07.12.1981
Neðri deild: 18. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)
129. mál, lokunartími sölubúða
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég skal ekki eyða tíma hv. þm. í langt mál um það frv. sem hér liggur fyrir og ég hef gerst meðflm. að.
Ég held að það hljóti að vera hverjum manni ljóst, að lög þau nr. 17 frá 1936, sem nú eru í gildi um lokunartíma sölubúða, eru með öllu úrelt og gagnslítil eða gagnslaus eins og þau nú eru. Eins og getið var áðan hefur borgarstjórn Reykjavíkur rætt þessi mál töluvert og hefur sitt sýnst hverjum um margumrædda lokunartíma og þeir verið ákafastir talsmenn laga og reglna um það mál sem síst skyldi, sem sagt talsmenn hins frjálsa framtaks, og hafa mál snúist þar nokkuð einkennilega.
Nú er það svo, að t. d. borgarráð Reykjavíkur — mér er ekki eins vel kunnugt um hvernig þessu er háttað úti á landsbyggðinni — situr nú tvisvar í viku og ákveður hvaða tiltekinn kaupmaður má hafa verslun sína opna á einhverjum tilteknum tíma einhvern ákveðinn vikudag. Ég held að þarna sé illa farið með vaskan og góðan starfskraft.
Ég vil taka undir það með hv. þm. Vilmundi Gylfasyni, að auðvitað hafa allar þjóðfélagsaðstæður gerbreyst. Nú eru konur ekki lengur húsmæður sem hafa allan daginn til að versla, eins og áður var. Um 80% giftra kvenna og líklega meira stunda vinnu utan heimilis og sennilega allar einstæðar mæður, þannig að þessir aðilar komast hreinlega ekki til að versla á öðrum tíma en utan venjulegs vinnutíma.
Þau sjónarmið, sem Kaupmannasamtökin hafa frá upphafi aðhyllst í þessu máli, eru m. a. þau, að vinnuöryggi starfsmanna sé ógnað. Þessir menn virðast algerlega gleyma því, að á síðasta þingi voru samþykkt lög um lágmarkshvildartíma. Ég held því að það sé nokkuð öruggt að starfsfólkið hafi allan rétt á því að hvíla sig lögboðinn tíma. Í öðru lagi held ég að það geti komið sér ákaflega vel fyrir marga þjóðfélagsþegna, ekki síst t. d. einstæðar mæður, að vinna einmitt á þessum tíma, sem er utan venjulegs dagvinnutíma. Sannleikurinn er sá, eins og við könnumst vel við sem rekum dagvistarheimili borgarinnar, að engir eru í meiri vandræðum með að nýta þá þjónustu í raun og veru vegna langs vinnutíma en einmitt verslunarfólk. Stjórn dagvistar í Reykjavík hefur raunar skrifað Verslunarmannafélaginu bréf vegna þess máls. Við kannanir, sem gerðar hafa verið á ákaflega löngum og að allra mati óeðlilega löngum dvalartíma barna á dagvistarheimilum, hefur komið í ljós, að þar er einkum og sér í lagi um að ræða börn verslunarfólks. Ég held því að starfsmenn verslananna hafi ekki síður hér hagsmuna að gæta.
Um vinnu í landinu almennt gilda að sjálfsögðu lög, og um kjör starfsmanna gilda m. a. lög um lágmarkshvildartíma. Ég held að ég megi fullyrða að lög um hvernig störfum sé háttað við hinar ýmsu atvinnugreinar, séu ekki endilega talin nauðsynleg að öðru leyti, og mér kemur það ákaflega á óvart að Kaupmannasamtökin skuli ekki treysta sér til að hafa um það einhverjar reglur innan sinna vébanda hvernig þessum málum sé skynsamlega fyrir komið. Menn minnast kannske deilu um bókasölu í landinu ekki alls fyrir löngu, á síðasta vetri minnir mig. Ég veit ekki annað en bóksalar í landinu séu búnir að leysa þetta sín á milli. Þar var uppi sama sjónarmiðið, að verslun, stórmarkaður, eins og Hagkaup mætti ómögulega selja bækur. Síðan hefur auðvitað komið í ljós að bóksala er ekki hvað minnst einmitt í þessari verslun, þar sem fólk, sem hefur lítinn tíma til að versla á auðveldast með að koma og nýtur nú þessara þæginda, getur keypt sem flestar vörur í sömu versluninni.
Það eru á þessu margar hliðar. Ég er alveg sammála 1. flm., hv. þm. Vilmundi Gylfasyni, um að smákaupmennirnir, þ. e. þeir sem reka minni verslanir, eiga hér líka að sjálfsögðu hagsmuna að gæta, eins og þeirra að geta haldið verslunum sínum opnum þegar þeir treysta sér til.
Mér er alveg fyrirmunað að skilja hvers vegna menn eru svona mikið á móti því, og einkum Kaupmannasamtökin, að menn fái að haga þessum málum sínum nokkuð að eigin hyggjuviti og reynslu. Ég vil enn minna á deilu, sem varð nokkur í borgarstjórn Reykjavíkur, um sölustarfsemi á götum úti í miðbænum. Kaupmenn héldu að tilveru sinni væri ógnað með markaði þeim sem þar hefur risið. Í ljós hefur komið að þetta þrífst aldeilis prýðilega hvað við hlið annars. Við, sem trúum á frelsið í landinu, eins og ég, hv. þm. Vilmundur Gylfason og Árni Gunnarsson, viljum styðja við þetta frjálsa framtak og leyfa mönnum að nota eigið hyggjuvit, en teljum jafnsjálfsagt að Alþingi Íslendinga setji lög um lágmarkshvildartíma svo að vinnuþreki fólks sé ekki ofboðið. Ég vænti þess, að menn reyni að hugsa þessi mál í alvöru og þeir, sem vilja hag verkafólks í landinu sem bestan, verði ekki til þess að tefja að þetta mál fái skjótan framgang.