09.12.1981
Neðri deild: 19. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1369 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)
Umræður utan dagskrár
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Þegar ég kvaddi mér hljóðs var hæstv. iðnrh. hér í salnum. Hann hefur kannske skroppið út fyrir landsteinana svo ekki er von að hann sé hér inni enn þá. En ég vil aðeins í þessu samhengi gagnrýna þau almennu vinnubrögð þessarar ríkisstj. að taka frekar á sig ómak heldur en ekki til þess að koma í veg fyrir að þm. gefist kostur á að fylgjast með málum eins og eðlilegt er.
Það, sem ég hef hér sérstaklega í huga, er málefni sem bæði Fjórðungssamband Norðlendinga og bæjarstjórnin á Húsavík hafa óskað eftir við þm. Norðurl. e. að þeir fylgdust með, þ. e. hversu athugunum á pappírsverksmiðju miðaði áfram. Á fundi, sem hæstv. iðnrh., sem nú er fjarstaddur og kannske ekki von á honum, boðaði til með þm. að eigin frumkvæði uppi í ráðuneyti, lýsti hann áhuga sínum á þessu máli. Þá spurði ég hann hvort ekki mætti treysta því, að þm. fengju að fylgjast með málinu. Því var að sjálfsögðu lofað. En lítið hefur orðið úr efndum. Hins vegar hefur það oftar en einu sinni borið við, að ég hef lesið í blöðum sitthvað um hugsanlega pappírsverksmiðju við Húsavík. Það hafa einnig verið skrifaðar skýrslur um það mál sem dreift hefur verið. En þrátt fyrir það að ég hafi óskað eftir að þm. stjórnarandstöðunnar í Norðurlandskjördæmi eystra yrðu afhent þessi plögg eins og öðrum, — plögg sem hafa verið gerð opinber með einum eða öðrum hætti, — hefur ekki einu sinni fengist svar um það frá iðnrn., hvort mér væri heimilt að fá þessa skýrslu í hendur eða ekki.
Það er náttúrlega, eins og ég sagði við sveitarstjórnarmann á Norðurlandi, algjörlega út í bláinn að vera að óska eftir fundi með þingmönnum ef svo er haldið á framfaramálum byggðarlaganna af ríkisstj. eða trúnaðarmönnum hennar, að þm. séu þeir menn sem allra seinast frétta af því, hvernig málum vindur fram. Vinnubrögð af þessu tagi kunna ekki góðri lukku að stýra.
Þar sem hæstv. iðnrh. er nú kominn í salinn vil ég ítreka fsp. mína, hvort breyting verði þar á, hvort við þm. Norðurl. e. megum vænta þess að fá að fylgjast með þróun rannsókna á hugsanlegri pappírsverksmiðju við Húsavík, eins og lofað var af hæstv. iðnrh. á fundi með þm. og sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi, eða á áfram að halda þannig á málinu að okkur sé algjörlega hulið hversu málum vindur fram? Ég þarf ekki að taka það fram, að afgreiðsla fjárlaga er á næstu grösum og mjög þýðingarmikið áður en kemur til 2. umr., ég tala ekki um lokaafgreiðslu fjárlaga, að fyrir liggi skýrt og skilmerkilega, hvernig þau mál standa, vegna erinda sem komið hafa fram um þessi mál.
Ég get nefnt fleiri dæmi um slíka erfiðleika. Það er að verða eitthvert mesta umhverfisvandamál þessa lands hvernig á að haga viðskiptum sínum við ríkisstj. Yfirvofandi Blönduvirkjun í Húnavatnssýslum er smámunir hjá því, jafnvel í augum formanns þingflokks Framsfl., svo ekki sé lengra vitnað. Væri óskandi að einhver lausn fyndist á þessu máli og svo kynni að fara í bráð að menn gætu a. m. k. ímyndað sér að það kæmi að einhverju gagni að tala við þingmann sinn.