07.12.1981
Neðri deild: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (1002)

75. mál, aðstoð í skattamálum

Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd viðbótarsamning við Norðurlandasamning um aðstoð í skattamálum. Frv., ef samþykkt verður, heimilar ríkisstj. að staðfesta breytingu á Norðurlandasamningi frá 1972 um aðstoð í skattamálum. Samkv. 2. gr. frv. fengi breytingin lagagildi hér á landi þegar viðbótarsamningurinn hefur öðlast gildi.

Breyting sú, sem hér um ræðir, var undirrituð í júní s. l. og er hún birt sem fskj. með frv. Sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um hana, en vísa til fskj. með frv. Í stuttu máli má segja að hún fjallar annars vegar um upplýsingaskyldu varðandi fasteignir og hins vegar um ráðstafanir til að tryggja greiðslu á skattkröfum. Gert er ráð fyrir að breyting þessi auðveldi innheimtu skatta og skattaeftirlit.

Þetta frv. hefur fengið afgreiðslu í Ed., var samþykkt þar óbreytt.

Að lokinni þessari umr. leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.