08.12.1981
Sameinað þing: 32. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (1089)
40. mál, sjúkraflutningar
Flm. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Á þskj. 40 hef ég ásamt fimm öðrum þm. Framsfl. leyft mér að leggja fram till. til þál. um framkvæmd og skipulag sjúkraflutninga. Hún er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa nú þegar nefnd til að gera breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 57/1978, með því að setja í lögin skýr ákvæði um framkvæmd og skipulag sjúkraflutninga.
Enn fremur að endurskoða ákvæði almannatryggingalaga um greiðslu kostnaðar við sjúkraflutninga og ferðakostnað sjúklinga, þau verði einfölduð og gerð aðgengilegri og aðstöðumunur sjúklinga í sambandi við kostnað sjúkraflutninga verði jafnaður.“
Núgildandi lög gera engan aðila í landinu ábyrgan fyrir sjúkraflutningum eða skipulagi þeirra. Sjúkrabifreiðar eru ýmist í eigu sveitarfélaga, sýslufélaga eða félagasamtaka. Rauði krossinn á nú stóran hluta sjúkrabifreiða í landinu og hefur sýnt lofsvert framtak í þessum málum. En til eru læknishéruð sem eiga enga sjúkrabifreið. Rekstri þessara bifreiða er hagað með ýmsu móti. Jafnvel eru dæmi þess, að slíkar bifreiðar eru geymdar ónotaðar þar sem enginn ábyrgur aðill vill sjá um rekstur þeirra. Einkum eru laun ökumanna erfitt vandamál, en víða greiða sveitarfélög þessi laun.
Ég vil geta þess að víðs vegar um landið hafa heilsugæslustöðvar neyðst til að taka að sér verkefni umfram lagaskyldu með því að sjá um sjúkraflutninga og með greiðsluþátttöku í ferðakostnaði vegna vitjana lækna. Má til nefna Egilsstaðaumdæmi í þessu sambandi, en þar er innheimt sérstakt jöfnunargjald á hlutdeild sjúklinga án tillits til vegalengdar.
Það væri hægt að tala langt mál um ófremdarástand sjúkraflutninga hér á landi og öll afbrigðin sem koma fyrir í rekstri þeirra. Ég tala nú ekki um það, sem ég minntist á áðan, að víða eru tæki, sem keypt hafa verið eða gefin í þessu skyni, ónotuð. Í mörgum tilfellum hefur skipulag þessara mála byggst á fórnfúsu starfi áhugamanna, m. a. í Rauðakrossdeildum eða björgunarsveitum. Sveitarfélög hafa þó í vaxandi mæli haft afskipti af þessum málum sem og öðrum velferðarmálum í umdæmum sínum. Þetta á m. a. við um gerð sjúkraflugvalla, og eins og áður sagði hafa sveitarfélög, sem sjá um rekstur heilsugæslustöðva, reynt að framkvæma sjúkraflutninga á landi. Endurgreiðslur sjúkrasamlaga hafa hvergi nærri nægt til að greiða tap á þessari starfsemi. Meðan sveitarfélög sáu um löggæslu var lögreglan látin sjá um framkvæmd sjúkraflutninga, en eftir að lögreglan fluttist alfarið yfir á ríkisrekstur var öll þessi þjónusta afnumin.
Það er ekkert heildarskipulag til um framkvæmd sjúkraflutninga nema helst í Reykjavík, þar sem slökkviliðið sér um slíka flutninga. Á þessu þarf að verða breyting. Að mati flm. er eðlilegt að um þetta séu sett skýr ákvæði í lög um heilbrigðisþjónustu þar sem ákveðið sé hver eigi að vera ábyrgur fyrir sjúkraflutningum.
Um ferðakostnað sjúklinga tel ég rétt að kynna hér nokkrar reglur sem Tryggingastofnun ríkisins hefur gefið út. Það er ljóst að þegnar landsins búa við alvarlegt misrétti. Þeir, sem búa langt frá sjúkrahúsum, þurfa við núgildandi reglur að greiða óeðlilega háan kostnað vegna sjúkraflutninga. Þessu þarf að breyta. Ákvæði almannatrygginga eru óréttlát og flókin hvað þetta varðar og er því nauðsynlegt að þetta ákvæði laganna verði endurskoðað með jafnan kostnað í huga og reglurnar gerðar aðgengilegri. Þær reglur um ferðakostnað sjúklinga sem Tryggingastofnun ríkisins hefur gefið út hafa í mörgum greinum oftlega verið á undanförnum árum teknar til meðferðar í Tryggingastofnuninni og gefnar út að nýju endurskoðaðar. En sem sýnishorn af því, hve þessar reglur geta verið flóknar og óaðgengilegar, vil ég lesa upp úr reglugerð sem Tryggingastofnunin hefur gefið út og sent út. Þar segir í 1. gr., með leyfi hæstv. forseta:
Þegar sjúklingur þarf ítrekað að takast ferð á hendur til þess að njóta óhjákvæmilegrar sérfræðilegrar meðferðar eða eftirlits á spítala eða göngudeild spítala tekur sjúkrasamlag þátt í ferðakostnaði hans svo sem segir í næstu greinum.
2. gr.: Um endurgreiðslu ferðakostnaðar getur orðið að ræða þegar sjúklingur er talinn þurfa að koma til meðferðar eða eftirlits a. m. k. þrisvar á 12 mánaða tímabili, en tvisvar á 12 mánuðum eftir fyrsta árið, ef þá verður þörf á framhaldsmeðferð.
3. gr.: Eftir fyrstu ferðina leggur sjúklingurinn inn hjá sjúkrasamlagi sínu skýrslu frá sérfræðingi við þá stofnun sem meðferðina veitir, þar sem gerð sé grein fyrir sjúkdómnum og nauðsynlegri meðferð, hversu títt sjúklingurinn þurfi að koma og — ef unnt er — hversu oft. Skýrsluna má, ef henta þykir, senda Tryggingastofnuninni beint, en annars sendir samlagið stofnuninni skýrsluna til greiðslu og ákvörðunar.
4. gr.: Tryggingastofnunin sendir samlaginu ákvörðun um greiðsluheimild samkv. skýrslunni, en samlagið geymir hana ásamt afritum af greiðslukvittunum. Eftir að önnur ferðin er farin endurgreiðir samlagið fyrstu ferð að frádregnum 200 nýkr. frá 21. 3. 1981, en síðari ferðir að frádregnum 100 kr. í nýkr. Til endurgreiðslu reiknast aðeins fargjald með áætlunarferðum. Fargjald fylgdarmanns telst því aðeins til ferðakostnaðar að sjúklingur sé 12 ára eða yngri eða ósjálfbjarga.
5. gr.: Endurgreiðsla ferðakostnaðar kemur einkum til greina: 1) vegna geislameðferðar æxla, 2) lyfjameðferðar æxla, 3) nýrnabilunar, 4) glákuaðgerða eða jafnvel eftirlits, 5) stafs vegna blindu, 6) sjónhimnuloss af völdum sykursýki, 7) lýtalækninga í brýnum tilfellum, 8) dreyrasýki, 9) bæklunarlækninga þegar um barn er að ræða og 10) hvítblæðis og annarra sambærilegra tilfella. Læknisvottorð skal lagt fram eftir hverja slíka ferð.
Þessar reglur, sem ég hef nú verið að lesa upp úr, voru samþykktar af tryggingaráði og staðfestar af heilbrmrh. Ég ætla ekki að þreyta hv. þm. á því að lesa úr þessum margvíslegu reglum og þessum margítrekuðu og endurteknu ákvörðunum Tryggingastofnunar ríkisins og orðsendingum til sjúkrasamlaga um breytingar á reglum og allt sem því fylgir, en ljóst er af þessari upptalningu að hér er um mjög flóknar reglur að ræða og ekki á færi venjulegs fólks að átta sig í öllum tilfellum á því, hvaða rétt það hefur, né á því, hvernig það getur leitað réttar síns í sambandi við þessi mál almennt.
Í 43. gr. almannatryggingalaga eru eftirtalin atriði varðandi sjúkraflutninga:
„i. Óhjákvæmilegan flutningskostnað sjúks manns í sjúkrahús innanlands skal greiða að 3/4 hlutum, enda sé flutningsþörf svo bráð og heilsu þess sjúka svo varið, að hann verði ekki fluttur eftir venjulegum farþegaflutningsleiðum. Sjúkraflutningur innanbæjar greiðist þó ekki og frá kostnaði við sjúkrabifreið dregst kostnaður vegna fyrstu 10 km. Sé fylgd nauðsynleg greiðast 1/4 af fargjaldi fylgdarmanns, þótt um áætlunarferð sé að ræða.
Um kostnað flutnings milli sjúkrahúsa fer eftir því, sem kveðið kann að vera á um í lögum um heilbrigðisþjónustu.
j. Óhjákvæmilegan ferðakostnað með takmörkunum og eftir reglum, sem tryggingaráð setur og ráðh. staðfestir, fyrir sjúklinga, sem þarfnast ítrekaðrar meðferðar hjá lækni eða á sjúkrahúsi, með eða án innlagningar.“
Þessi ákvæði laganna eru háð þeim reglum er tryggingaráð eða Tryggingastofnun setur um framkvæmdina, sem er í mörgum tilfellum flókin og eins og ég áður sagði tekur ekki nægjanlega til aðstæðna sjúklinga. Í þessari lagagrein stendur m. a.: „Um kostnað flutnings milli sjúkrahúsa fer eftir því, sem kveðið kann að verða á um í lögum um heilbrigðisþjónustu.“ En eins og hv. alþm. sjálfsagt vita eru engin slík ákvæði til í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 57/1978 og hefur þessi grein ein sér valdið talsvert miklum ágreiningi og oftast auknum útgjöldum sjúklinga. Fram hefur komið og raunar staðfest að sjúkrahús í Reykjavík hafa jafnvel neitað að greiða þennan kostnað sem í þeim tilfellum hefur allur fallið á viðkomandi sjúkling eða sjúklinga að greiða.
Það er skoðun flutningsmanna að þennan þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar hljóti að vera hægt að hafa í einföldu og aðgengilegu formi án þess að sífellt þurfi til að koma úrskurðaratriði og reglur sem gera málið flóknara og erfiðara fyrir sjúklinga. Auðvitað hlýtur það að vera réttlætiskrafa og sjálfsagt mál, að almannatryggingakerfið greiði alla sjúkraflutninga, og fellur þá niður að mestöllu leyti eða öllu leyti allt hið mikla kerfi vottorða og skriffinnskufargan sem nú gildir í þessum málum.
Á heilbrigðisþingi 1980 urðu talsvert miklar umræður um sjúkraflutninga. Það kom fram í máli þingfulltrúa og starfshópa, sem fjölluðu um þessi mál, að skipulagsleysi í framkvæmd sjúkraflutninga er víðast stórt vandamál í læknishéruðum landsins, aðstöðumunur og kostnaður gífurlegur. Á þinginu komu fram margar athyglisverðar hugmyndir um hvernig ætti að leysa þetta mál. Aðalhugmyndin var að vísu sú, sem ég hef áður nefnt, að það hljóti að vera eðlilegt að sjúkraflutningar falli að öllu leyti undir greiðslu sjúkrasamlaga eða sjúkratrygginga almennt. Þó kom einnig fram sú hugmynd, að ef ekki næðist það stig í þessum málum væri hægt að hugsa sér að sjúklingar greiddu aldrei meira fyrir sjúkraflutninga en sem svaraði venjulegu sætafargjaldi á sömu flutningsleið með áætlunarbifreið eða flugvél.
Herra forseti. Tilgangur með þessari þáltill. er fyrst og fremst sá, að þessi mál verði tekin til meðferðar og breyting gerð á lögum eftir því sem með þarf til að koma framkvæmd og skipulagi sjúkraflutninga í landinu í viðunandi horf og jafna um leið aðstöðumun þess fólks sem þarf á sjúkraflutningum að halda. Það er skoðun mín og flutningsmanna allra, að það hafi dregist allt of lengi að koma þessum málum í viðunandi horf. Ég gæti hér rakið ótal dæmi þess, hvernig þetta mál hefur valdið bæði erfiðleikum hjá mörgum sjúklingum og mörgu fólki, sem hefur yfir sér þá ógæfu að þurfa að fara kostnaðarsamar ferðir á sjúkrahús og allt sem því fylgir, og ég veit mörg dæmi þess, hvernig úrskurðir, sem fallið hafa, bæði hjá sjúkrasamlögunum sjálfum og hjá Tryggingastofnun ríkisins, hafa verið þess eðlis að í raun og veru hefur verið um skort á mannréttindum að ræða. Ég vil þess vegna vonast til þess, að hér á Alþingi náist samstaða um að koma þessum málum, hvort sem það verður með þáltill. eða við aðrar aðgerðir eða e. t. v. þá endurskoðun sem stendur yfir í sambandi við almannatryggingakerfið, í það horf að viðunandi sé og við hættum þessu skriffinnskubákni og þessum sparðatíningi, sem viðgangist hefur allt of lengi í sambandi við að jafna aðstöðu fólks. Þess vegna vonast ég til þess, að þáltill. verði til að hreyfa eitthvað þessu máli í átt að því réttlæti sem ég hef hér talað um.
Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði þessari till. vísað til allshn.