09.12.1981
Neðri deild: 19. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1383 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)

96. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. meiri hl. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. um breyt. á lögum um sérstakt tímabundið vörugjald með áorðnum breytingum hefur verið tekið fyrir og rætt í fjh.- og viðskn. á undanförnum fundum nefndarinnar. Við undirritaðir nefndarmenn, meiri hl. fjh.- og viðskn. alveg óvefengjanlegur, en auk mín eru það Sighvatur Björgvinsson, Matthías Á. Mathiesen og Albert Guðmundsson, teljum að þetta tímabundna vörugjald hafi aðeins átt að standa mjög takmarkaðan tíma eins og heiti laganna ber vott um. Fyrirheit voru gefin um að afnema þetta gjald í áföngum. Á s. l. ári var það aftur hækkað verulega og þar með var gengið þvert á yfirlýsta stefnu um að draga úr þessu. Nú er lagt til af minni hl. eða stjórnarliðinu að þetta gjald verði framlengt allt árið 1982. Þessu erum við mótfallnir sem stöndum að áliti meiri hl. nefndarinnar. Við leggjum því til að frv. verði fellt. Við höfum áður lýst því yfir að við höfum talið að þetta hefði átt að fella niður í áföngum. En ekkert hefur orðið úr því.

Í athugasemdum með fjárlagafrv., sem bráðum kemur til afgreiðslu, gerir stjórnarliðið ráð fyrir að sérstakt vörugjald skili ríkissjóði tekjum er nemi 519 millj. kr. Til samanburðar má geta þess, að í fjárlögum yfirstandandi árs er gert ráð fyrir að tekjur af þessu sérstaka vörugjaldi muni nema 368 millj. kr., og í endurskoðaðri tekjuáætlun er gert ráð fyrir að þær verði tæplega 383 millj. kr. Öll slík gjöld eru verðbólguhvetjandi, og til þess að standa nú með ríkisstj. í baráttunni við verðbólguna leggjum við til að allar slíkar verðbólguhvetjandi ráðstafanir verði niður felldar. Því leggjum við eindregið til að frv. verði fellt. Ég veit að undir þetta taka margir stjórnarliðar sem frá morgni til kvölds og jafnvel næturnar líka eru að berjast við verðbólguna.