27.11.1980
Sameinað þing: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (909)
57. mál, takmörkun aðgangs erlendra herskipa og herflugvéla að landhelgi Íslands
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Umræður um þessa þáltill. hafa að nokkru leyti snúist upp í það að verða almennar umræður um varnarmál, enda ekki óeðlilegt. Hins vegar er það furðulegt þegar hv. þm. Stefán Jónsson kemur hér í þennan ræðustól og talar um að við skulum ekki „drepa á dreif umræðum um þessa tillögu með því að fara að ræða þessi mál almennt“, en gerir það síðan sjálfur í kjölfar flokksbróður síns, hæstv. félmrh., sem því miður er ekki lengur hér í þingsalnum. Ég hefði þó gjarnan viljað að hann væri hér, vegna þess að ég ætlaði að beina til hans nokkrum orðum. Þetta er furðuleg hræsni hjá hv. þm. Stefáni Jónssyni og raunar einkenni á öllum umræðum þeirra Alþb.-manna um þessi mál.
Eitt og annað hefur komið hér fram sem ástæða er til að drepa á.
Hæstv. félmrh. vildi ekki ræða almennt um slökunarstefnu, eins og honum var þó gefið tilefni til, heldur vildi um það eitt tala, að herskip stórveldanna, ættu að vera einhvers staðar annars staðar en hér. Þetta er auðvitað góðra gjalda vert allt saman, og auðvitað væri ákjósanlegast að vera taus við alla slíka umferð og öll slík tól og tæki. En við verðum að horfast í augu við raunveruleikann eins og hann er. Alþb. virðist ekki aðeins lifa í heimi sem er utan efnahagslegrar hugsunar, heldur oft í heimi sem er utan allrar rökrænnar hugsunar.
Ég er ekkert hissa á því, að hæstv. félmrh. skyldi standa hér upp og snúa þessari umræðu upp í það að tala almennt um varnarmál Íslands, vegna þess að hann er nýkjörinn formaður þess flokks sem lengst hefur haft það á stefnuskrá sinni, að Ísland hætti þátttöku í vestrænu varnarsamstarfi og að varnarliðið, sem hér dvelst, fari burt. Þetta er allt skiljanlegt þegar haft er í huga að Alþb. situr nú í fjórða sinn í ríkisstjórn sem ætlar ekkert að gera í þessum málum að þess óskum. Alþb. hefur auðvitað ævinlega fórnað fyrir ráðherrastólana því stefnumáli sínu, að héðan ætti varnarliðið að hverfa og við að hætta þátttöku í samstarfi vestrænna þjóða. Það er skiljanlegt að nýkjörinn formaður þurfi nú, þegar þetta gerist í fjórða skiptið í ríkisstjórn, að róa sitt fólk.
Ýmislegt af því, sem hæstv. félmrh. sagði, er þess eðlis, að það kallar á að krafist sé nánari skýringa. Hann sagði t.d. að nú væri verið að gera Ísland að miðpunktinum í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjamanna. Því er eðlilegt að spyrja: Með hvaða hætti er verið að gera það? Hvaða breytingar er verið að gera hér á eðli varnarstöðvarinnar eða varnarstöðinni sjálfri? Hvaðan kemur hæstv. félmrh. þessi vitneskja? Þetta væri fróðlegt að fá að vita.
Hann sagði líka að Alþfl. vildi ganga lengra í þessu máli. Lengra en hvað sagði hann ekki, lengra en hverjir. En það er auðvitað alveg rétt, að Alþfl. vill að hér séu varnir, en það vill Alþb. ekki.
Annað atriði, sem hér hefur borið mjög á góma og menn hafa talað stórum orðum um, er friðlýsing og kjarnorkuvopnalaus svæði. Allt er þetta góðra gjalda vert. Enn verðum við þó að horfast í augu við raunveruleikann. Í norrænum umræðum hefur þessa hugmynd um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum afar oft borið á góma. Hins vegar hafa þær umræður ævinlega hljóðnað þegar minnst hefur verið á það, að slíku kjarnorkuvopnalausu svæði hlyti það auðvitað að fylgja, að herstöðvar Sovétríkjanna á Kólaskaga yrðu lagðar niður. Það hlyti að fylgja þar með og vera í beinu samhengi við þetta. Þar er eitthvert mesta víghreiður veraldarinnar, mörg hundruð ferkílómetra herstöð þar sem saman er safnað einhverjum mesta vopnabúnaði sem sögur fara af, rétt við þröskuld Norðurlandanna. Þá hljóðna venjulega þessar umræður um sinn.
Eins og fram hefur komið hér í þessum umræðum er búið að marglýsa því yfir, að Ísland sé og muni verða kjarnorkuvopnalaust land. En það er bara eins og Alþb. trúi ekki ráðherrum eigin ríkisstjórna þegar þeir tala um þessi mál. Það hefur ekki gerst einu sinni, tvisvar eða þrisvar, það hefur gerst langtum oftar.
Ég ætta ekki, herra forseti, að hafa þessi orð öllu fleiri, en ég ítreka ábendingu mína um tvískinnung þeirra Alþb.-manna þegar þeir tala annars vegar um að það megi ekki drepa umræður um þessa tillögu á dreif með því að fara að ræða um þessi mál almennt, en hefja sjálfir síðan, eins og hæstv. félmrh. gerði og hv. þm. Stefán Jónsson bergmálaði hér áðan, almennar umræður um varnarmálin. Af því tilefni stóð ég hér upp. Ýmsum fullyrðingum þeirra í þessum efnum má ekki láta ómótmælt hér á hinu háa Alþingi.