02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1054 í B-deild Alþingistíðinda. (968)

97. mál, varaflugvöllur fyrir millilandaflug

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Þótt það mál, sem hér er til umræðu, sé vissulega áhugavert og um það margt hægt að segja eru því miður ekki aðstæður til þess hér og nú undir þessum kringumstæðum.

Í sambandi við þá fsp., sem þeir hv. þm. Norðurl. e., Guðmundur Bjarnason og Árni Gunnarsson, hafa lagt hér fram um varaflugvöll fyrir millilandaflugið, vil ég vona að ekki verði farið að efna til deilna um staðarval, því svo afgerandi og ákveðin samhljóða skoðun kemur fram í áliti þeirra sérfræðinga, er fengnir voru til umsagnar um staðarval varaflugvallar fyrir millilandaflugið. Í umsögn þessara manna kemur óyggjandi fram að Sauðárkróksflugvöllur sé heppilegastur flugvalla til að gegna þessu hlutverki. Kemur þar mjög margt til sem veldur því áliti.

Vegna ummæla hv. þm. Guðmundar Bjarnasonar áðan og þess, sem hann las upp úr samþykkt bæjarstjórnar Húsavíkur, þar sem m.a. er mælt með því að kveðja til erlenda aðila til að skoða þessi mál, vil ég taka fram að ég tel heppilegra og skynsamlegra fyrir okkur að treysta þeim flugmönnum íslenskum, sem þjóna okkur og fljúga til þessara valla, betur en einhverjum erlendum aðilum.

Það er nauðsynlegt að taka þessa ákvörðun fljótt og búa þennan varavöll þannig að hann geti sem best sinnt þessu hlutverki sínu. Hér er um mjög mikið öryggismál að ræða, bæði fyrir millilanda- og innanlandsflugið. Hér er einnig um mikið fjárhagslegt atriði að ræða hvað flugfélögin varðar, en þau þurfa ávallt að hafa svo miklar eldsneytisbirgðir í þeim flugvélum, er hér fara um, að þær geti flogið til og frá Íslandi án lendingar, til annars flugvallar í Evrópu, ef Keflavíkurflugvöllur er lokaður.

Með tilkomu varaflugvallar eins og till. er gerð um mundu umframeldsneytisbirgðir millilandavélanna verða hverfandi þáttur, sem aftur á móti gæfi möguleika til aukinnar nýtingar flugvélanna. Þótt ég geti um þennan þátt undirstrika ég þó að það, sem mestu varðar, er það sem að öryggi lýtur, og þar ber okkur skylda til að búa sem best um.

Herra forseti. Ég kom hér til að leggja áherslu á mikilvægi þess, að ákvörðun verði tekin sem allra fyrst um varaflugvöll fyrir það flug sem um Ísland fer. Samhljóða álit færustu manna um staðarval liggur fyrir. Það er von mín, að ekki verði farið að deila um þá niðurstöðu og tefja þannig framgang þessa hagsmunamáls flugsins og þeirra er að því starfa. Það hlýtur að vera ósk allra þm., að nauðsynlegar framkvæmdir verði hafnar við varaflugvöll og þær geti hafist sem allra fyrst.