27.11.1980
Sameinað þing: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (923)
132. mál, bætt nýting sjávarafla
Flm. (Gunnar R. Pétursson):
Herra forseti. Það gleður mig, að menn virðast hafa áhuga á þessu máli, og hefði farið vel á því, eins og einn hv. þm. sagði, að sjútvrh. væri hér í salnum.
Það kom fram hjá einum hv. þm., að talsvert beri á skemmdum í fiski sem er seldur á erlendum markaði. Ég er satt að segja þeirrar skoðunar, að það mætti gjarnan draga allmikið úr þeirri sölu, vegna þess að mér finnst að sala á þessu hráefni okkar beint, óunnu, sé ekki eðlinu samkv. hagkvæm.
Spurningin var um það líka, hvort skipshafnir mundu una því að landa annars staðar en heima hjá sér. Því miður hefur það verið svo í gegnum árin, að sjómenn eru ekki spurðir um það, hvar þeir eigi að landa og hvar þeir vilji landa, heldur verða þeir að gefa það eftir að landa þar sem þeim er sagt. Síldarsjómenn hafa ekki landað heima hjá sér. Loðnusjómenn landa ekki heima hjá sér. Vertíðarbátar á vertíðum landa ekki heima hjá sér. Þetta er ekki spurningin um það. Ég held að sjómenn séu ekki fyrirstaðan, þeir hafi aldrei verið fyrirstaða.
Hv. 4. þm. Vesturl. lýsti skemmdum fiski sem kom á land úr togarafarmi á s.l. sumri. Það skal ég ekki segja um. Upplýsingar mínar hef ég aftur á móti frá nokkrum frystihússtjórum og er haft orðrétt eftir þeim, að það er alger viðburður ef það kemur skemmdur fiskur í land.
Eins og sjá má miðast till. fyrst og fremst við togara, svo að það er kannske eðlilegt að talið berist meira að þeim, en það má gjarnan ræða um fleira en togara. Það kemur fram hjá hv. 4. þm. Vesturl. einnig, að netafiskur sé ekki lélegt hráefni. Síðan kemur fram hjá hv. 5. þm. Vestf. að þetta sé skæklatog, einn hæli þessu og annar hinu. Það er ekki rétt hjá hv. 5. þm. Vestf. að þetta sé skæklatog. Mismunurinn er sá, að það er ekki sama hvaðan gert er út. Það er alls ekki sama hvort gerður er út netabátur frá Ísafirði eða frá Rifi eða Ólafsvík, það er mikill mismunur, og t.d. frá Vestmannaeyjum. Ég satt að segja þekki þar ekki til nú. Og mig tangar að upplýsa hv. 5. þm. Vestf. um það líka, að útivistarhámark er á togurum í dag.
Það er eitt sem mér finnst að hafi komið fram í máli manna og þá sérstaklega hjá hv. 9. landsk. þm., að það er hálfgert feimnismál að athuga hvernig ástand frystihúsa er í landinu. Það er staðreynd, eins og ég sagði áðan, að ég þekki ekki nógu vel til í Vestmannaeyjum. Þeir voru mjög framarlega þar þegar ég fór þaðan. Hvort þeir eru framarlega enn eða hafa dregist aftur úr, það þori ég ekki að segja um. En ég þekki til víða annars staðar og það veit ég, að þar eru gömul frystihús og þau eru engan veginn undir það búin að taka við stórum förmum af fiski. Það er fullkomin ástæða til þess fyrir ríkisvaldið, sem er að skenkja þessum sömu byggðarlögum togara, að sjá til þess að hægt sé að vinna aflann þegar hann kemur í land. Og það er alls ekki hægt að segja að það sé afsökun eða til sóma að hengja fyrsta flokks þorsk upp í skreið. Hann á ekki að vera í skreið og hann á ekki heldur að fara í saltfisk. Hann á að fara í frystar afurðir, sérstaklega þegar þess er gætt, að menn fá ekki að veiða allan þann fisk sem menn gætu veitt, flotinn er orðinn svo stór í dag að hann fer létt með að veiða allan þann fisk sem má veiða. Ég er sannfærður um að það er ekki nokkur kúnst að koma þeirri stjórnun á löndun að skipin séu ekki eins og einn hv. þm. sagði, að taka auka hal rétt fyrir lokunardag og fylla sig þannig.