Akureyri, en þar segir:
„En tilkoma hennar þ.e. stöðvarinnar hefði auk þess önnur áhrif sem vert er að geta. Vöntun afvötnunarstöðvar hér veldur álagi á ýmsa þjónustu hér norðanlands og raunar einnig syðra. Það má nefna að næturlæknar hér á Akureyri tjá okkur að allt að helmingur vitjana þeirra verði á stundum til ölvaðs eða ölóðs fólks sem þeir verða oft að hverfa frá án viðunandi úrræða.“
Þetta er lýsing á ástandi í höfuðstað Norðurlands, þar sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur hlaupið undir bagga með þeim möguleikum sem Fjórðungssjúkrahúsið hefur til þess, sem eru afskaplega litlir.
Það má segja að hér á landi hafi allt frá árinu 1917 ríkt eins konar slökunarstefna í áfengismálum. Það kom fram við framlagningu fjárlagafrv. fyrir árið 1981, að þar eru ætlaðar 220 millj. kr. til bindindisstarfsemi og áfengisvarna í landinu, en þar er ekki talinn með sá kostnaður sem er vegna læknisþjónustu og óbeinna útgjalda ríkissjóðs vegna ofneyslu áfengis. Í Bandaríkjunum ver ríkið að mig minnir 6–7% ef ekki 8% af tekjum sínum af áfengissölu, sem eru söluskattur einkum og sér í lagi, til varna gegn ofneyslu áfengra drykkja. Hér á landi mun þetta hlutfall vera um 0.6%.
Ég held að við verðum líka, þegar við fjöllum um þessi mál, að lita aðeins á þær röngu tölur sem við höfum alltaf á bak við eyrað þegar við fjöllum um áfengisneyslu hér á landi, en það eru hinar opinberu tölur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Þar er gefið upp að neysla áfengra drykkja hér á landi nemi um 3 lítrum á hvert mannsbarn á ári, en Bjarni Þjóðleifsson læknir og Tómas Helgason prófessor hafa ályktað að þessu til viðbótar megi reikna 1.35 lítra áfengisneyslu sem kemur fram í heimabruggun og smygluðu áfengi. Þetta er óskráð neysla og hún gildir auðvitað um önnur lönd einnig, og þess vegna verður samanburðurinn á svipuðu stigi þótt við tökum opinberar tölur eða þær tölur sem við búum okkur til með því að reyna að áætla neyslu utan hinnar skráðu neyslu.
Það kemur fram í merkri könnun, sem Tómas Helgason prófessor og fleiri hafa gert á áfengisneyslu hér á landi, að á árabilinu 1974–1979 hefur þeim, sem kallaðir eru bindindismenn, stórlega fækkað hér á landi. Annað er mjög athyglisvert í þessari rannsókn, að ungar konur eru farnar að slaga hátt upp í karlmenn í sambandi við drykkjuvenjur og ofneyslu áfengra drykkja. Hins vegar fækkar eldri konum sem neyta áfengis eftir þeim skala sem notaður er við þessa könnun. Þeim fækkar ef borið er saman við karlmenn. Í þessari skýrslu kemur einnig fram að tíðni áfengisneyslu hefur aukist talsvert hér á landi á þessu árabili. Annað athyglisvert, sem kemur fram í þessari athugun, er það, að neysla sterkra drykkja virðist hafa minnkað frá árunum 1974–1979 úr 23% í 16%. Hins vegar kemur í ljós að drykkjuvenjur hafa breyst talsvert, menn virðast hafa aukið svokallaða heimadrykkju. Hún eykst frá 1974–1979 úr 43% í 56% en drykkja að heiman — þar er aðallega átt við drykkju á veitingahúsum — minnkar úr 57 í 46%. Í því úrtaki, sem þessir læknar gera og talið er fyllilega rétt, þ.e. að það sé markvert úrtak um heildarneysluna hér á landi og meðferð á áfengi almennt, kemur í ljós að um 14% allra þeirra, sem spurðir eru, brugga áfengi heima og er reiknað með að þar sé um að ræða 52 500 flöskur af öli á ári. Eingöngu þessi drykkja bætir við heildarneyslu Íslendinga 0.4–0.5 lítrum á mann á ári. En eins og ævinlega kemur líka í ljós að það er tiltölulega fámennur hópur sem neytir áfengis í óhófi, þegar þess er gætt að 3.5% af þeim, sem spurðir eru, brugga 31 500 flöskur af þeim 52 000 sem fram koma í athuguninni. Talið er að af þeim, sem spurðir voru, hafi um 13.8% hættuleg einkenni alkóhólista. Ef þetta hlutfall er þverskurður af þjóðinni geta menn búið til einfalt reikningsdæmi og fundið út hve margir Íslendingar neyta áfengis þannig að þeir séu í hættu.
Mig langar, herra forseti, að vitna hér í íslenska haglýsingu, ritgerð á vorönn, sem tveir háskólanemar hafa gert, Ólafur Jón Ingólfsson og Ólafur Tryggvason. Hún fjallar um sölu og verðlagningu á áfengi hér á landi á tímabilinu 1969–1978. Þar kemur m.a. fram að á stríðsárunum síðari, 1938–1942, var hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í hlutfalli við heildartekjur ríkissjóðs innan við 10%, en nær síðan hámarki 1944 og er þá 22.7%. Hefur hlutfallið aldrei verið hærra. Síðan hefur þetta hlutfall farið nokkuð sígandi og er 9.8% 1969.
Í þessari skýrslu kemur margt fróðlegt fram. Það er t.d. niðurstaða þessarar athugunar; að eftir því sem framboð á áfengi eykst, eftir því eykst drykkjan. Þetta kemur heim og saman við þær athuganir vísindamanna sem eru nú atfarið þeirrar skoðunar, þeir sem mest fjalla um þessi mál, að það dugi ekki lengur að beina geir sínum að áfengissjúklingunum sjálfum, heldur verði að fara að snúa sér að áfenginu sem slíku og athuga hvaða möguleikar eru fyrir hendi á því að draga úr áfengisneyslunni, draga úr möguleikum almennings á því að verða sér út um áfengi.
Í þessari ritgerð kemur fram niðurstaða sem mér finnst býsna merkileg og ég held að hafi ekki komið fram á þingi áður. Það er í sambandi við athugun sem nýlega var gerð að tilhlutan fjmrn., þar sem kannað var á fræðilegan hátt hve mikið áfengi mætti framleiða úr því magni bruggefna sem stærsti innflutningsaðili þessara efna flutti inn á árinu 1978. Niðurstöður þessarar athugunar leiddu í ljós, að úr því magni, sem flutt var inn árið 1978, mátti framleiða áfengi sem jafngilti 175 þús. lítrum af 40% sterku áfengi. Þannig held ég að mönnum hljóti að vera ljóst að sú viðbót, sem heimabruggunin hefur orðið á áfengisneyslu Íslendinga, er mjög umtalsverð.
Nú er ég persónulega þeirrar skoðunar, að um áfengismál og áfengisneyslu þýði ekki að ræða af ofstæki bindindismanna né þeirri reynslu eingöngu sem fyrrv. alkóhólistar hafa og þau samtök sem berjast á þeim vettvangi, þ.e. SÁA. Ég held að hér verði ríkisvaldið almennt að koma til, menn verði að tala um þetta sem eitt af höfuðvandamálum þjóðarinnar á heilbrigðissviðinu, gera sér grein fyrir því, að hér er á ferðinni sjúkdómur, kvilli, faraldur sem við verðum að snúast gegn. Ég er tvímælalaust þeirrar skoðunar, að við hér á Íslandi stöndum núna í svipuðum sporum og Finnar gera. Finnar eiga við ógnvænlegt áfengisvandamál að stríða sem hefur aukist þar ár frá ári, þannig að það er nú orðinn slíkur faraldur að ekki ræðst við neitt.
Ég er þeirrar skoðunar, að margar leiðir komi til greina. Ég tel t.d. að það verði að eyrnamerkja ákveðinn hundraðshluta af sölu ÁTVR til fræðslustarfsemi. Ég gat þess áðan, að Bandaríkjamenn notuðu 6–7% — það er raunar 8% — af heildartekjum til fyrirbyggjandi aðgerða, en Íslendingar nota 2–3% af tekjum sínum af áfengissölunni. Það eitt út af fyrir sig er hneisa. Ég held að það sé hneisa fyrir íslensku þjóðina, „siðaða þjóð,“ að þegar áfengi var hækkað um 18% var það gert til að ná endum saman í fjárlögum, eins og kom fram í frétt frá fjmrn. á dögunum, en ekki til að hamla gegn áfengisneyslu. Til að ná endum saman í fjárlögum! Það er sem sé ógæfa hundruða og þúsunda manna sem er höfð að fjáraflaaðferð fyrir ríkissjóð. Nú er ég ekki að segja að það verði allir alkóhólistar sem bragði brennivín, sem betur fer, en því miður verða þeir allt of margir.
Ég held að það sé fyllilega athugandi að taka upp kerfi það sem Færeyingar nota, t.d. kortasöluna, og hún ætti að gilda líka um veitingahúsin, því að þá koma skattpeningarnir til skila. Ég held að þessi kort ætti að selja á 5 eða 10 þús. kr. hverjum þeim manni sem aldur hefði til að kaupa sér áfengi, og þyrfti að sýna þau í hvert skipti sem hann festi kaup á áfengisflösku.
Þá er ég þeirrar skoðunar, að það eigi að leggja skrásetningargjald á áfengisinnflytjendur. Ég vil ekki nefna neinar tölur í því sambandi, en mér finnst alveg ástæðulaust að tugir manna hér á landi hafi af því umtalsverðar tekjur að skrifa ÁTVR bréf einu sinni á ári um annaðhvort endurnýjun á umboðsleyfi fyrir einhverjar ákveðnar áfengistegundir eða innflutning, hafi síðan nákvæmlega ekkert fyrir og hirði tekjurnar af áfengissölunni. Hví skyldu þeir ekki greiða ríkinu skatta af þessum leyfum sínum?
Þá er ég þeirrar skoðunar, að kennarar, sem fá réttindi til kennslu í grunnskólum hér á landi, fái þau réttindi ekki nema því aðeins að þeir fari á námskeið, þar sem fjallað er um áfengismál, og gangi í gegnum ákveðinn skóla í þeim efnum, þannig að þekking þeirra á áfengismálum verði góð.
Ég vil benda á þá skoðun SÁÁ-manna, sem ég held að hafi hvað mesta þekkingu á þessum málaflokki af öllum sem um hann fjalla, að um 250 manns látist hér á landi á hverju einasta ári, beint eða óbeint af völdum áfengis, þ.e. af völdum ofneyslu áfengis. Ég vil líka benda á þann gífurlega fjölda manna sem á hverju ári er tekinn ölvaður við akstur. Hafa þm. hugleitt hvað að baki liggur þegar maður er tekinn ölvaður við akstur? Ég hygg að einmitt á þessu sviði sé að leita ástæðna sem leitt gætu til þess, að það mætti fyrirbyggja umtalsverðan fjölda af þeim ofneyslutilvikum sem við vitum um. Maður, sem ekur bíl undir áhrifum áfengis, hlýtur að vera þannig á sig kominn vegna áfengisneyslu og andlega að það sé ástæða til að félagsfræðingur spjallaði við hann, þó ekki væri meira, daginn eftir í stað þess að honum sé stungið í tugthús. Ég vil líka benda á að lögreglan í Reykjavík getur sagt þm. margar sögur af því, hvernig ástatt er, ekki eingöngu frá þeim mönnum, sem sjást áberandi ölvaðir, heldur hinum líka sem yfirleitt sést aldrei á, stunda sína vinnu daginn út og daginn inn, en neyta áfengis í óhófi engu að síður. Þessi tilvik eru miklu, miklu fleiri en nokkurn hér inni grunar. — Það, sem er kannske alvarlegast, er að ofdrykkja meðal húsmæðra er að færast mjög í aukana. Húsmæðrum, sem sitja einar heima eftir að börnin eru flogin úr hreiðrinu, er mjög hætt við að verða áfenginu að bráð.
Herra forseti. Í þessari till. til þál., sem þingflokkur Alþfl. flytur segir að Alþ. álykti að skora á ríkisstj. að hún láti nú þegar undirbúa tillögur að stefnu hins opinbera í áfengismálum, sem byggist á þeim grundvallaratriðum að dregið verði úr heildarneyslu vínanda, að stórauka skipulagða fræðslu og upplýsta umræðu um áfengismálastefnu, að skilgreina eðlilega uppbyggingu „meðferðarkeðju“ og auka stuðning við áhugamannasamtök, að verslun ríkisins með áfengi leggi ríkisvaldinu þær skyldur á herðar að vinna gegn ofneyslu vínanda með fyrirbyggjandi starfi og fræðslustarfsemi og skyldi jafnframt hið opinbera til að liðsinna þeim er eiga við áfengisvandamál að stríða.
Síðan eru þessi stefnuatriði rökstudd og í grg. fjallað um þennan áfengisvanda, að ég vona á tiltölulega hlutlausan hátt. Þar er getið margvíslegra upplýsinga um áfengisneyslu almennt, áhrif áfengisneyslunnar. Ég vil fara um það nokkrum orðum, með leyfi forseta:
„Í tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni kemur fram, að á árabilinu 1960–1972 hafi framleiðsla í heiminum á léttum vínum aukist um 20%, á sterkum vínum um 60% og á bjór um 80%. Í 25 löndum, þar sem fengist hefur nákvæmt eftirlit um áfengisneyslu, hefur neysla aukist um 30–500% á hvern íbúa.“
Í þessum efnum ber þess að geta, að nýfrjálsu ríkin, t.d. Afríkuríkin hafa orðið verst úti af þessum sökum. „Að sama skapi hefur afbrotum, sem tengd eru áfengisneyslu, farið fjölgandi. Í nokkrum löndum er talið, að um 50% allra afbrota séu framin í tengslum við neyslu áfengis. Ofan á það bætast svo umferðarslys, slys á vinnustöðum og í heimahúsum.“
Fjarvistir frá vinnu, samdráttur í afköstum og fleiri þættir eru af þessum toga spunnir. Það er ekki fjarri því að afbrotatalan hér á landi nái þessum 50 hundraðshlutum og eru þá talin með afbrot af hvaða tagi sem er, m.a. það að aka bíl ölvaður.
„Til misnotkunar áfengis má einnig rekja beina fátækt og vanrækslu heimilis og barna. Mikil aukning hefur orðið á tíðni sjúkdóma, sem eru beinlínis tengdir ofneyslu áfengis. Nefna má skorpulifur, nýrna- og hjartasjúkdóma og krabbamein. Tíðni sjálfsmorða meðal fólks, sem á við alvarlega áfengissjúkdóma að stríða, er 80 sinnum meiri en hjá öðrum.
Í Bandaríkjunum hefur verið reiknað út, að beinn kostnaður af völdum ofneyslu áfengis, þ.e. kostnaður heilbrigðisþjónustu og félagsmálaþjónustu, sé 25 milljarðar dollara á ári. í flestum löndum, sem Atþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur fengið skýrslur frá, fer þessi kostnaður vaxandi með hverju árinu sem líður.“
Í nákvæmri rannsókn, sem gerð var á tengslum áfengisneyslu og glæpa, kemur í ljós, að áfengi var með í spilinu í 13–50% allra nauðgana, 24–72% rána og 28–86% morða. Þá hefur verið sannreynt að það kemur mjög víða við sögu þegar börnum er misþyrmt, og þarf ekki að teita út fyrir okkar góða land til að finna dæmi um það.
„Það vakti mikla athygli á síðasta ári, er heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna lagði skýrslu fyrir Bandaríkjaþing er staðfesti fyrri upplýsingar í skýrslu er hann lagði fyrir þingið 1974 um það tjón sem áfengisneysla hefur í för með sér. Er talið að áfengisneysla kosti Bandaríkjamenn nærri 43 milljarða dollara á ári þegar á heildina er litið. Áfengisneysla þar í landi er 10.2 lítrar af hreinum vínanda á hvern íbúa 14 ára og eldri.“
Skiptingin á þessu tjóni er þannig, að framleiðslutap er áætlað 19.6 milljarðar, til heilbrigðismála 12.7 milljarðar, vegna bifreiðaslysa 5.1 milljarður, vegna ofbeldisglæpa 2.9 milljarðar, vegna félagsmála 1.9 milljarðar og vegna bruna 0.4 milljarðar. Tekið er fram í skýrslunni að þessar tölur séu varlega reiknaðar.
„Við setningu ársþings Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Genf haustið 1978 lagði aðalforstjórinn, Halfdan Mahler, áherslu á nauðsyn þess, að sem skjótast yrði rönd reist við áfengisbölinu í heiminum. Hann beindi þeim tilmælum til ríkja, sem aðild eiga að stofnuninni, að þau settu lög er stuðluðu að minni áfengisneyslu. Hann benti á, að tiltæk ráð væru hærra áfengisverð, minni framleiðsla, innflutningshömlur og fækkun dreifingarstaða áfengis.“
Þessar tillögur koma mjög heim og saman við tillögur bandaríska heilbrrh., sem var getið áðan. Hann segir m.a. í tillögum sínum, að halda skuli áfengisverði háu m.a. með skattlagningu, fækka eigi vínveitingahúsum og áfengisútsölum, draga úr styrkleika áfengis, auka eftirlit með áfengisauglýsingum, hækka lögaldur vegna áfengiskaupa og setja reglur um ritun viðvarana á áfengisflöskur.
Ég vil benda á í þessu sambandi rannsókn sem þeir dr. Tómas Helgason, Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir og Gylfi Ásmundsson sálfræðingur gerðu nýlega, en um hana segir dr. Tómas:
„Þeir, sem bjuggu í þéttbýli, þar sem hægara var að nálgast áfengi en í dreifbýlinu, höfðu 13% líkur til að vera drykkjusjúkir og nærri 20% líkur til þess að verða ofdrykkju að bráð. En aðeins 4% karla, sem voru búsettir í dreifbýli, þegar þeir voru 14 ára, áttu á hættu að verða drykkjusýki að bráð.“
Þetta telur dr. Tómas að komi mjög vel heim og saman við kenningar um að unnt sé að draga úr heildarneyslu áfengis með því að fækka dreifingarstöðum. Allar rannsóknir benda til þess, að fimmti hver maður, sem byrjar að neyta áfengis verði að líkindum ofdrykkjumaður. Þetta eru ekki fullyrðingar bindindismanna eða siðapostula af nokkru tagi. Þetta eru ekki fullyrðingar fyrrv. alkóhólista. Þetta eru vísindalegar staðreyndir sem ekki verður horft fram hjá.
Þá vil ég að lokum, með leyfi forseta, fá að lesa hér það sem ég tel að sé kjarni þessa máls:
„Vandamál af völdum áfengisneyslu eru nú þegar veruleg á Íslandi, en komast þó ekkert nálægt því sem þau eru í vínyrkjulöndum eins og t.d. Frakklandi, en þar er talið að um það bil helmingur af öllum útgjöldum til heilbrigðismála fari í að fást við heilsutjón af völdum áfengisneyslu. Það virðist því mjög tímabært fyrir lönd, sem ekki eru jafnilla á vegi stödd í þessum málum, að marka stefnu til að afstýra slíku ástandi.
Áfengisvandamát fylgja óhjákvæmilega áfengisneyslu. Nokkur hluti áfengisneytenda getur ekki haft stjórn á neyslu sinni og skaða þeir sjálfa sig, fjölskyldu sína og samfélagið í heild (ofurölvun, ofbeldi, lögbrot, slys, vinnutap, hjónaskilnaðir, alkóhólismi, heilsutjón).
Áfengisbann er óframkvæmanlegt nú á tímum. Það skerðir gróflega persónurétt áfengisneytenda, en mikill meiri hluti þeirra getur haft stjórn á neyslu sinni. Önnur vandamál við áfengisbann: smygl, heimabrugg, aukin lyfjaneysla, samskipti við .ferðamenn o.fl.
Markmið áfengismálastefnu er því ekki hægt að setja hærra en að halda í lágmarki þeim vandamálum, sem af áfengisneyslu leiðir.
Leiðir að þessu marki skiptast í tvo meginflokka:
1. Aðgerðir til að fást við vandamál, sem þegar hafa skapast, og er þar langstærsta verkefnið meðferðarkeðja fyrir áfengissjúklinga (afvötnunarstöðvar, endurhæfingarstöðvar, félagsráðgjöf, drykkjumannahæli). Enn fremur skipulögð fræðsla í skólum og fjölmiðlum, stuðningur við áhugamannasamtök (SÁÁ, AA, bindindishreyfingu).
2. Fyrirbyggjandi aðgerðir. Sérfræðingar á sviði áfengismála eru sammála um eftirfarandi: a) Heildarneysla á áfengi í hverju samfélagi (á íbúa á ári) ræður tíðni áfengisvandamála í framtíðinni. T.d. ef heildarneyslan tvöfaldast, þá fjórfaldast áfengisvandamálin. b) Hægt er að stýra áfengisneyslu með verðlagningu og takmörkun á dreifingu. c) Það er því grundvallaratriði í áfengismálastefnu að halda heildarneyslu í skefjum.
Vegna eituráhrifa sinna og ávanahættu er áfengisneysla nær alls staðar háð eftirliti og takmörkunum.“ — Það má raunar skjóta því hér inn í, að það er nánast furðulegt í siðuðum samfélögum, sem hafa viðurkennt áfengið sem neysluvöru, neysluvarning, að sett eru upp mikil bákn til þess að berjast gegn öðrum eiturefnum. Áfengið sem slíkt er í eðli sínu ekkert minna eiturefni en hass. Það er dómur lækna og sérfræðinga. Í þessu felst í hverju þjóðfélagi viss tvöfeldni, þ.e. að banna eitt eiturefni, en leyfa annað. Ég nefndi hassið sem dæmi. Það eru til fleiri eiturefni en hass. Ég er enginn stuðningsmaður þess. — „Hér á Íslandi hefur stjórntækjum áfengisneyslu (verðlagning og dreifikerfi) verið beitt meira en í flestum öðrum löndum. Nauðsynlegt er að þessi stýring eigi sér ekki eingöngu stað í lögum, heldur einnig í sterku almenningsáliti. Skipulagða fræðslu og upplýsta umræðu um áfengismálastefnu hefur vantað af hálfu stjórnvalda.
Heildaráfengisneyslu Íslendinga hefur verið haldið í skefjum með háu verðlagi og gisnu dreifingarkerfi. Með því að leyfa heimabrugg verða stjórntæki áfengisneyslu óvirk eða mun minna virk en ella.
Ef heildarneysla á alkóhóli eykst virðist skaðsemin jafnmikil hvort sem aukningin stafar af sterkum eða léttum vínum eða bjór. Hættan við bjórinn er að hann bætist hreinlega við þá neyslu, sem fyrir er, án þess að breyta henni að öðru leyti. Er þetta reynsla annarra þjóða, sérstaklega þar sem dreifing á bjór hefur verið með annarri matvöru. Það er hins vegar fræðilega mögulegt, að innleiða bjór þannig að hann ryðji úr vegi sterkari tegundum, en til þess þarf að beita markvisst verðlagningu og dreifingarkerfi.
Drykkjusiðir Íslendinga einkennast af sterkvínsdrykkju (85%) þar sem mikið magn er tekið á skömmum tíma. Erfitt er með stjórnaraðgerðum að breyta drykkjusiðum, en þó hafa stjórnvöld stuðlað að því að viðhalda þessum drykkjusiðum með því að verðleggja brennivín ódýrar en aðrar tegundir (a.m.k. til skamms tíma). Líkur benda til, að „ölvunardrykkja“ leiði fremur til myndunar alkóhólisma heldur en ef sama magni er dreift jafnar yfir lengri tíma. Það má því leiða rök að því, að það sé til bóta að innleiða létt vin eða bjór í stað sterkra vina, ef það tekst án þess að auka heildarmagnið.
Að lokum er vert að benda á margvíslega möguleika ríkisvaldsins til að draga úr áfengisneyslu með einföldum ákvörðunum. Nefna má stöðvun allra áfengisveitinga á vegum hins opinbera og stofnana hins opinbera svo og stöðvun á sölu á tollfrjálsu áfengi.“ — Þá er átt við fríhafnir, flugvélar og skip raunar líka.
Það, sem ég hef nú lesið, er niðurstaða eins færasta sérfræðings Íslendinga á sviði áfengismála. Sá maður er læknir og hefur starfað að lækningu áfengissjúklinga og átt samstarf við flesta þá sem um þessi mál hafa fjallað. Hann veit því fullkomlega hvað hann er að tala um.
Herra forseti. Ég mun ekki orðlengja þetta meira, enda ræða mín orðin þriggja stundarfjórðunga löng, líklega sú lengsta sem ég hef haldið hér á þingi, enda ekki mikið fyrir að tala of lengi. En ég vil eindregið vænta þess, að þm. forðist að líta á þetta mál sem eitthvert einkamál Alþfl. Það er það ekki. Þetta er mál alls Alþingis og allra þm. þó að Alþfl. hafi lagt þetta mál fram hér á þingi um mörkun opinberrar stefnu. — Ég sagði að það væri ekki einkamál Alþfl. Drykkjuvandinn er ekkert meiri þar en annars staðar. (Gripið fram í: Ja, eitthvað er það.)
Ég vil fyrir alla muni biðja menn um að forðast að ræða þetta sem eitthvert sérstakt og einstakt og afmarkað mál. Þetta er mál sem kemur okkur öllum við sem hér erum inni. Ég man eftir því, að fyrir mörgum árum, þegar ég var þingfréttaritari hér á þingi, þótti það nánast nokkuð fínt þegar þm. komu ölvaðir á þing. Þetta er löngu liðin tíð. Það er líka löngu liðin tíð, vegna breytts almenningsálits, að það þyki fínt að vera drukkinn í vinnu eða timbraður í vinnu. Það er ekki lengur litið á slíkt sem einhver „sniðugheit.“ Menn eru farnir að átta sig á því, að hér er á ferðinni svo alvarlegt heilbrigðismál að fram hjá því getur enginn horft. Það er m.a. af þeim sökum að þetta mál er flutt hér á þingi. Ég vil í þeim efnum benda á að Norðmenn hafa nú þegar markað opinbera stefnu í áfengismálum og hafa náð ótrúlega miklum árangri í baráttunni gegn áfenginu með aðgerðum sem sumum þykja bera vott um þröngsýni og bjálfahátt, en eru fjarri því að vera það, einfaldlega vegna þess að sú stefna leitast við að draga úr heildarneyslu áfengra drykkja.