08.12.1981
Sameinað þing: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)

348. mál, lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana

Egill Jónsson:

Herra forseti. Það hefur borist hér í tal að umr. hafi átt sé stað í Ed. um þetta sama efni og nú er rætt. Það er að sjálfsögðu alveg rétt. Ég verð að segja það alveg eins og er, að miðað við þau orð, sem hæstv. viðskrh. lét falla þá, finnst mér nú kveða við nokkuð annan tón. Ég ætla ekki að endurtaka þessar umr. efnislega, en ég vil aðeins benda á það, að nú er viðskrh. farinn að bera það fyrir sig, að ekki sé hægt að hækka olíustyrkinn vegna þess að tiltekin nefnd hafi ekki lokið sínum störfum. Ég má þá kannske minna hæstv. ráðh. á það sem hann sagði þegar málið var til umr. fyrir tæpum tveimur árum, þegar hann hét því, að það yrði sitt fyrsta verk að skipa nefnd þá þegar til þess að endurskoða lögin. Hér er þannig um hreinan fyrirslátt að ræða hjá hæstv. ráðh.

Að öðru leyti vil ég bara vona að það, sem hæstv. ráðh. sagði í Ed., fái að gilda sem hans afstaða, því að hann sagði þá alveg berum orðum að það væri leikur einn og fyllilega réttlætanlegt að hækka olíustyrkinn fyrir þetta síðasta tímabil, og ekki einungis það, heldur að greiða uppbót aftur í tímann fyrir allt þetta ár. Ég vona að þegar ráðh. verður búinn að leggja sig á rétta hlið næstu nótt og vaknar upp til starfa á nýjum degi muni hann eftir því sem hann sagði í gær, en ekki því sem hann sagði hér áðan.