20.10.1981
Sameinað þing: 7. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

13. mál, orlofsbúðir fyrir almenning

Helgi Seljan:

Herra forseti. Ekki ætla ég að blanda mér í þann hluta framsögu hv. 1. flm. þessarar till. sem laut að landnýtingu og eign á þjóðarauðlindum og almennum eignarrétti á landi. Mér skildist á hv. 1. flm. að þetta væri smáupphitun hvað það mál varðaði, þ. e. aðaltillögu Alþfl. um þjóðareign á landinu, sem ég hef oft áður rætt hér á Alþingi og skal glaður eiga orðræður við aðra þm. áfram, þar með talda þá Alþfl.-menn, þegar að þeirri till. kemur sem hér hefur verið rækilega kynnt. Ekki skal ég draga úr umr. um það mál almennt, hver þjóðareign á landinu skuli vera. Ég ætla ekki heldur að ræða um óeðlilega leigu á ríkisjörðum sem hér var ýjað að. Ég veit hreinlega ekki um hana. Ég þekki hana ekki úr mínu nágrenni og vil þess vegna ekki fara með neinar fullyrðingar um það sem ég hef ekki nokkra vissu um að sé rétt. Ég hlýt hins vegar að draga í efa — eða vona það a. m. k. — að slík óeðlileg leiga á ríkisjörðum til fjársterkra aðila til að leika sér með sé sem allra minnst, ef þá nokkur. Till. þessi um orlofsbúðir fyrir almenning á jarðeignum í eigu ríkissjóðs er hins vegar allrar athygli verð, og ég styð eindregið að athugað verði með hvaða hætti og að hvaða leyti henni verði hrundið í framkvæmd.

Þessi till. er að nokkru hliðstæð till. sem við nokkrir þm. Alþb. höfum flutt þrívegis áður og varðar hugsanlega nýtingu ríkisjarða í þágu aldraðra, till. sem er endurflutt enn einu sinni og nú látin taka til bújarða almennt, þó að enn sé lögð aðaláhersla á ríkisjarðirnar. Ég tek undir það, að full ástæða er til að kanna nýtingu ríkisjarða almennt og einkum þeirra sem geta verið ágætar til ýmissa annarra nota frekar en búrekstrar. Ég veit t. d. um nokkrar slíkar jarðir sem sakir lendrýmis og landgæða eru mjög hæpnar til búrekstrar í þeim mæli sem nú er almennt reiknað með, en gætu mjög vel hentað til annarra afnota. Þá á ég ekki við jarðir í þágu fjársterkra aðila sem hafa lítinn áhuga á þessum jörðum af því að þær eru nánast það sem kölluð eru kot. Inn í þetta gætu vissulega komið nýjar búgreinar. Þó yrði það ævinlega í litlum mæli, að ég hygg.

Ég býst við að það sé rétt, að ríkisjarðir séu misvel setnar, svo sem er um bújarðir almennt. Þó er vitanlegt að í ríkisjarðir — á það legg ég áherslu af því ég veit um dæmi þess — hafa sótt ýmsir þeir sem lítt hafa nálægt búskap komið og ættu ekki að gera það í raun, þó erfitt sé um slíkt að dæma. Hið lága afgjald ríkisjarðanna freistar margra sem í vandræðum eru og mér eru kunn mörg dæmi þess, að í ríkisjarðir hafa sótt menn sem ætla sér t. d. að byrja nýtt og betra líf og halda að einmitt í búskap geti þeir höndlað hamingjuhnossið, þó að harkalegur veruleikinn hafi afsannað það h já allt of mörgum. Ég veit um mörg miður falleg dæmi slíkrar ráðstöfunar á ríkisjörðum sem m. a. hefur valdið því, að þær hafa um of lent í vanrækslu og jafnvel niðurníðslu, þó að þau dæmi séu hverfandi miðað við þann fjölda sem situr þessar jarðir með prýði og bætir þær á margan veg í ræktun og byggingu. Sem betur fer þekki ég um það miklu fleiri og hin ágætustu dæmi. En allt kallar þetta á nána athugun á því, hvernig best og hagkvæmast megi nýta þessar jarðeignir ríkisins. Og í öllu talinu um þetta landleysi almennings í þéttbýlinu er sjálfsagt að kanna að hve miklu leyti hið opinbera geti komið þar að liði með svipaðri tilhögun og þessi till. gerir ráð fyrir, svo og sú till., sem hér er á dagskrá einnig og áður hefur verið um fjallað, varðandi dvalarheimili fyrir aldrað fólk. Ég held því, þó að sumt í framsögu hv. 1. flm. hafi verið á þann veg að ég geti ekki undir það tekið, að athugun þessa máls sé tímabær. Og ég vil mæla með þeirri athugun.