02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í B-deild Alþingistíðinda. (964)
355. mál, tilkynningarskylda íslenskra skipa
Ingólfur Guðnason:
Herra forseti. Eins og aðrir, sem hér hafa tekið til máls, vil ég þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni.
Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða fyrir þá sem það varðar. Ég fagna því, að það eru væntanlegar úrbætur á þessu sviði, og vonast til þess, að þær verði gerðar á öruggan hátt. En til þess að undirstrika mikilvægi þess, að úrbætur fáist á þessu sviði, og til þess að undirstrika það ófremdarástand, sem ríkir á þessu sviði, ætla ég til skýringar að geta þess, hvernig þetta er í minni heimabyggð.
Frá Hvammstanga verða bátar að sigta í klukkutíma áður en þeir eiga þess kost að láta vita, að þeir séu farnir á hafið og á sama hátt geta þeir síðast látið vita af sér þegar þeir eiga klukkutíma siglingu eftir í land. Þetta eru smáir bátar sem eru gerðir út frá Hvammstanga, en það eru einnig gerðir út bátar frá Blönduósi. Það eru einmitt þessa dagana líklega sjö bátar sem róa frá Hvammstanga. Þetta eru yfirleitt litlir bátar. Í skammdeginu og illum veðrum getur eitt og annað gerst á einum klukkutíma. Mér er einnig sagt að aðeins tveir bátar, sem róa frá Hólmavík, hafi það sterkar stöðvar að þeir geti látið vita af sér úr heimahöfn.
Ég segi þetta aðeins til að undirstrika, hversu alvarlegt ástandið er, og þakka aftur hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni fyrir að hafa flutt þessa fyrirspurn.