27.11.1980
Sameinað þing: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (898)

58. mál, eftirgjöf á gjaldi fyrir síma elli- og örorkulífeyrisþega

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil segja það í upphafi míns máls, að Pósti og síma ber að sjálfsögðu að framkvæma þau lög sem frá Alþ. koma, — ef ég má leyfa mér að segja: sama hvað þau eru vitlaus. Ég er nefnilega á þeirri skoðun, að þessi lög séu heldur vafasöm. Ég vona að mér leyfist að segja það þótt það sé ekki beinlínis til umræðu.

Ég er einnig þeirrar skoðunar að tryggja beri öldruðum þessa nauðsynlegu þjónustu. Ég tek undir það, að nauðsynlegt er að fólk hafi efni á að hafa síma, ekki síst þeir sem eru líkamlega ekki fullfærir. Ég er hv. flm. sammála um það. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að það beri að gera í gegnum tryggingakerfið.

Ávallt er nokkur vandi að ákveða hvar á að draga mörkin. Ég hygg að ekki sé óeðlilega hætt við því, að stofnun, sem liggur undir miklum þrýstingi að gæta sparnaðar, sem er með rekstrarhalla o.s.frv., vilji heldur heimta inn fleiri símgjöld en færri. Þetta er fellt niður í dag og síðan annað á morgun og stofnunin missir af tekjum. T.d. er Póstur og sími með rekstrarhalla upp á hundruð milljóna í ár. Orðið hefur að draga úr framkvæmdum við sjálfvirkan síma í dreifbýli. Við getum vitanlega sagt að þetta sé ekki stór dropi í það haf, en margt smátt gerir eitt stórt. Ég er þeirrar skoðunar, að höfð sé röng aðferð og þurfi að taka málið upp í heild sinni að nýju og finna aðrar leiðir til að tryggja öldruðum, öryrkjum og fleiri aðgang að síma.

Ég skal viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér þetta mál eins og mér ber að gera í raun og veru. Það hefur ekki rekið á mínar fjörur síðan ég kom í ráðuneytið. Hins vegar hef ég grun um að Póstur og sími hafi reynt að draga mörkin þannig að tryggja þeim, sem undir þessi lög falla, aðgang að síma fyrst og fremst sem neyðartæki, en ekki eins og kom fram hjá flm., sem almennt tæki til að rabba við ættingja og fleiri, sem getur vissulega verið góðra gjalda vert. Þess vegna má vera tregða hjá stofnuninni að veita slíkan afslátt eða niðurfellingu gjalda þar sem talið hefur verið um hægan aðgang að almenningssíma að ræða. Ég veit að ákaflega erfitt er að draga mörkin. Hvenær er auðvelt að komast í slíkan síma? Verður hann að vera í sömu íbúð o.s.frv.?

Ég skil lögin þannig og reglugerðina, að ekki sé um að ræða einstaklingsherbergi, þeir sem þar búi eigi ekki að fá síma. En er það ekki næst? Það geta verið mörg einstaklingsherbergi saman og langt í síma í neyðartilfellum? Hvar á í raun og veru að draga mörkin? Mér sýnist að þeir, sem þannig er ástatt um, kunni engu síður að þurfa að komast skjótt í síma og geta jafnvel átt lengri leið í síma en þeir sem búa í íbúð þar sem kannske er sími á ganginum fyrir framan. Það litla, sem ég hef haft tækifæri til að kynna mér þetta mál, hefur einmitt slík dæmi borið á góma og virðist valda þeim, sem framkvæma, vissum efasemdum.

Ég legg eindregið til að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, kalli póst- og símamálastjóra fyrir sig og krefji hann upplýsinga um hvers vegna lögin hafa ekki verið framkvæmd. Ég skal gera það sama. Ég endurtek að vitanlega ber að framkvæma lögin, hvað vitlaus sem þau eru. Hins vegar kann vel að vera að ég beiti mér fyrir breytingu á þessum lögum og leiti leiða til að tryggja þeim, sem hér er um að ræða, símaþjónustu, jafnvel víðtækari en lögin gera ráð fyrir. Endurtek ég dæmið um þá sem búa í einbýlisherbergjum og þurfa vissulega ekki síður á slíkri þjónustu að halda en aðrir.