08.12.1981
Sameinað þing: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)
Umræður utan dagskrár
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er náttúrlega tilgangslaust að vera að þrátta um þetta og segja alltaf það sama. En hér eru a. m. k. tveir ráðherrar úr ríkisstj., sem sat frá 1979–1980, sem ekki hafði löggjafarvald, ef ég man rétt, vald til útgáfu brbl. Hvers vegna hafði sú ríkisstj. ekki vald til að gefa út brbl.? Var það vegna þess að hún gaf einhverja yfirlýsingu hér á Alþingi? Hér er forsrh. þeirrar ríkisstj. Gaf hann einhverja yfirlýsingu hér á Alþingi um að hann hefði afsalað sér löggjafarvaldinu í jólaleyfinu? Ég man ekki eftir því. Hann fór einfaldlega ekki fram á að Alþingi afsalaði sér löggjafarvaldinu. Það var það sem ekki gerðist. Löggjafarvaldið var áfram í höndum Alþingis. Þetta er kjarni málsins.
Ég ætla ekki að rifja það upp við þetta tækifæri, herra forseti, hver það er sem les faðirvorið aftur á bak, en við vitum hverjir lesa lagasafnið aftur á bak og stjórnarskrána. Það dylst engum.