09.12.1981
Efri deild: 19. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)
134. mál, Flutningsráð ríkisstofnana
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Mér líst nú heldur illa á þetta frv. þó að kannske megi segja, að „meningen sé god nok“. Ég hugsa að flestir hv. þdm. séu sammála því, að það þurfi að dreifa meira völdum ríkisins og áhrifum ríkisstofnana einmitt með því að þær séu styrktar í hinum ýmsu landshlutum og því komið til vegar að þær séu þar í ríkari mæli fremur en hér í Reykjavík. Ég held að það væri ekki til neinna bóta að setja á fót sérstakt flutningsráð ríkisstofnana. Enn þá síður held ég að væri til bóta að fela Framkvæmdastofnun ríkisins þetta hlutverk, því að það er stofnun sem er brýn þörf á að leggja niður. Það er ein mesta óþurftarstofnun þessa þjóðfélags og það þarf að koma að því fyrr en síðar að hún verði niður lögð og Byggðasjóður starfi sjálfstætt, starfi með örfáum mönnum og starfi þannig að unnt sé að hafa viðskipti við hann, t. d. álíka og var hér þegar atvinnumálanefndarfé var úthlutað á árunum 1968–1969, sem var þá, hygg ég, meira en árlegt ráðstofnunarfé Byggðasjóðs og Framkvæmdastofnunar nú er — eða Byggðasjóðs alla vega. Þá sáu um það tveir menn og ein stúlka. Það má víst ekki lengur greina frá því, hvors kyns starfsmenn eru, en svona var þetta nú samt, tveir karlar og einn kvenmaður. Ég man ekki nafn konunnar, kynntist henni raunar ekki, en ég man nöfn karlanna. Það voru Jónas Haralz og Kristinn Zimsen. Þeir sáu um að greiða fyrir þeim sem voru að opna ný atvinnufyrirtæki sem höfðu verið lokuð svo og svo lengi, og það var gífurlega mikið fé, sem varið var í þessu skyni, ekki síst til Norðurlands þar sem atvinnuleysi hafði verið mikið.
Ég kynntist þessu þegar ég var að byrja að starfa á Norðurlandi að stjórnmálum og atvinnumálum. Menn fengu yfirleitt svar innan viku eða svo, já eða nei um það, hvort ætti að byggja upp þetta fyrirtækið eða hitt. Venjulega var þessu hagað þannig, að fjármagnið nægði til þess, að fyrirtækin fóru í gang og þau gátu verið rekin af einhverju viti. Þetta hefur allt saman horfið nú með ofstjórnarbrjálseminni á síðustu árum. Nú er það helst leiðin að úthluta einhverjum bjargráðapeningum frá viku til viku og mánuði til mánaðar og sérstaklega ef fyrirtækin eru svo illa rekin að engin von sé til þess, að þau verði nokkurn tíma arðbær, þá eru peningar á lausu. En ef arðbæra hluti á að gera, þá er skipulagið þannig að þar er ekki hægt að hjálpa. Og alltaf er séð um að nægilega lítið sé af fjármununum til þess að öruggt sé að fyrirtækin komist ekki á almennilegan rekspöl. Sérstaklega hefur það lýst sér núna síðustu mánuðina, það þekkja allir sem við þetta bákn hafa þurft að glíma.
Ég held að það sé ekki til bóta að bæta á einu ofstjórnarbákninu hér þó að það heiti þessu góða nafni og eigi að sinna þessu góða hlutverki. Það er einu sinni hlutverk Alþingis að ákveða hvar ríkisstofnanirnar eiga að vera. En það er nú komið svo að alþm. hafa minni og minni áhrif þó að þingtíminn sé lengdur, þó að fundir séu lengdir, vegna þess að embættismennirnir eru með allar skýrslurnar sem þeir dengja yfir okkur. Jafnvel þó að við viljum einhverju ráða er ekkert mark tekið á því. Svona er þróunin í þeim efnum.
Gleggsta dæmið er einmitt það sem hæstv. forseti nefndi hér áðan, Siglufjarðarmálið. Það er í landsins lögum að aðalskrifstofa Síldarverksmiðja ríkisins skuli vera á Siglufirði. Það er líka í landsins lögum að skrifstofa síldarútvegsnefndar skuli vera á Siglufirði. Embættismennirnir gerðu sér lítið fyrir á sínum tíma og fluttu alla starfsemi síldarútvegsnefndar suður. Það kann að hafa verið hyggileg ráðstöfun. En þá átti Alþingi að taka um það ákvörðun og breyta lögunum. Nei, nei, nei. Engum datt í hug að það þyrfti að breyta lögum, bara brjóta þau eins og þurfa þykir.
Í lögum nr. 1/1938 segir í 4. gr.: „Yfirstjórn verksmiðjanna“ — og er þar átt við Síldarverksmiðjur ríkisins — „er í höndum verksmiðjustjórnar. Hefur hún aðsetur og varnarþing á Siglufirði.“ Það varðar engan um þetta, hvað Alþingi er að dútla við að samþykkja. Við bara flytjum þarna suður, stjórnarmennirnir sjálfir ákveða það, og ráðh. gerir ekkert í því — ekki enn þá. Ég vona að ráðh. sjávarútvegsmála hindri þetta lögbrot.
Ég held að við hér á Alþingi eigum ekki alltaf að vera að afsala okkur valdi, ekki til einhverrar flutningsstofnunar ríkisins. Hvernig haldið þið að hún verði? Hún verður lítið betri en Framkvæmdastofnunin. Við eigum sjálfir að hafa þessi völd. Við getum á kannske klukkutíma komið okkur saman um það, hvar eigi að hafa einhverja ákveðna ríkisstofnun. Við eigum ekki að láta taka þetta vald af Alþingi eða hlífast við að taka ákvarðanir. Til þess eru menn kosnir á Alþingi að þeir eiga að vera æðsta vald í löggjafarmálum þjóðarinnar. Þeir eiga að ráða þessu, en ekki einhverjar stofnanir sem er hrúgað upp úti um allan bæ. Það eru ábyggilega hundruð manna sem gætu farið til annarra starfa ef allri þessari ráðstjórn linnti. Flutningsráð heitir það, það er ekki óeðlilegt, miðað við hverjir eru flm., að þeir kalli þetta ráð, og náttúrlega ætti þessi Framkvæmdastofnun að heita framkvæmdaráð, sovét. En að öllu gamni slepptu greiði ég að sjálfsögðu atkv. gegn þessu frv.
Ég held að við ættum nú að nota þetta tilefni, og af því að hér er nú einn hæstv. ráðh. staddur, þá efast ég ekki um að hann muni beita sér fyrir því, að hindrað verði síðasta ofbeldið: að flytja skrifstofur Síldarverksmiðja ríkisins frá Siglufirði til Reykjavíkur og þverbrjóta með því landsins lög. Ég efast ekkert um að hæstv. utanrrh. muni í ríkisstj. beita sé gegn því, að slíkt gerræði endurtaki sig eins og gerðist við flutning síldarútvegsnefndar á sínum tíma. Ef flutningur þessa máls verður til þess, að þetta gerræði verði stöðvað, þá er vel farið. Þá er vissulega ómaksins vert að sýna þetta mál. Og ég veit það, að eins og kom fram hjá hv. 1. flm. í ræðu hans áðan, þá mun hann beita sé gegn því að þetta síðasta gerræði nái fram að ganga. Það, sem á að gera, er þá að styrkja skrifstofu verksmiðjanna á Siglufirði. Það er búið að flytja hana að miklu leyti hingað suður. Það á að flytja hana aftur norður. Það segja landsins lög. Ef menn sameinast nú um það, að Alþingi krefjist þess af framkvæmdavaldinu að það standi við landsins lög, og það er gert af tilefni flutnings þessa frv., þá er það, eins og ég sagði áðan, þess virði að hafa verið flutt. En við skulum sjá hvað gerist í því máli þangað til þetta mál væntanlega kemur aftur til umr. A. m. k. ætla ég að bíða með frekari aths. þangað til ég sé hvað verður um mál Síldarverksmiðja ríkisins.
Ég vona að menn fari að gera sér grein fyrir því, að stanslaus flutningur á þeim völdum, sem eiga að vera hjá Alþingi, sem Alþingi á ekki að skjóta sé undan að hafa, ákvörðunum sem Alþingi á ekki að skjóta sér undan að taka, ákvörðunum sem Alþingi á að taka, — það sé ekki stanslaust verið að flytja það til einhverra og einhverra úti um allan bæ. Ég væri alveg til í að borga þessum hundruðum manna laun ef þeir lofuðu að gera ekki neitt.