27.11.1980
Sameinað þing: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (901)
57. mál, takmörkun aðgangs erlendra herskipa og herflugvéla að landhelgi Íslands
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég tel að sú till., sem hér er flutt af hv. þm. Benedikt Gröndal, 4. þm. Reykv., sé góðra gjalda verð og hreyfi athyglisverðu máli, og ég legg á það áherslu sem mína skoðun og reyndar þingflokks Alþb., að eðlilegt sé að þessi till. fái mjög vandlega athugun í utanrmn. hv. Alþingis og að stuðlað verði að því, að þangað komi allar hinar bestu upplýsingar, sem nauðsynlegar eru til að geta glöggvað sig á málinu, og í framhaldi af því yrði unnið að setningu þeirrar reglugerðar eða annarra stjórnvaldsákvarðana sem kann að þurfa í þessum efnum. Það kann að vera að hér þurfi einnig lagaatbeina til, en ég átta mig ekki á því á þessu stigi, hvort svo er eða hvort reglugerðarsetning dugir.
Ég vil í þessu sambandi minna á það meginatriði, að vitaskuld stafar vandi þjóðarinnar í þessum efnum fyrst og fremst af því, að við erum með í landinu erlendan gest, bandarískt herlið, og þetta herlið skapar hættu fyrir þjóðina á hverjum tíma og eykur þann vanda sem við er að glíma fyrir þessa þjóð, m.a. varðandi meðferð mála eins og þeirra sem hreyft er af hv. 4. þm. Reykv.
Það er nauðsynlegt í þessu sambandi að hugleiða hvort ekki væri hugsanlegt að ná um það samkomulagi, ef hv. Alþ. áttar sig á því að hér sé stigið rétt skref, að ganga lengra og ákveða hér á Alþ. með meirihlutasamþykkt að Alþingi Íslendinga vilji að Ísland og landhelgi Íslands verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði, að tekin verði um það ákvörðun af hálfu Alþingis Íslendinga að Ísland verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæði og hér sé bönnuð, í landhelginni og á landinu, umferð með kjarnorkuvopn með þeirri hættu sem slíkt veldur.
Ég held að í rauninni hljóti allir hv. alþm. að átta sig á því hvílík hætta er fólgin í því fyrir tilvist þessarar þjóðar ef ekki eru settar strangar skorður við meðferð og flutningi kjarnorkuvopna um þetta land. Og ég vil einnig leggja á það áherslu, að ég held að allir þm. hljóti að gera sér vel jóst að ef Alþingi Íslendinga lýsti yfir, að Ísland hlyti að eiga að vera kjarnorkuvopnalaust svæði og landhelgi Íslands, þá væri það stórkostlegt innlegg í baráttu þjóða heimsins fyrir afvopnun og friði. Eins og sakir standa núna í heiminum er ekki vanþörf á slíku innleggi. Staðreyndin er sú, að stórveldin virðast um þessar mundir vera að magna stríðsæsingaáróður sinn ef eitthvað er, miklu frekar en hitt. Þær yfirlýsingar, sem fram komu hjá einstökum aðilum, t.d. í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, voru ákaflega ískyggilegar, svo að ekki sé meira sagt, í þessum efnum. Þar virtust þeir menn helst fá hljómgrunn sem hvöttu til mestra stríðsæsinga. Ástandið í Sovétríkjunum í þessum efnum er einnig mjög hrikalegt, svo sem innrásin í Afganistan er gleggst dæmi um.
Þetta eru málefni sem lítil þjóð eins og Íslendingar verður að glöggva sig alveg sérstaklega á. Og það er fleira í þessu. Menn þurfa að átta sig á ástæðunum fyrir því, að svo ófriðvænlega horfir í heiminum núna og menn skaka vopnin stórum hver að öðrum. Ástæðan er auðvitað sú, að auðlindastríðið í heiminum, baráttan um skiptingu auðæfa heimsins fer harðnandi. Hún fer stöðugt harðnandi og kann að verða þröngt fyrir dyrum lítillar þjóðar í þeim átökum um auðlindir heimsins, átökum á milli stórvelda og auðhringa, og þá verður nauðsynlegt fyrir þjóð eins og Íslendinga að taka ákvörðun sem lýsir öflum friðarins en ekki ófriðarins í þeirri alþjóðlegu umræðu sem fram fer. Hér gæti verið um að ræða stórkostlegt fordæmi Íslendinga, sem hefði áhrif um allan heim og gæti lýst öðrum þjóðum fram á veginn með svipuðum hætti og fordæmi Íslendinga gerði þegar landhelgi okkar var færð út í 12 mílur, 50 mílur og 200 mílur.
Ég vil einnig í þessu sambandi minna hv. Alþingi á að fyrir nokkrum árum urðu hér á þinginu verulegar umr. um friðlýsingu Norður-Atlantshafsins. Hv. þáv. þm. Jónas Árnason flutti um þau mál ítarlegar ræður hér á Alþingi og þau voru rædd rækilega úr þessum ræðustól. Ég tel einnig að friðlýsingarmálin ætti að skoða einmitt í tengslum við þá till. sem hér er flutt. Ég er sannfærður um að einnig þeir hv. alþm., sem telja nauðsynlegt fyrir Ísland að vera aðilar að Atlantshafsbandalaginu, hljóta að viðurkenna hvað væri jákvætt lóð á vogarskálar heimsfriðarins ef Ísland og Norður-Atlantshafið væru friðlýst svæði undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna t.d., eins og mig minnir að reyndar hv. Alþfl.-þm. hafi lagt til í ákveðinni tillögu árið 1972 eða 1973, ef ég man rétt.
Ég taldi rétt að koma þessum sjónarmiðum hér á framfæri um leið og ég ræði um þessa tillögu. Það er væntanlega alveg ljóst með flutningi þessarar tillögu að tilgangur tillögugerðarinnar er að skapa þjóðinni aukið öryggi og friðvænlegra umhverfi en ella væri. Ég tel að með því að stíga slíkt skref gæti Alþingi í raun og veru verið, ef samstaða yrði um það, að koma til móts við þau sjónarmið sem Alþb.-menn hafa einkum staðið fyrir á Alþingi, koma til móts við þau sjónarmið annars vegar að lýsa Ístand kjarnorkuvopnalaust svæði með samþykkt og yfirlýsingu Alþingis og hins vegar að stuðla að friðlýsingu Norður-Atlantshafsins.