26.11.1980
Neðri deild: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (869)
65. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður spurði hvort menn teldu að löggjafinn hefði brugðist eða hvort framkvæmdin hefði brugðist. Ég get tekið undir með hv. 2. þm. Norðurl. e., ég tel að hvort tveggja hafi brugðist, löggjöfin og framkvæmdin. Og ég held að Alþingi sé ekki svo óskeikul stofnun, að það geti ekki komið fyrir að afgreidd séu mál sem þurfi leiðréttingar við. Það kom fljótt í ljós að mönnum fannst ástæða til að fella niður síðari mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laganna og síðar að 59. gr. laganna ásamt fyrirsögn félli brott. Við, sem flytjum það frv. sem hér er til umr., lögðum til við umr. um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt á síðasta þingi að þetta yrði fellt niður vegna þess að við höfðum fengið nákvæmar upplýsingar um það, að þessi ákvæði væru ekki réttlát og því væri rétt að fella þau niður strax. Því miður náði þessi tillaga ekki fram að ganga, en margir þeir hv. þm., sem stóðu að því að fella hana, hafa skipt um skoðun síðan og viðurkennt staðreyndir, og þeir eru ekkert minni menn fyrir það. Og ég sé að hæstv. landbrh. segir um þetta atriði í viðtali við Morgunblaðið, rétt eftir að þing kom saman í haust, orðrétt:
„Þarna kemur, að því er mér virðist, fram almennur og eindreginn vilji bænda á þeim svæðum er undirskriftasöfnunin tekur til, og ég tel að gaumgæfa þurfi vandlega að nema þessa 59. gr. og skyldar greinar úr gildi.“
Þegar hann var spurður álits um áskorun um 2000 bænda um að afnumin verði þessi lagagrein um að áætla megi tekjur á bændur, en áskorunin var afhent landbrh. og forsrh. rétt um það bil sem Alþingi kom saman, segir landbrh.:
„Í framkvæmdinni hefur þetta reynst þannig, að þessi tekjuáætlun hittir aðeins efnaminni bændur og þá sem lent hafa í einhverjum erfiðleikum og óhöppum. Þeir, sem eru betur megandi og hafa stærri bú, munu á hinn bóginn ekki verða fyrir barðinu á þessu.
Sömu sögu er að nokkru að segja um tekjuuppfærslu á skuldum sem ýmis dæmi benda á að komi ákaflega illa út,“ bætir hann við.
Mér finnst þetta vera nokkuð annað en viðhorf hæstv. fjmrh. sem vill bíða eftir starfi nefndar í þessum efnum. En það er auðvitað ágætur háttur að taka upp, ef menn vilja ekki breyta einhverju sem þeir innst inni vita þó að er ranglátt, að leggja málið fyrir nefnd sem flýtir sér hægt, eins og margar nefndir gera, og vill láta bíða lengi eftir ákvörðunum sínum.
Ef við lítum á þessi ákvæði tekjuskattslaganna, þá er verið að færa allt of mikinn vanda yfir á framkvæmdaaðila við skattálagningu. Ég þakka hæstv. fjmrh. þær mikilvægu upplýsingar sem komu fram í ræðu hans, að fjmrn. leggi ekki skatta á. Ég hélt að flestir þm. eða allir meira að segja vissu þetta, en eigi að síður eru þetta merkar upplýsingar og sýna að hæstv. ráðh. hefur ekki sérstaklega mikið álit á þekkingu þm. í sambandi við álagningu skatta, fyrst hann sá sérstaka ástæðu til þess að taka þetta fram.
Ríkisskattstjóri fær þennan vanda í hendur og hann tekur greinina á þann veg, að hann ákvarðar ekki bændum tekjur, heldur setur hann meðaltalsviðmiðunarreglur til ákvörðunar endurgjalds á skattárinu 1980. Þetta sendir hann skattstjórum og þetta nær til fjölmargra aðila í þjóðfélaginu. Þessar meðaltalsviðmiðunartekjur, sem ríkisskattstjóri setur, eru miðaðar við venjulegan vinnutíma, þ.e. 40 tíma viku og lögbundið sumarfrí. Ef um yfirvinnu, ákvæðisvinnu eða umframgreiðslur almennt er að ræða í viðkomandi starfsgrein á hverjum stað, þá ber skattstjóra að meta það til hækkunar frá þessari meðaltalsviðmiðunarreglu. Þessum meðaltalsviðmiðunarreglum er skipt í fjóra flokka.
Í fyrsta flokki eru sérmenntaðir menn sem vinna við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í sérgrein sinni með eða án aðstoðarfólks. Undir það falla t.d. lyfjafræðingar, tæknar, lögfræðingar, löggiltir endurskoðendur, ráðgjafarsérfræðingar hvers konar og verkfræðingar. Þar er viðmiðunin 8.1 millj. kr.
Í öðrum flokki eru stjórnendur eigin atvinnurekstrar eða sjálfstæðrar starfsemi sem hafa greitt laun sem samsvara launum fyrir störf þriggja eða fleiri launþega á árinu. Undir þennan flokk fellur t.d. iðnaðar- eða iðjurekstur, innflutnings- eða útflutningsrekstur, verslun hvers konar, umboðssala og persónuleg þjónusta sem fellur ekki undir stafliði a og b. Hér er miðað við 7.5 millj. kr. árslaun.
Í þriðja flokki eru menn sem vinna einir við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, en gætu þó hafa greitt laun sem samsvara launum fyrir störf eins eða tveggja launþega á árinu. Hér falla undir menn sem eru með sama atvinnurekstur og um ræðir í staflið b. Hér eru ákvörðuð árslaun 6.4 millj. kr. Í þessum flokki eru bændur sem mest hefur verið rætt um.
Í síðasta flokknum eru iðnaðarmenn. Hér falla undir þeir sem vinna að iðngrein sinni að meginhluta, en ef stjórnun á mönnum og verkum er veigamikill þáttur í starfi þessara manna falla þeir undir 2. stafl. Í þessum flokki eru iðnaðarmenn við byggingarframkvæmdir hvers konar, járn- og vélsmíði, skipasmíði, blikksmíði og prentarar. Hér er miðað við 4.9 millj. kr. árslaun á þessu ári.
Ef við lítum á þetta, þá geta menn auðvitað haft um það mjög misjafnar skoðanir hvort þetta fari saman, enda er erfitt fyrir embættismenn að dæma um þetta atriði. En þetta er ekki höfuðmálið. Höfuðmálið er það, að tekin sé almenn viðmiðun, heilar stéttir, þegar sannað er í mörgum tilfellum að af þessu leiðir hróplegt ranglæti eins og hv. 2. þm. Suðurl. sýndi fram á áðan. Ég gæti bætt mörgum dæmum við því að ég hef heyrt margan mann kvarta undan því að fá slíka viðmiðun. Það má að vísu segja eins og hv. 3. þm. Austurl.: Menn geta kært þessa álagningu. Vitaskuld geta þeir það. En ríkið gefur ekki eftir í innheimtunni. Það heimtar greiðslur, og þegar tekjuskattur fer jafnvel yfir það sem menn vinna sér inn, þá er erfitt að standa undir slíkum greiðslum, en það verða menn að gera og ljúka því á árinu. En það verður oft að bíða eftir úrskurði skattyfirvalda og allt til ríkisskattanefndar hvernig hún afgreiðir málið. Og það er ekki neinn smáskattur sem á þessa menn er lagður í þessu tilfelli. Ef þeir standa ekki í skilum verða þeir að borga háa dráttarvexti vegna ógoldinna skatta. Ef þeir borga og fá svo leiðréttingu eftir dúk og disk, þá fá þeir ekki þessa sömu vexti aftur sem þeir hafa ofborgað. Þeir fá ekki nema brot af þeim, ef ég man rétt. Það eru einhverjir smávextir eftir gömlu skattalögunum, ef ég man rétt, ég þori þó ekki að fullyrða það. En það er ekki nema brot af því sem dráttarvextirnir eru, svo að þetta er auðvitað í framkvæmdinni og við innheimtuna óskaplega ranglátt. Um það held ég að við þurfum ekki að deila.
Fjöldamargir, sem hafa fengið þessa áætlun langt umfram tekjur, hafa snúið sér til lögmanna eða til þingmanna sinna almennt og spurt hvað gera skuli, því að þeir sjá ekki fram á annað en verða gerðir gjaldþrota eða verða fyrir eignaupptöku af þessum sökum. Það, sem vafist hefur mest fyrir þessum aðilum, er hvort þeir eigi að leggja niður störf sín nú þegar eða þrauka til næstu áramóta, því að það er sjáanlegt, að ef ekki verður gerð hér breyting á muni á næsta ári koma ný áætlun fyrir það ár sem nú er senn að líða, sem ef að líkum lætur mun hækka um ekki minna en 50% frá þessum viðmiðunarreglum á árinu 1980. Og ef þessu heldur áfram eru þessir aðilar komnir í vítahring sem þeir ekki komast út úr.
Ég er alveg sannfærður um það, að þegar þessi breyting var gerð á skattalögunum var hún ekki samþykkt af þm. í þessum tilgangi. Hún var fyrst og fremst gerð til þess að ná í skottið á þeim sem hafa í raun og veru góðar tekjur og hafa sloppið vel við skatta, jafnvel árum saman. En hér er verið að hengja bakara fyrir smið, og þess vegna tel ég það ekki Alþingi til neinnar vansæmdar þó að það viðurkenni að hér þurfi breytingar við. Og ég sé enga ástæðu til þess að bíða eftir áliti þeirrar nefndar sem hæstv. fjmrh. var að tala um. Ég skil ekki hvernig hæstv. fjmrh., sem er góður og gegn maður og alveg örugglega vel innrættur og hefur talað fyrir smælingjana og þá, sem minnst mega sín í þjóðfélaginu, er nú orðinn svo harðsvíraður, eftir að hann settist í stól fjmrh., að það virðist vera orðið djúpt á fínu taugarnar. Hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði að sennilega hefðu einhverjir bændur kosið hann síðast. Ég hugsa að þeir endurskoði mjög afstöðuna til hans ef hann talar svona á framboðsfundum næst í Norðurlandskjördæmi vestra og bíður eftir afgreiðslu nefndar í þessum efnum. Menn sætta sig ekki við það. Alþingi verður að viðurkenna þá staðreynd, að bæði hefur lagasetningin brugðist og framkvæmdin líka, án þess að ég ætli að fara að álasa ríkisskattstjóra eða öðrum. Það er ekki eðlilegt og ekki sanngjarnt heldur að leggja þennan vanda á hendur embættismönnum. Alþingi þarf að hreinsa sig af þessu með því að afnema þessi ákvæði, og að mínum dómi á að endurgreiða þennan ranglega álagða skatt sem lagður hefur verið á á þessu ári og innheimtur.