09.12.1981
Efri deild: 19. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)

134. mál, Flutningsráð ríkisstofnana

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Á þskj. 147 hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni að flytja enn á ný frv. til l. um flutningsráð ríkisstofnana.

Í 1. gr. frv. segir: „Eftir hverjar alþingiskosningar kýs sameinað Alþingi hlutfallskosningu sjö menn í flutningsráð ríkisstofnana. Varamenn skulu kjörnir með sama hætti. Forsrh. skipar formann og varaformann flutningsráðs ríkisstofnana úr hópi ráðsmanna“

Í 2. gr. segir: „Hlutverk flutningsráðs ríkisstofnana er:

a) að vera Alþingi, ríkisstj., ráðuneytum og einstökum ríkisstofnunum til ráðuneytis um staðarval og flutning ríkisstofnana, þar með taldar deildir og útibú slíkra stofnana,

b) að gera tillögur um staðarval nýrra ríkisstofnana og breytingar á staðarvali eldri stofnana,

c) að annast a. m. k. einu sinni á áratug heildarendurskoðun á staðsetningu ríkisstofnana og gera á grundvelli þeirrar endurskoðunar tillögur um breytingar, sbr. b-lið,

d) að fylgjast með framkvæmd ákvarðana um flutning ríkisstofnana og staðsetningu nýrra stofnana og stuðla að því að auðvelda aðgerðir á þessu sviði.“

Nánari útfærsluatriði er svo að finna í 3.–7. gr. frv. Frv. hefur þrisvar áður verið flutt. Það má vera, að mönnum þyki verið að bera í bakkafullan lækinn með endurflutningi nú. Forsendurnar eru raktar í frv. Tillögur mþn. frá 1975 um þessi mál, þar sem fulltrúar allra flokka og allra landshluta lögðu mikla vinnu í tillögugerð almennt og formleg frv.-uppköst um það sem mikilvægast var, voru settar fram í nál. og í þetta frv. er beint tekið upp úr því nál. það sem er talið brýnasta upphaf allra raunhæfra aðgerða.

Ég ætla ekki hér og nú að rekja störf nefndarinnar. Ég ætla ekki heldur að fara út í að nefna það sem einkenndi nefndarstarfið mest, þ. e. tregðu stofnananna til þess að taka — að ég vil segja — nokkrum sönsum í þessum efnum, að vilja í raun og veru nokkru hnika til. Það var þá helst að menn tækju í mál einhverjar valdlausar deildir frá stofnunum eða valdlítil útibú. Þannig hefur það líka verið frá þeim tíma sem þetta nál. kom fram, að fáar stofnanir hafa í alvöru reynt að dreifa valdinu út í héruðin. Vegagerð ríkisins hefur verið hér nokkuð á undan öðrum stofnunum, en engu að síður eru mörg þau útibú eða deildir, sem Vegagerðin rekur úti á landi, vægast sagt valdaminni en þær ættu að vera.

Ég tek rétt sem dæmi að þær stofnanir, sem hafa verið úti á landi, hafa margar hverjar viljað komast með sína starfsemi annað. Allir þekkja dæmið um Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði og vita hvernig þar var að staðið, þar sem sú starfsemi hefur smám saman flust öll hingað til Reykjavíkur. Og ég get nefnt sem sérstakt dæmi varðandi það, að mér er kunnugt um að nú stendur einmitt til að flytja þýðingarmikinn hluta af starfseminni, sem enn þá hefur þó verið á Siglufirði, hingað til Reykjavíkur — eða það eru a. m. k. áform uppi um það enn frekar en verið hefur. Sýnir það best að hér er ekki auðsóttur róðurinn varðandi meira að segja þær stofnanir sem þegar eru úti á landsbyggðinni með sínar miðstöðvar að nokkru leyti.

Það dylst engum nauðsyn valddreifingar á vegum hins opinbera sem víðast úti á meðal fólksins til þjónustudreifingar og samhliða og engu síður til þjónustusköpunar. Stofnanir ríkisins hljóta að vera bundnar ákveðinni lágmarksskyldu um þjónustu við landsbyggðina, sem ekki er rækt sem skyldi í dag. Heilbrigð dreifing þessa valds og stóraukin almenn þjónusta eru einhver drýgsti þáttur eðlilegrar byggðaþróunar. Því hafa aðrar þjóðir sannarlega komist að. Hið opinbera þarf á æ fleiri sviðum að færa sig til fólksins. Fólkið á ekki endilega að ganga erfiða braut og illkleifa hingað suður í þéttbýlið til að ná fram málum sínum og rétti hvers konar. Það þarf að færa þjónustuna út á land, út til fólksins. Viðleitni í þá átt hefur hvarvetna gefið góða raun og skilað jákvæðum árangri, ekki aðeins fyrir fólkið eða viðkomandi grein á svæðinu sem þjónustan hefur snert, heldur ekki síður fyrir hið opinbera og stofnanir þess. Reynsla annarra þjóða bendir mjög eindregið í þá átt.

En stofnana- og þjónustudreifing á ekki að vera skipulagslaus og af handahófi einu. Þar þarf áætlunargerð og skipulega yfirstjórn. Flutningsráð ríkisstofnana er ein leiðin — og ég tek skýrt fram: ekki endilega sú eina. Það er langt frá að sú leið, sem þarna er bent á, sé einhver heilög kýr í augum okkar flm. En ef sú leið er ekki farin, þá þarf að finna aðra leið og fara hana. Það hefur stundum verið talað um að þetta mætti skipuleggja hjá byggðadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins. Ég vil athuga það má svo sannarlega, ef mönnum þykir það skynsamlegra, í tengslum þá við heildarathugun á þeirri stofnun allri.

Fólk spyr eðlilega úti á landsbyggðinni hvort ekki sé fram undan eitthvert skipulegt átak í þessu efni, og um þetta liggja fyrir fjölmargar ályktanir einstakra samtaka. Ber þar hæst mjög eindregnar stuðningsyfirlýsingar samtaka sveitarfélaganna bæði á Norður- og Austurlandi. Ég tel því enn skylt og rétt að hreyfa þessu máli. Ég tel líka að ef menn geta bent á aðra betri, auðveldari og skjótvirkari leið til skipulegs átaks, þá sé það vel. Ég skal verða fyrsti maður til að styðja aðra leið í þessum efnum ef hún sýnist færari og betri, aðeins að fá þessi mál á hreyfingu, það er ætlunin með þessum tillöguflutningi.

En dæmið frá Siglufirði, sem ég benti á áðan og hef um nokkrar heimildir, er einmitt dæmi um það, að meira að segja þar sem stofnanir hafa haft vissar rætur, þar er sótt á um að flytja vald og áhrif frá þeim hingað á höfuðborgarsvæðið í stað hins gagnstæða sem ætti að vera.

Ég ætla ekki að hafa ítarlega framsögu um þetta mál hér. Ég hef áður flutt um málið ítarlega framsögu og óþarft að kynna það hér frekar. Menn vita um hvað það snýst í raun og veru. Ég bið menn um að benda á nýjar leiðir eða aðrar leiðir í þessu efni, sem þeim þykja heppilegri, og bið svo hv. allshn. að kanna allar leiðir í þessu efni sem gætu leitt til niðurstöðu Alþingis í þessu að ég tel brýna máli. Ég vil svo leggja til að málinu verið að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.