08.12.1981
Sameinað þing: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)
32. mál, stefnumörkun í landbúnaði
Flm. (Egill Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir þau orð sem hann lét hér falla. Ég er honum að sjálfsögðu alveg hjartanlega sammála um að hvorki ræða hans né mín né þessi tillöguflutningur geti orðið til mikils ágreinings okkar á milli. Það er reyndar svo, að mjög stór hópur fólks í þessu landi á samleið með þeirri stefnu sem mótuð er í þessari tillögu.
Á síðasta vetri var fjallað um þessa till. í atvmn. Sþ. og hjá nefndarmönnum öllum ríkti góður andi gagnvart þessum tillöguflutningi. Þá er vert að leggja á það áherslu, að bændasamtökin, Stéttarsamband bænda, Búnaðarfélag Íslands, Framleiðsluráð landbúnaðarins og Landnám ríkisins, — þessar stofnanir hafa allar fjallað um þessa till. og hafa mælt með samþykkt hennar.
Ég tel að þetta sé ákaflega mikilvægt mál. Jafnvel þótt hæstv. landbrh. flytji síðar á Alþingi till. um stefnu í landbúnaðarmálum fæ ég ekki séð annað en þessa till. eða till. svipaðs eðlis sé unnt að afgreiða frá Alþingi. Þeir, sem hafa verulegan áhuga á því á öðrum stöðum en í þessum ræðustól á hinu háa Alþingi ættu þá að bera gæfu til að standa saman að jákvæðri afgreiðslu á þessu mikilvæga máli.
Að sjálfsögðu sleppi ég því að fara út í hin smærri atriði, sem eru raunar ekki stefnumótandi, heldur framkvæmdaratriði í vissum tilvikum, eins og hæstv. landbrh. fjallaði um, þ. e. framkvæmd kjarnfóðurgjaldsins og ráðstöfun þess. En ég undirstrika alveg sérstaklega það, sem hæstv. landbrh. sagði, og ég fagna því, sem hann sagði um þörfina á að færa til innan landbúnaðarins, miðað við hverra kjara bændurnir í þessu landi njóta í sambandi við lántökur úr Stofnlánadeild landbúnaðarins, því að eins og það mál horfir nú og hæstv. ráðh. tók alveg sérstaklega fram er trúlega einmitt þar á ferðinni mesta misvægi innan landbúnaðarins. Ég fæ ekki séð hvernig ungir menn, sem hafa reist bú á síðustu árum, ráða við fjármagnskostnað við þær aðstæður sem eru nú í þjóðfélaginu. Ég fagna þessari ábendingu hæstv. landbrh. alveg sérstaklega.
Hæstv. ráðh. minntist hér á ýmislegt fleira og m. a. að viðbótarútflutningsbótafé til landbúnaðarins hefði ekki náðst nema vinveitt ríkisstj. hefði verið við völd. Ég geri mér vel ljóst að það eru vissir erfiðleikar á að komast út úr slíku umhverfi sem þessu, og ég ætla ekki að ræða sérstaklega hversu núv. ríkisstj. er vinsamleg í garð bændanna í þessu landi. En það verður að skýrast með öðrum hætti en þeim einum að meta aukaútflutningsbótagreiðslur og þá ekki síst með því að sjá og reyna hvernig fjárveitingar kunna að falla m. a. til Búnaðarfélags Íslands og þá ekki síst í sambandi við núverandi fjárlagagerð, því að eins og við vitum stöndum við gagnvart þeirri staðreynd, að sú stofnun og þau félagasamtök, sem eru tengd þeirri starfsemi, eru mest ákvarðandi um hvernig íslenskur landbúnaður hefur þróast og hvernig hann mun þróast. Ég vildi helst geta dæmt hug ríkisstj., bæði þessarar ríkisstj. og annarra ríkisstj., út frá því, hvernig afgreidd eru þau málefni sem sérstaklega snerta þessa starfsemi í landbúnaðinum.
Herra forseti. Ég orðlengi þetta ekki frekar. Ég vona, eins og ég sagði áðan, og legg á það þunga áherslu, að það sé ekki einungis á þessum stað, í þessum ræðustól á hv. Alþingi, sem menn hafi áhuga á að móta afstöðu Alþingis til dreifbýlisins, til landbúnaðarins og til bændanna, en menn leggi í það vinnu á þessum vetri að ná samstöðu og samkomulagi. Það er alveg augljóst, með tilliti til afstöðu bændasamtakanna til þessarar till., að hún getur þar í engu orðið ásteytingarsteinn ef menn aðeins vilja í þessum efnum vera sjálfum sér samkvæmir.