02.12.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (975)
97. mál, varaflugvöllur fyrir millilandaflug
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Þau undur hafa gerst, að hv. 6. landsk. þm. hefur verið öllum öðrum hógværari í málflutningi hér í þinginu í dag. Hann hefur aðeins leitað eftir því að fá varaflugvöll fyrir Ísafjarðarflugvöll og nauðsynlegustu umbætur á sama tíma og uppi er kröfugerð um það hér um bil í hverju kjördæmi að fá varaflugvöll fyrir millilandaflug. Ég vænti að ráðh. hugleiði þetta og taki hógværðina fram yfir mestu hörku í þessum efnum.