27.11.1980
Sameinað þing: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (925)

132. mál, bætt nýting sjávarafla

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Ég stend hér aðeins upp til að taka undir þá skoðun hv. þm. Ólafs Þórðarsonar, að það skrapdagakerfi, sem verið hefur í gildi og stefnt er að að verði í gildi á næsta ári, sé ekki sú lausn sem æskileg sé. Ég tek undir það, og mín skoðun er reyndar sú, að ef gæðaeftirlit væri hert og sú stefna væri tekin upp að halda utan um hráefnið okkar þannig að út úr því kæmi alltaf fyrsta flokks vara, hvort sem hún færi í salt eða skreið eða í gegnum frystihúsin, þá þyrfti ekki þetta skrapdagskerfi. Ég er nokkurn veginn viss um að ef hert væri á eftirliti með togurum, úthaldsdagar þeirra takmarkaðir og gengið ríkt eftir því, að ekki yrði unninn eldri fiskur en fimm daga eða eitthvað þess háttar, væri hægt með aðeins þeirri einu leið að takmarka þann afla sem að landi þyrfti að berast. Einnig þyrfti að takmarka netafjölda til að auka gæði netafisksins yfir hávertíðina, því að það vitum við og það er ekkert launungarmál, að þar er oft fiskað meira af kröftum en að það sé verið fyrst og fremst að skipuleggja það að góður fiskur komi í land.

Bannstefnan hefur einmitt þau áhrif, eins og ég nefndi hér áðan, að það kemur meira og meira af vondum fiski. Það er reynt að fiska af kröftum það tímabil sem leyfilegt er og reynt að ná eins miklu í land og mögulegt er á þeim stutta tíma sem leyft er, þannig að þessi nái svolítið meiru en hinn af þeim skammti sem leyft er að veiða. Ég held að við eigum ekkert að metast um það, hver sé mestur sökudólgur, en það hefur verið hálfgert feimnismál bæði hvernig farið er með fiskinn í fiskvinnslustöðvunum og hvernig farið er með hann á veiðitímabilinu. Þetta eru feimnismál, sem við höfum ekki þorað að taka á, eða höfum ekki getað tekið á kannske réttara sagt. Ég held að fleiri og fleiri geri sér grein fyrir því, að það sé fyrst og fremst með gæðaeftirlitinu sem eigi að stjórna fiskveiðinni.

Ég þakka flytjanda þessarar till. fyrir að hafa fært þetta mál inn á hv. Alþingi, þó að það hefði getað verið betri tími til umræðunnar heldur en nú var valinn.