27.11.1980
Sameinað þing: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (886)

52. mál, sveigjanlegur vinnutími hjá ríkisfyrirtækjum

Helgi Seljan:

Herra forseti. Það eru örfá orð.

Ég tek fyllilega undir efni þessarar till. Ég held að hér sé gott mál á ferðinni og vel þarft allrar athugunar. Raunar var það svo í fyrra, að þetta mál var komið á afgreiðslustig í þeirri n. sem um það fjallaði, allshn., og ég lýsti þá yfir að ég væri reiðubúinn til að afgreiða málið út úr þeirri n. eins og það lá fyrir. En það voru önnur atvik og ekki þau, að nokkur í þeirri n. væri því ósammála, sem ollu því að málið var ekki afgreitt í n. þá.

Þarna getur komið til greina hagræðing um margt, ekki bara fyrir fólkið sem þarna vinnur, heldur einnig í kerfinu sjálfu, fyrir ríkið sjálft. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, þó að auðvitað beri að vara við því að gengið sé of langt og eitthvert hömluleysi verði þarna á. Það er full ástæða til að vara við því, að menn geta kannske gengið of langt. Sumir taka sér kannske þennan sveigjanlega vinnutíma nú þegar og annað eftir því, sem kæmi þá til athugunar eflaust. En ég vil benda sérstaklega á eitt atriði sem ég held að slík tilhögun, sem þarna er vikið að í till., gæti auðveldað mjög.

Ég tók ekki eftir að það kæmi fram í máli hv. 1. flm., en ég er sannfærður um að ef svona tilhögun yrði komið á og virkilega vel eftir henni gengið mundi slíkt auka mjög þátttöku fatlaðra og auðvelda þeim að komast í störf hjá ríkinu og vinna þar eðlilegan vinnutíma. Ég tek sannarlega heils hugar undir meginefni till., kannske alveg sérstaklega með tilliti til þess, að þetta gæti auðveldað þeim þátttöku í atvinnulífinu á þennan hátt.