02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1039 í B-deild Alþingistíðinda. (951)

90. mál, flugsamgöngur við Vestfirði

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil fyrst upplýsa að eftir að þessi þál. var samþ. s.l. vor var málið sent flugráði til meðferðar, sem mun hafa beðið flugmálastjórn að sinna þessu máli, og þar hefur vinna verið í gangi að því. Sumt liggur fyrir og annað ekki, sem ég mun koma að hér á eftir. Jafnframt vil ég upplýsa að að ósk Fjórðungssambands Vestfjarða skipaði ég nefnd til að vinna að alhliða athugun á samgöngumálum á Vestfjörðum og m.a. og ekki síst hvernig þau yrðu tengd þeirri heilsugæslu sem þar eins og annars staðar er safnað á fáa staði. Sú nefnd hefur, að því ég best veit, þegar fjallað um þetta og hefur reyndar einnig óskað eftir að fá vissar upplýsingar sem ég mun einnig rekja á eftir.

Ég skal svo koma að einstökum þáttum þáltill.

Í fyrsta lagi er óskað eftir því, að athuguð verði lýsing og öryggistæki vegna aðflugs og lendingar á Ísafjarðarflugvelli. Þetta mál hefur reyndar lengi verið í athugun. Ég vil vekja athygli á því, að þegar árið 1978 var komið upp miðlínusendi í Ísafjarðardjúpi, sem er gífurlega mikill öryggisþáttur fyrir aðflug á Ísafjarðarflugvelli og kannske meiri en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir. Einnig var þetta sama ár komið upp fjarlægðarmæli fyrir Ísafjarðarflugvöll að Ögri. Einnig hann er mjög mikið öryggistæki. Þetta kemur hvort tveggja til viðbótar við þau tæki sem þarna voru áður. Að vísu var radarinn þar með lagður niður, enda miðlínusendirinn miklu öruggara tæki en radarinn var, en radíóviti hefur verið í Ögri áður og var nánast eina tækið til staðsetningar við aðflug að Ísafirði og alls kostar ófullnægjandi. Úr þessu hefur sem betur fer verið bætt.

Þá hefur farið fram nokkur athugun á lýsingu Ísafjarðarflugvallar. Í fyrsta lagi hefur farið fram athugun í samráði við Félag ísl. atvinnuflugmanna eða öryggisnefnd þess félags á aðflugshallaljósum á Ísafjarðarflugvelli. Því miður koma þau ekki að gagni. Til að aðflugshallaljós geti komið að gagni þarf aðflug að vera beint að brautinni nokkra fjarlægð. Eins og þeir, sem þarna þekkja til, vita er ekki um það að ræða. Aftur á móti hef ég óskað eftirkví eftir nokkra athugun að gert verði ráð fyrir lýsingu á Ísafjarðarflugvelli. Að vísu upplýsir öryggisnefnd Félags ísl. atvinnuflugmanna og sömuleiðis hefur flugmálastjóri upplýst að snúningssvæði flugvéla þarna á Ísafirði sé allt of þröngt til þess að unnt sé að leyfa aðflug að Ísafjarðarflugvelli með lýsingu. Það stafar af þeim fjallahring sem þarna er fyrirstaða, en hins vegar væri unnt að leyfa umferð minni flugvéla um völlinn, og það tel ég ákaflega nauðsynlegt einmitt til þess að bæta úr því, sem ég nefndi áðan, samgöngum vegna heilsugæslustöðva. Þess vegna óskaði ég eftir þessu þegar í fyrra. Í tillögum þeim, sem flugráð sendi frá sér beint til fjvn. nú, var þetta hins vegar ekki tekið með. Ég hef skrifað fjvn. og bent á, hve nauðsynlegt þetta er vegna heilsugæslustöðvarinnar, og óskað eftir því, að þessi liður verði tekinn inn nú. — Ég vona þá að svarað sé sæmilega 1. lið.

Um 2. lið, sem fjallar um endurbætur og lengingu á flugbrautinni í Holti í Önundarfirði og flugbrautinni í Bolungarvík með það í huga að þær gegni því hlutverki að vera varavellir fyrir Ísafjarðarflug, hefur töluvert verið fjallað. Í ljós kemur að það eru til allt of litlar veðurmælingar til samanburðar. Þess vegna hefur verið óskað eftir slíkum veðurmælingum. En það verður að segjast, því miður, að það tekur nokkurn tíma. Það er ekki hægt að byggja slíkan samanburð á veðurmælingum á þessum stöðum á einum vetri. Það þarf lengri tíma til að gera sér grein fyrir því. Af viðræðum, sem ég hef átt við sérfróða menn, eru efasemdir um að Bolungarvíkurbrautin geti nokkru sinni nægt af öryggisástæðum sem varaflugvöllur fyrir Ísafjörð, a.m.k. fyrir stærri flugvélar. Því hefur athygli beinst meira að Holti, en reyndar einnig verið ákveðið að skoða Þingeyrarflugvöll í því sambandi. Þar eru til meiri veðurfarsupplýsingar og því auðveldara um samanburð. Þessi samanburður er því í fullum gangi. Hitt er svo annað mál, að þarna þarf fleira að skoða. Það þarf að sjálfsögðu að tryggja betur en orðið er samgöngur á milli slíks flugvallar og Ísafjarðarsvæðisins.

Um öryggisbúnað og lýsingu á Þingeyrarflugvelli vil ég segja það, að þangað hefur verið keyptur fullkominn slökkvibúnaður sem að mati öryggismanna var talið það mikilvægasta fyrir þann flugvöll. Lýsing hefur verið á dagskrá. Það hagar að vísu betur til en á Ísafjarðarflugvelli að því leyti, en þó hefur á þessu stigi málsins ekki verið talið rétt að setja þar upp fasta lýsingu. Þar eru að sjálfsögðu til öryggisljós sem notast má við í neyðartilfellum. En lýsing mun þó verða á dagskrá mjög fljótlega. Aftur á móti er nú ákveðið að setja svokallaðan markvita við Göltinn eða hjá Galtarvita, sem mun stórlega bæta öryggi flugvéla sem í slæmum veðurskilyrðum þurfa að fara þar niður til lendingar á flugvellinum á Þingeyri. Jafnframt er í athugun og reyndar komið inn á áætlun að setja radíóvita við Þingeyri og þá markvita þar líka, sem mundi stórlega bæta aðflug að því leyti til, að það yrði þá styttra við sæmileg skilyrði. Hins vegar eru aðstæður þarna þær, að það er erfitt að ná vélum niður við Þingeyri í mjög slæmum skilyrðum.

Talið hefur verið rétt að láta Patreksfjarðarflugvöll ganga að sumu leyti á undan í þessum málum og kem ég þá að 4. lið þessarar þál., þ.e. lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á Patreksfjarðarflugvelli. Þar er því að svara, að nýr og fullkominn slökkvibúnaður hefur verið keyptur til Patreksfjarðarflugvallar og á Patreksfirði verður í þessum mánuði lokið við að setja upp aðflugshallaljós og aðflugsljós, þannig að sá völlur verður sá fyrsti á Vestfjörðum með slíkri lýsingu, enda aðstaða þar best í þessu sambandi.

Ég vil segja það að lokum, að flug er Vestfjörðunum ákaflega mikilvægt vegna samgönguerfiðleika á landi. Því var fullt samkomulag um að auka verulega fjármagn til flugvalla á Vestfjörðum á yfirstandandi ári, og ég vænti þess, að svo geti orðið áfram. Ég er sammála því, sem mér finnst fyrst og fremst liggja í þessari þáltill., að leggja beri höfuðáherslu á öryggismálin. Það tel ég að hafi verið gert. Það hafa verið skiptar skoðanir um lýsingu vegna erfiðrar aðstöðu. M.a. hafa flugmenn margir hverjir lagst gegn lýsingu, óttast að hún kunni að leiða til þess, að farið verði að fljúga á erfiða flugvelli við slæma aðstöðu. En vegna heilsugæslunnar er lýsingin aftur komin til athugunar og nú lögð áhersla á að fá hana, sérstaklega á meginflugvöllinn.

Um aðra flugvelli þarna ætla ég ekki að ræða, því ekki er um þá sérstaklega spurt, en vil þó geta þess, að unnið er að lengingu á vellinum á Bíldudal, þannig að hann verði af öryggisástæðum fullnægjandi, og sömuleiðis að stórbættum öryggistækjum fyrir flugvöllinn á Suðureyri, sem er einn af þeim varasömustu á svæðinu og má ekki heldur gleymast, m.a. gert ráð fyrir aðflugshallaljósum inn á þann flugvöll.