25.11.1980
Sameinað þing: 25. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (838)
55. mál, opinber stefna í áfengismálum
Flm. (Árni Gunnarsson):
Herra forseti. Ég þakka þær undirtektir sem þetta mál hefur fengið. Ég er þeirrar skoðunar staðfastlega, að öll umr. um þetta mál sé af hinu góða. Það væri mjög freistandi að fara út í að svara ýmsu af því sem hér hefur verið borið á borð, misjafnlega greindarlegt sumt. Ég vil eingöngu segja það, að þegar ég vitnaði til þess, að bindindismenn kynnu að vera fullir af ofstæki í þessum málum, var það eingöngu til að draga upp andstæðar myndir af því hvernig um þessi mál ætti að tala og ætti ekki að tala.
Ég hefði kosið að heyra álit heilbr.- og félmrh. á þessu máli úr því að hann hefur verið viðstaddur þessa umr., því ekki heyrir það nú síst undir hans rn. að fjalla um þetta.
Ég vil taka skýrt fram, að í till. er þess getið, að haft skuli samráð við öll heildarsamtök í landinu, sem um þessi mál fjalla, áður en stefnan verður mótuð. Það er varla á færi eins þingflokks eða þingsins sjálfs að móta slíka stefnu án samráðs við þau samtök sem mest koma við þessi mál og mest fjalla um þau.
Þá kom einnig fram hjá einhverjum að þessi till. markaði ekki stefnu. Það er auðvitað fjarstæða. Þessi till. markar mjög ákveðna stefnu. Kemur það skýrt fram í till. sjálfri ef menn lesa hana vandlega. Auk þess nefndi ég nokkur dæmi í framsögu minni um ráð sem hægt væri að beita og beitt væri í öðrum löndum. Þannig var tekið skýrt fram hvaða aðferðum mætti beita.
Um hugleiðingar hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur ætla ég ekki að fara mörgum orðum. Það er rétt hjá henni, að ekki er vitað hvort áfengissýki er af efnafræðilegum orsökum eða arfgeng eða af hvaða ástæðum hún er. Þar greinir menn mjög á um orsök annars vegar og afleiðingar hins vegar. Ég get einnig tekið undir það með henni, að ekki er vafi á að firring nútímasamfélagsins á mjög umtalsverðan þátt í áfengisneyslu og aukningu á henni.
Ég segi að lokum, herra forseti, að ég vænti þess, að þessi umr. geti orðið upphaf einhverra þeirra umr. hér á þingi er geti leitt til þess, að hið opinbera marki afgerandi og ákveðna stefnu í áfengismálum. Í þeim efnum mætti svo sem byrja á því að hætta að veita áfengi í opinberum samkvæmum. Það er afskaplega einfalt mál og einföld ákvörðun að taka í stjórnarráði á fundi hæstv. ríkisstj. Það er svo ótalmargt sem má gera í þessu, og orð eru til alls fyrst.
Ég þakka öllum þeim, sem hafa tekið þátt í þessari umr., og þakka það kannske mest að menn hlógu ekki mikið undir þessari umr. Það voru ekki margir hér inni sem hlógu. Menn hafa líklega gert sér grein fyrir því, að hér er alvörumál á ferðum. Ég man eftir umr. hér á þingi um áfengismát þar sem hálfur salurinn veltist um á meðan var verið að tala um þau. Á meðan liggja menn fársjúkir svo tugum og hundruðum skiptir á sjúkrahúsum, geðsjúkrahúsum og spítölum, um allt land og eru að deyja af þessum kvilla. En sem betur fer gerðist það ekki núna að mikið væri hlegið. Það hefur líklega orðið einhver breyting á afstöðu manna til vandans.