02.12.1980
Sameinað þing: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (987)

64. mál, launasjóður rithöfunda

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Hér liggur fyrir till. til þál., og það, sem vekur kannske fyrst undrun mína, er að hún skuli vera borin upp í Sþ., en ekki í annarri hvorri deildinni, þannig að hún fari til menntmn. svo sem ég hefði talið eðlilegt.

Ég get byrjað á því að lýsa þeirri skoðun minni, að það verður ekki svo skipað þessum málum að allir verði ánægðir, hvort heldur þessu verður úthlutað af sjö manna nefnd, þriggja manna nefnd eða þó peningar verði auknir sem til úthlutunarinnar verða. Ég verð líka að lýsa því yfir, að ég lít ekki svo á að söluskattur af bókum sé framlag rithöfunda. Söluskatturinn er framlag þeirra, sem greiða fyrir þessar bækur, hann er skattur þeirra ef við skoðum það ofan í kjölinn.

Það vekur einnig undrun mína, að hv. formaður þessara samtaka skuli telja það máli sínu til framdráttar í bréfi, sem hann sendir alþm., að bera það á þá, að það sé aðeins um pólitískt kvótakerfi að ræða fremur en listrænt mat þegar þm. úthluti slíkum styrkjum sem þessum, eftir að hafa fengið það á sig frá 43 rithöfundum, að nefndin, sem kosin er af rithöfundum, hafi ekki gætt þess að úthluta eftir hæfileikum, heldur bera þeir það á hana, að hún hafi látið pólitískt mat ráða.

Ég held að þessi lög frá 1975 hafi ekki verið reynd að fullu og mér sýnist vitlegt, þegar um svo unga lagasetningu er að ræða, að láta reyna meira á framkvæmd þeirra en gert hefur verið, og það sé ekki nauðsyn að fara út í endurskoðun þessara laga. Mikill meiri hluti rithöfunda telur að þeir eigi sjálfir að fá að sjá um þessa úthlutun. Ég er hlynntur því, að á það verði látið reyna, hvort þeir bera ekki gæfu til þess að leysa þau mál meira í friði en verið hefur. En ef svo fer, að deilurnar halda áfram að vera jafnharðar, kæmi vissulega til greina að endurskoða þetta, þó að mér sýnist að þeim málum verði aldrei svo skipað að alger friður verði þar um.