08.12.1981
Sameinað þing: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1043)

348. mál, lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Hæstv. viðskrh. sagði að það væri ekki rétt að hafa olíustyrkina svo háa, að það yrði ódýrara að kynda með olíu en að nota innlenda orkugjafa, og átti þá auðvitað við raforku. Það er alveg rétt, að raforkan er dýr, og það eru sumar hitaveitur líka. Sumar hitaveitur eru sjö sinnum dýrari en t. d. á Reykjavíkursvæðinu. Það þyrfti víðar að jafna.

Ég vil vekja athygli á því, að á þessu ári er reiknað með 130 millj. í orkujöfnunargjald. Við settum sérstök lög til þess að bjarga neyð fólks, sem bjó við olíuupphitun, — settum sérstök lög snemma á árinu 1980 um sérstakan skatt til þess. Við innheimtum á þessu ári 130 millj., ættum að nota 50 samkv. fjárlögum, en gerum það ekki. Á næsta ári er reiknað með að innheimta 190.1 millj. í þennan sérstaka neyðarskatt fyrir fólk sem kyndir með olíu, en það á ekki að nota samkv. fjárlögum nema 30 millj. Ég vek athygli á því, að hér er verið að breyta þessum neyðarskatti í eyðsluskatt fyrir ríkissjóð á sama hátt og gert var á sínum tíma með viðlagasjóðsgjaldið.