22.10.1980
Efri deild: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

Umræður utan dagskrár

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég var satt að segja undrandi á orðum hæstv. ráðh. Þegar ég benti honum á að beita sér fyrir því að fella þessa skattlagningu niður núna á þessu ári var mér að sjálfsögðu eins og honum fyllilega ljóst að það hefði orðið að gera með lagabreytingu. Ég vil lýsa því yfir, að hæstv. ráðh. getur reiknað með mínu atkv. í þeirri atkvgr. Og ég hélt að hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj. hefðu meiri hluta á Alþ. Annað eins hefur einstakur ráðh. gert í að beita sér fyrir lagasetningu og að leggja þetta til við Alþingi.

Ég vitnaði beint í frv. hæstv. ráðh. út af álagningu tekjuskattanna í ár. Þar stendur hreinum og beinum stöfum, eins og ég las áðan, að hann hefur þarna 11/2 milljarð í tekjuskatti fram yfir fjárlagaáætlun. Það stendur neðst á bls. 175, hæstv. ráðh., ef þú ert að leita að þessu. (Fjmrh.: Já, það er líka á bls. 176.) Já, já, en ef hæstv. ráðh. ætlar endalaust að halda sér í það, að kærur geti hugsanlega orðið meiri á þessu ári en oft áður og innheimtist minna af sköttum núna, og halda því fram endalaust í umræðum um skattálögur sínar verður hann að gera það, en það er auðvitað hans mat. Ég sé ekki betur en að það sé algerlega út í loftið að vera að halda sig við þau rök enn. Það liggur orðið alveg svart á hvítu fyrir, að álagning tekjuskatta fór fram úr fjárlagaáætlun um 1.5 milljarða a.m.k.

Ég þarf ekkert að segja meira um þetta. Ég ættaði aðeins að bjóða hæstv. ráðh. liðveislu mína í því að koma frv. um niðurfellingu skatta á börnum að þessu sinni í gegnum Alþingi.

Ég er þeirrar skoðunar, að þessi regla sé í grundvallaratriðum ekki röng. Þegar um sérsköttun hjóna er að ræða, eins og nú er, er mjög eðlilegt að um sérsköttun barna sé að ræða líka. Annars væri erfitt að segja á hvort hjóna tekjur barna eiga t.d. að bætast. Það er atriði sem er alveg ljóst að er útilokað að framkvæma svo eðlilegt sé. Þess vegna hlýtur, ef á að vera um það að ræða að leggja tekjuskatt á börn, að vera um sérsköttun að ræða. Það er alveg ljóst. Ég er ekkert að mæla gegn þeirri reglu, en hins vegar þegar á fyrsta ári, sem þetta er gert, liggur álagningin ekki fyrir fyrr en seint í október, þá hlýtur það að vera sanngirniskrafa að það sé skoðað að framkvæmd þess verði a.m.k. frestað um eitt ár.