26.11.1980
Efri deild: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 956 í B-deild Alþingistíðinda. (853)
27. mál, almannatryggingar
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Ég leyfi mér að mæla fyrir nál. heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar um frv. til l. um breyt. á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum.
N. hefur fjallað um þetta mál á tveimur fundum. Ásíðari fundinn komu tveir starfsmenn Tryggingastofnunar, þeir Hilmar Björgvinsson og Ólafur Björgúlfsson, og veittu n. upplýsingar. N. leggur til að frv. verði samþykkt með breytingum og er till. flutt um þær á sérstöku þskj.
Áður en ég geri grein fyrir brtt. vil ég í örfáum orðum minna á þá aðalbreytingu sem frv. sem hér er til umfjöllunar, felur í sér. Það má segja að aðalbreytingin sé sú, að það verður heimilt samkvæmt frv. að hefja greiðslu meðlags svo fremi að barnsfaðernismál hafi verið höfðað. Það verður að líta svo á að þetta sé aðalbreytingin sem þetta frv. hefur í för með sér.
Ég vil svo leyfa mér að gera grein fyrir þeim brtt. sem getið var um áðan og eru á þskj. 140, við frv. til l. um breyt. á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum. Brtt. eru á þá leið:
„1. Á undan 1. gr. (sem verður 2. gr.) komi ný grein, sem orðist svo:
4. mgr. 14. gr. orðist þannig:
Lífeyrisdeild Tryggingastofnunar skal greiða barnalífeyri þegar skilríki liggja fyrir um að barn verði ekki feðrað.
2. Á eftir 2. gr. (sem verður 3. gr.) komi svofellt ákvæði til bráðabirgða.
Þær mæður, sem þegar hafa höfðað mál fyrir gildistöku laga þessara, skulu njóta réttinda samkv. lögum þessum.“
Fyrri breytingin, sem hér um ræðir, felur það í sér að nú skal greiða barnalífeyri ef ekki reynist gerlegt að feðra barn samkv. málsskjölum í stað heimildar áður.
Síðari breytingin er gerð vegna þeirra mála sem höfðuð hafa verið fyrir gildistöku þessara laga.
N. mælir eindregið með að þetta frv. verði samþykkt.