08.12.1981
Sameinað þing: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1264 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)

61. mál, greiðslufyrirkomulag fjárveitinga til opinberra framkvæmda

Fyrirspyrjandi (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svar við þessari fsp., þó að ég verði að lýsa því, að mér finnst það skjóta nokkuð skökku við þær upplýsingar sem fram hafa komið frá fulltrúa ríkisendurskoðunar. Það hefur komið fram hjá hæstv. ráðh., að ekki sé um það að ræða að Innkaupastofnunin hafi með höndum fjármagn öðruvísi en í viðkomandi framkvæmd sem þá og þá er í meðferð. Ef þetta er rétt er það í andstöðu við þær upplýsingar sem ég hef með höndum.

Einnig finnst mér athyglisvert að ef um seinagang er að ræða í þessum málum, þá virðist mega rekja það til annarra ráðuneyta sem viðkomandi verkþáttur er tengdur.

Ég ætla ekki að fara í umr. hér og nú um þetta atriði sérstaklega. Ég spurði um þetta á sínum tíma í upphafi þings vegna þeirra upplýsinga sem ég hef í höndum um þetta mál frá ríkisendurskoðun. Ég vil þó lýsa því hér yfir, að ég tel fulla ástæðu til að taka lögin um skipan opinberra framkvæmda til rækilegrar endurskoðunar og mun síðar beita mér fyrir að það verði gert. Ég tel einnig ástæðu til í þessu sambandi að láta ríkisendurskoðun gefa skýrslu um þann þátt mála sem ég hef hér spurt um. Ég mun einnig beita mér fyrir því, ekki síst með tilliti til þess, að þær upplýsingar, sem hér hafa komið fram, sem ég er ekkert að draga í efa að eru réttar miðað við það sem fjmrh. hefur fengið upplýst, stangast mjög á við það sem komið hefur fram í samtölum við fulltrúa ríkisendurskoðunar.