08.12.1981
Sameinað þing: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1273 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
91. mál, Kröfluvirkjun
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég svara hér fsp. frá hv. 3. þm. Vestf. varðandi Kröfluvirkjun, en eins og hann gat um er nokkuð umliðið síðan málefni hennar hefur borið hér á góma. Vorið 1980 svaraði ég fsp. skriflega með yfirliti sem lagt var fram hér á Alþingi, en varðandi svör við þessari fsp. nú hef ég leitað til umsjónaraðila virkjunarinnar, Rafmagnsveitna ríkisins, sem falið var í ársbyrjun 1979 að annast rekstur hennar og standa fyrir framkvæmdum og gera tillögur um framkvæmdir vegna Kröfluvirkjunar. Frá sama tíma var afnumið það skipulag sem áður gilti um Kröflunefnd, sem lögð var niður, og fyrirmæli til Orkustofnunar sem orkuöflunaraðila í því formi sem verið hafði.
En ég ætla að þessum inngangi loknum að ganga beint að því að svara fsp. hv. fyrirspyrjanda. Hver er orðinn heildarframkvæmdakostnaður við Kröfluvirkjun ásamt fjármagnskostnaði? er fyrsta spurning hans.
Svar: Heildarframkvæmdakostnaður ásamt fjármagnskostnaði við Kröfluvirkjun miðað við árslok 1981 er áætlaður 616.9 millj. kr. Er þá miðað við verðlag á miðju þessu ári. samkv. samantekt ríkisbókhalds, sem nær til ársloka 1980. Ef þessi upphæð er talin til verðlags á miðju þessu ári nemur hún 543 millj. kr. Framkvæmdir 1981 við Kröfluvirkjun eru áætlaðar 33.6 millj. kr. samkv. fjárlögum og 3.8 millj. kr. þar til viðbótar eiga að koma úr rekstri Kröfluvirkjunar eða alls 37.4 millj. kr. Þá eru áætlaðar vaxtagreiðslur samkv. fjárlögum 1981 36.5 millj. kr., þannig að úr þessum tveimur þáttum ársins 1981 verður bókfærð aukning Kröfluvirkjunar 73.9 millj. kr. og heildarfjárfesting miðað við þetta við Kröfluvirkjun í árslok 1981 þannig áætluð 616.9 millj. kr. á áætluðu meðalverði 1981.
Önnur spurning er svohljóðandi: Hver eru áætluð rekstrarútgjöld og rekstrartekjur virkjunarinnar á yfirstandandi ári? Hvert þyrfti orkuverðið að vera frá Kröfluvirkjun, miðað við áformaða orkuframleiðslugetu virkjunarinnar í ár, til þess að orkuverðið gæti staðið undir rekstrar- og fjármagnskostnaði?
Svar í a-lið: Rekstraráætlun fyrir árið 1981 er þannig: Raforkusala 14.7 millj., rekstrargjöld 10.9 millj., rekstrarafgangur á árinu 1981 áætlaður 3.8 millj. kr. Raforkusala er reiknuð á verði Landsvirkjunar inn á Norðurlinu, eftir byggðalinunni, og rekstrargjöld sundurliðast þannig: Stjórnun 1 millj. 270 þús., launatengd gjöld 3 millj. 110 þús., rekstur og viðhald 1 millj. 530 þús., rekstrarrannsóknir 350 þús., bifreiðar og vinnuvélar 380 þús., mötuneyti 460 þús., Kröfluvegur 190 þús., húseignir í Kröflu 360 þús., stöðvarvarðarhús 140 þús., umbætur vegna rekstrar 890 þús., hreinsun borhola 390 þús. og vélaupptekt 1 millj. 830 þús. kr., samtals 10.9 millj. kr. eins og áður getur. Engar afskriftir eru áætlaðar né bókfærðar í rekstrargjöldum. Fjármagnskostnaður er eignfærður á virkjunina, en er ekki gjaldfærður.
Í b-lið er svarið: Ef afskriftir af öllum fjárfestingarkostnaði kæmu til og væru metnar 3.5% á ári mætti áætla afskriftir 1981 21 millj. 640 þús. kr. Fjármagnskostnaður samkv. fjárlögum 1981 áætlaður 36 millj. 450 þús. kr. Heildarrekstrar- og fjármagnskostnaður yrði því rekstrargjöld 10.9 millj. kr., afskriftir 21 millj. 640 þús. og fjármagnskostnaður 36 millj.450 þús. eða alls 68 millj. 990 þús kr. samkv. þessum tölum þyrfti verð frá Kröfluvirkjun að hækka um 369% frá því verði sem hefur gilt á árinu 1981. Þess ber þó að geta, að ekki er öll fjárfestingin í notkun enn sem komið er og er það raunar vel kunnugt. T. d. er búið að reisa stöðvarhús fyrir báðar vélasamstæður virkjunarinnar og kaupa báðar vélasamstæður fyrir alllöngu.
Þriðja spurning: Hvenær er talið líklegt að Kröfluvirkjun nái fullri orkuframleiðslugetu, hvað er ráðgert að til virkjunarinnar þurfi að kosta miklu fjármagni til þess að svo geti orðið, miðað við þá reynslu sem fengist hefur af borunum, og hvenær má áforma að virkjunin geti sjálf af tekjum sinum staðið undir: a) rekstrarkostnaði, b) rekstrar- og fjármagnskostnaði?
Svar: Í bréfi Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens hf. og Virkis hf. er gerð grein fyrir áætlun um viðbótarstofnkostnað vegna Kröfluvirkjunar á árunum 1982–1990. Tímans vegna rek ég ekki þetta bréf, en get afhent hv. fyrirspyrjanda ljósrit af því. Heildarfjárfesting í árslok hvers árs fyrir árin 1982–1990 óafskrifuð yrði sem hér segir á verðlagi 1981:
Framkvæmdir áranna 1982–1990 eru áætlaðar 344 millj. kr. alls eða að jafnaði 38 millj. 222 þús. kr. á ári. Miðað við árslok 1980 eru það 542 millj. 993 þús., og síðan er það rakið frá ári til árs og er á árinu 1990 960 millj. 883 þús. kr. Áætlun þar að lútandi liggur fyrir sundurliðuð og er hægt að afhenda hv. fyrirspyrjanda hana ef hann hefur áhuga á. Forsendur áætlunarinnar eru þessar helstar: Magn raforku er samkv. áætlun Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens, verð raforku er meðalverð Landsvirkjunar fyrir raforkusölu inn á Norðurlínu, byggðalínuna, og er 0.239 kr. á kwst. eða tæplega 24 aurar. Rekstrargjöld hafa verið áætluð í samráði við Einar Tjörva Elíasson yfirverkfræðing við Kröfluvirkjun. Afskriftir eru áætlaðar 3.5% á ári að meðaltali af allri fjárfestingu í Kröfluvirkjun, og fjármagnskostnaður er áætlaður 4.25% á föstu verðlagi.
Þetta eru svör við spurningum hv. fyrirspyrjanda. Um Kröfluvirkjun, forsögu og horfur mætti vissulega margt segja svo og þýðingu virkjunarinnar í sambandi við rekstur á núverandi línukerfi landsins, en ég ætla ekki að fara út í þá þætti hér nema sérstakt tilefni gefist til.