02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1039 í B-deild Alþingistíðinda. (950)
90. mál, flugsamgöngur við Vestfirði
Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):
Herra forseti. 29. maí s.l. var samþykkt hér á Alþingi svo hljóðandi þáltill., þ.e. þál. um athugun á úrbótum á flugsamgöngum við Vestfirði:
„Alþ. ályktar að fela samgrh. að láta athuga nú þegar með hvaða hætti tryggja megi sem bestar og öruggastar flugsamgöngur við Vestfirði.
Athugun þessi skal fyrst og fremst beinast að eftirfarandi:
1. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á Ísafjarðarflugvelli.
2. Endurbótum og lengingu á flugbrautinni við Holt í Önundarfirði og flugbrautinni í Bolungarvík með það í huga að þær gegni því hlutverki að vera varavellir fyrir Ísafjarðarflug.
3. Öryggisútbúnaði og lýsingu á Þingeyrarflugvelli.
4. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á Patreksfjarðarflugvelli.
Athugun þessari skal hraðað svo sem frekast er kostur.“
Þessi þál, var samþ., eins og áður segir, 29. maí s.l. Ég hef vegna þessarar samþykktar leyft mér að bera fram á þskj. 100 fsp. til samgrh. svo hljóðandi:
„Hvað líður framkvæmd ályktunar Alþingis frá 29. maí s.l. um athugun á úrbótum í flugsamgöngum við Vestfirði?“