22.10.1980
Efri deild: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér mikið í þessar umræður, en aðeins rifja það upp, að Sjálfstæðisfl. fór með stjórn fjármála hér í fjögur ár. Þá vann hann fyrst og fremst tvennt sem markvert verður talið: Annars vegar er setning skattlaga. Þm. Sjálfstfl. koma nú hér hver á fætur öðrum nánast grátklökkir af hneykslan yfir hvað það séu vond lög, en höfundarréttur þess ákvæðis, sem þeir hafa verið að gagnrýna hér, er alfarið og algjörlega hjá Sjálfstfl. (SalÞ: Hefur hann meirihluta á þingi?) Hann hafði hann, því miður, þá ásamt Framsfl. sem hann vélaði til samþykkis við þetta frv. — Það er að vísu rétt, að hv. þm. Salome Þorkelsdóttir sat ekki þá á þingi og hefur hreinan skjöld í þessu efni. En grátkonur eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson, sem hér töluðu áðan, hafa enga slíka afsökun því þeir greiddu atkv. með þessu ákvæði skattalaganna á þeim tíma. Höfundur þessa barnaskatts, sem svo hefur verið kallaður í dag, eru því þeir félagar Matthías Á. Mathiesen, Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson og þeir aðrir sem með þeim unnu að þessum skattalögum.

Svo kemur hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson og segir að þessi ágætu skattalög megi ekki koma til framkvæmda, það verði fyrir alla muni að setja hér sérstök lög, eins og hv. þm. Lárus Jónsson sagði, til að koma í veg fyrir þessa vitleysu sem var í skattafrv. sem Matthías Á. Mathiesen lagði fram á sínum tíma. Við sátum hér í marga mánuði á síðasta þingi til að leiðrétta fjölmörg röng ákvæði í þessum skattalögum. Þá voru þeir að setja hér sérstakar nefndir samkv. kröfu bændastéttarinnar í landinu. Þá voru þeir að setja hér sérstakar nefndir að kröfu Félags einstæðra foreldra. Og nú á að setja sérstaka athugun í gang vegna skattlagningar á börnum. Ég tel það litla karlmennsku af þm. Sjálfstfl. að þora ekki að standa við þau skattalög sem þeir sjálfir áttu höfundarrétt að, heldur reyna að þyrla hér upp einhverju moldviðri í samvinnu við Morgunblaðið til að breiða yfir það að sá, sem samdi þau skattalög sem nú gilda í þessu landi, var fjmrh. Sjálfstfl. í samvinnu við Framsfl.

Það er líka annað sem hv. þm. Sjálfstfl. vilja láta gleyma, og það er sú mikla skuldasúpa sem Sjálfstfl.. safnaði þegar hann fór með stjórn ríkisfjármálanna. Almenningur í landinu greiðir nú milljarða í skatta vegna þeirra skulda sem fjmrh. Sjálfstfl., Matthías Á. Mathiesen, safnaði á sínum tíma. Ef hv, þm. Lárus Jónsson er á annað borð að bjóða samvinnu í skattamálum skal ég gera honum annað tilboð. Það er að við setjum sérstakan skatt, sem við getum kallað Matthíasarskatt, sem verði lagður á til að greiða upp þær skuldir sem ríkissjóður þarf enn að greiða vegna óstjórnar Sjálfstfl. á ríkisfjármálunum, og það verði á skattseðlum næsta árs sérstakur dálkur undir heitinu „Matthíasar-skattur“, svo að almenningur í landinu fái að vita klárt og kvitt hvað hann þarf að greiða mikið af tekjum sínum næsta ár og næstu ár eða áraraðir til að greiða upp þessar óreiðuskuldir Sjálfstfl. Og ég skora á hv. þm., ef hann er svona samvinnufús til breytinga á skattalögum, að lýsa yfir hér að hann sé tilbúinn til að afmarka það alveg sérstaklega hver þessi skuld er — ég skal taka þátt í slíku — svo það þurfi ekkert að deila um hver skuld Sjálfstfl. hafi verið við almenning í landinu og hvað skattborgarar í landinu verða nú að greiða af vöxtum og afborgunum af þeirri skuldasúpu sem Sjálfstfl. safnaði. Svo mætti gjarnan reikna út hvað mætti byggja marga skóla, hvað mætti byggja mörg dagvistarheimili, hvað mætti gera mikið í félagslegri þjónustu við aldraða og fjölmargt annað af framförum í þessu landi fyrir það fjármagn sem við verðum á þessu ári og um næstu áraraðir að nota til að greiða niður skuldasúpu Sjálfstfl. við Seðlabankann og aðra aðila hérlendis og erlendis.

Ég get sagt hv. þm. Sjálfstfl. það að lokum, að við erum ekkert hræddir, þm. þessarar ríkisstj., við umr. um skattamál. Við erum heldur ekkert hræddir við að efna til samvinnu um breytingar á þessum skattalögum. En þá skulum við gera það þannig, að það sé almenningi í landinu fyllilega ljóst hvað hann er að borga hverju sinni. Og ég skora á hv. þm. Sjálfstfl. að þora í samvinnu við okkur þm. stjórnarliðsins að marka hér sérstakan tekjustofn, Matthíasarskatt, til að greiða niður skuldir ríkissjóðs sem til var stofnað í ráðherratíð Matthíasar Á. Mathiesen.