08.12.1981
Sameinað þing: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)

Umræður utan dagskrár

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Mér finnst vinur minn, hv. 3. þm. Norðurl. e., Lárus Jónsson, heldur bjartsýnn að ætlast til að fá svör frá þessum hæstv. ráðherrum um efnisleg atriði. Það hefur ekki verið ven ja þeirra að svara slíku, síst þegar mikið er fram undan í efnahagsmálum. Þeim finnst ekki nein ástæða til að virða Alþingi Íslendinga svars, og er auðvitað hæstv. forsrh., sá sem erlendis er nú, fremstur í þeim flokki. En hver dregur dám af sínum sessunaut, og þessir hæstv. ráðh., sem hér eru inni, eru sýnilega sama marki brenndir. En það eru ákveðnar spurningar sem ég hygg þó að þessir hæstv. ráðh. muni svara og hljóta að verða að svara.

Þá er það fyrst, að upplýst er hér að hæstv. sjútvrh. muni ekki koma heim fyrr en seinni part næstu viku, en hann er formaður aðalstjórnarflokksins, Steingrímur Hermannsson. Ég spyr hæstv. viðskrh. eða hæstv. landbrh.: Er þetta rétt, að formaður Framsfl., hæstv. sjútvrh., muni ekki koma til landsins fyrr en seinni part næstu viku eða sem sagt um það leyti sem þing á að fara í jólafrí, eftir því sem ríkisstj. hefur gefið út?

Ég spyr í annan stað: Hvenær kemur hæstv. dómsmrh. heim? Er það vitað?

Ég spyr í þriðja stað: Hvenær kemur þingflokksformaður Alþb. heim? Er það vitað? (GJG: Hann kemur á morgun.) Það er vitað. (HBl: Þeir verða allshugar fegnir þegar þeir geta svarað einhverju.)

Þá er spurt: Hvenær kemur formaður fjh.- og viðskn.? Það er sami maðurinn. Hann mun þá líka koma á morgun. Þetta getur líklega passað vegna þess að það er búið að boða fund í fjh.- og viðskn. á morgun og bæði á fimmtudegi og föstudegi, en þar hefur ekki verið haldinn fundur í viku. Er það varla von þegar formaðurinn er að stjórna heiminum og annar nm., eins og hér hefur verið upplýst, hæstv. forsrh., er með honum í því.

Þá er spurt: Hvenær kemur þingflokksformaður Framsfl. heim? Er það vitað?

Og þó að þar sé ekki um þm. að ræða leyfi ég mér líka að spyrja: Hvenær kemur aðstoðarmaður forsrh. heim, formaður efnahagsmálanefndarinnar hvorki meira né minna?

Vonandi fást nú svör við þessu. Það er ekki svo að skilja, að ég sakni þessara manna neitt sérstaklega, og kannske væri best að ráðherrarnir væru allir erlendis, en þá verða náttúrlega einhverjir aðrir að taka þeirra sæti. En það er kannske annað sem er enn meiri þörf á að fá svör við, og það er þetta: Er enginn forsrh. á Íslandi í nærri því vikutíma? Hæstv. forsrh. fór af landinu í síðustu viku, á fimmtudaginn hygg ég að það hafi verið. Þá hitti ég hæstv. dómsmrh. og spurði hann hvort hann væri forsrh., og ég skildi hann svo að svo væri. Er það unnt, hæstv. forseti eða hæstv. ráðherrar, að enginn forsrh. sé á landinu? Að vísu kemur hæstv. landbrh. hér upp þegar nefndur er staðgengill forsrh., en hann er héðan úr forsetastúku ávallt ávarpaður landbrh. Er enginn forsrh. á Íslandi í heila viku? Samrýmist það stjórnarskipun landsins? Ég óska eftir að hæstv. forseti tjái Alþingi hvort enginn forsrh. sé á landinu? Ég held að fólkið eigi heimtingu á að fá að vita hvort enginn hafi formlegt vald til að boða ríkisstjórnarfundi hvað sem kynni að gerast í landinu (Gripið fram í: Og rjúfa þing?) Já, jafnvel það.

Nei, þetta er nefnilega allt saman á sömu bókina lært, og þótt menn brosi hér og ég gerði mig sekan um það áðan að eiga dálítið erfitt með að tala vegna þess að ýmislegt hlægilegt gerist, þá er um fullkomin alvörumál að ræða. Alþingi Íslendinga er lamað, gersamlega lamað, hálfum mánuði fyrir jólaleyfi, á þeim tíma sem venjulega eru mestu annirnar. Hvers vegna er það lamað? Vegna þess að ráðamenn þjóðarinnar sinna ekki skyldustörfum sínum. Þeir eru út og suður. Þeir sjást ekki í þingsölum ráðherrarnir nema endrum og eins. Þeir virða Alþingi ekki svars. Þeir virða þjóðina ekki svars. Þeir blaðra kannske eitthvað út og suður utan þings. Skyldi það vera að hæstv. sjútvrh. hafi verið sendur út til þess að hann talaði ekki út og suður, alls staðar annars staðar en í Alþingi? Það er kannske ekki alveg öruggt að hann hafi komist nógu langt, vegna þess að símasambönd eru enn þá til. En þetta eru sem sagt þær spurningar sem ég er hér um bil viss um að annar hvor hæstv. ráðh. muni svara.

Hæstv. forsrh., — vonandi réttilega, ég vona að svo sé, að það sé hér inni sitjandi hæstv. forsrh., — talaði áðan um að það hefðu verið köpuryrði af hálfu hv. 1. þm. Reykv. þegar hann sagði að þrír bestu mennirnir í efnahagsnefndinni eða eitthvað slíkt, þeir sem hæfastir hefðu verið, væru nú viknir burt. (Gripið fram í: Skynsamari helmingurinn.) Skynsamari helmingur, endilega það. Ætlar einhver maður t. d. að halda því fram, að Eggert Haukdal sé ekki skynsamari maður en Jón Ormur Halldórsson eða Halldór Ásgrímsson ekki skynsamari maður en Guðmundur G. Þórarinsson eða Geir Gunnarsson ekki skynsamari maður en Ólafur Ragnar Grímsson? Auðvitað er að skoðun hver er skynsamur og hver ekki skynsamur. g er sömu skoðunar og hv. 1. þm. Reykv. Ég tel ekkert vafamál að þeir þrír sem fóru séu skynsamari en þeir þrír sem eftir eru. Og hvers vegna skyldu þeir hafa farið? Af því að þeir eru skynsamir. Þeir eru það skynsamir að fara. Þeir vilja ekki taka þátt í þessu.

Auðvitað víkja mennirnir þess vegna. Þeir eru nægilega skynsamir til að sjá að þetta gengur ekki lengur, blaðran er sprungin. Þess vegna ætla þeir auðvitað ekki að taka þátt í hringavitleysunni, en láta hinum það eftir, sem eru ekki nógu skynsamir til þess að neita að sinna þessum störfum. Þetta er það sem við blasir. Þetta veit öll þjóðin. Þetta á auðvitað eftir að koma á daginn.

Vonandi fer ekki þessi stjórn að hrökklast frá strax. Ég skal gera mitt til að halda í henni lífinu svolítið lengur, vegna þess að það þarf að sjá enn þá betur framan í andlitið á þessum ósköpum.