08.12.1981
Sameinað þing: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1282 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)

348. mál, lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég verð að láta í ljós undrun mína yfir því, hve ríkisstj. er í rauninni treg í þessu máli. Það hefur legið fyrir alllengi að mismunurinn á húshitunarkostnaðinum er eitthvert mesta byggðavandamálið hér á landi. Á hinn bóginn hefur það komið fram, ekki aðeins í þessu máli, heldur ýmsum öðrum þjóðþrifamálum, að ríkisstj. er býsna seig að halda eftir í ríkissjóði smáskildingi til þess að hafa fallegri stöðu um áramótin. Þannig var það um hækkun orkujöfnunargjaldsins á sínum tíma, sem olli því að nokkrir aurar fengust í afgang um áramót. Um næstu áramót á að nota Framkvæmdasjóð öryrkja til að bæta stóðu ríkissjóðs og þannig mætti áfram telja.

Auðvitað hefur skattheimtan orðið svo mikil í landinu, að það eru nógir peningar til til þess að jafna húshitunarkostnaðinn, það er engin spurning um það. Skattheimtan var þyngd á þessu ári þvert ofan í yfirlýsingu forsrh. um áramótin. Skattheimtan verður enn þyngd stórlega á næsta ári, það bera fjárlög með sér og þjóðhagsáætlun ríkisstj. En það er annað sem skortir, og það er viljinn. Það er annað sem ríkisstj. lætur sitja fyrir. Ef það væri jafnmikill áhugi á því að koma til móts við húseigendur úti á landsbyggðinni eins og að endurreisa Hólastað, þá vantaði ekki peninga í fjárhirslu ríkissjóðs. Ef það væri jafnmikill áhugi á þessu máli og að borga fram hjá fjárlögum stórfé til Siglósíldar, þá væri ekki vandi hjá húsbyggjendum. Ef það væri jafnmikill áhugi á þessu máli og að byggja án heimildar nýtt strandferðaskip, þá mundi þetta mál komast í höfn. Þannig er hægt að halda lengi áfram að telja upp hvernig þetta mál liggur fyrir. En staðreyndin er sú að viljann vantar.

Oft nær viljinn ansi skammt,

um er þörf að vanda.

Úrbæturnar allar samt

á sér láta standa.