20.10.1981
Sameinað þing: 7. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (116)
20. mál, ár aldraðra
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil lýsa yfir fullum stuðningi við þáltill. á þskj. 20, um ár aldraðra. Þingflokkur Framsfl. mun styðja þessa till., enda er hér um mál að ræða sem er í fullu samræmi við stefnu og starf flokksins í þessum málum. Flokkurinn hefur tilnefnt starfshóp til að fjalla sérstaklega um málefni aldraðra, safna upplýsingum og gera tillögur um úrbætur. Því viljum við þm. flokksins flytja, styðja og fylgja fram umbótum sem til framfara geta orðið í málefnum aldraðra.
Þegar frv. um heilbrigðis- og vistunarþjónustu fyrir aldraða var til umr. hér á hv. Alþingi á síðasta þingi gerði ég grein fyrir afstöðu þingflokksins til þess frv. Þingflokkurinn lagðist gegn samþykkt frv. eins og það var lagt fram af ríkisstj., en lagði til að það yrði umsamið og endurbætt, ekki síst með tilliti til félagslega þáttarins sem er mikilvægur í þessu máli sem og vistunar- og hjúkrunaraðstaða fyrir aldraða. Það var í fullu samræmi við þessa afstöðu sem ríkisstj. tók málið upp að nýju. Eins og fram kom hjá hv. frsm. þessarar þáltill. er nú fullskipuð nefnd sem vinnur að samningu frv. til l. um þessi mál á breiðari grundvelli en áður var.
Þörfin fyrir að taka þessi mál föstum tökum er vonandi flestum ráðandi öflum hér á landi ljós orðin, eins og raunar hefur þegar komið fram. Hér á landi eru afskipti af þessum málum tiltölulega nýtilkomin, eins og hv. frsm. tók réttilega fram. Framtak eigenda Elliheimilisins Grundar, DAS og fleiri félagasamtaka er lofsvert og ég held að allir hljóti að vera sammála um að þar er um frumkvæði að ræða sem þjóðinni ber að þakka og efla á í framtíðinni. En það er mín skoðun, að samstillt átak þjóðarinnar þurfi til að koma. Það þarf að gera ýmsar úrbætur í málefnum aldraðra fljótt, en aðrar aðgerðir þurfa vandaðan undirbúning, eins og raunar hefur komið fram í sölum þingsins fyrr.
Mér finnst ástæða til að minna á það hér, að mörg sveitarfélög í landinu hafa farið myndarlega af stað í sambandi við undirbúning þessara mála, þ. e. með byggingu íbúða fyrir aldraða, sem eru mjög vaxandi þáttur í starfsemi margra sveitarfélaga, en einnig með því að undirbúa byggingu vistheimila. Þetta er m. a. gert með tilliti til þess, að menn eru smátt og smátt að átta sig á þeirri staðreynd, að það er miklu gæfulegra að stuðla að því að aldrað fólk fái möguleika til að dvelja í heimabyggð meðan kraftar leyfa. Ég tel að það sé mjög mikilvægt atriði í heilbrigðislöggjöf okkar ef hægt er að stuðla að því á skynsamlegan hátt, að hjúkrunarheimili verði sem víðast byggð í tengslum við heilsugæslustöðvar og sjúkrahús. Sem betur fer er nokkuð unnið að þessum málum núna og á næstu árum, ef rétt er á haldið, er útlit fyrir nokkurn árangur á þessu sviði.
Ég tel ástæðu til að geta þess einnig hér, að Samband ísl. sveitarfélaga hefur tekið virkan þátt í undirbúningi að stofnun Öldrunarráðs Íslands sem hv. flm. sagði frá áðan. Stofnun þessa öldrunarráðs mun fara fram á morgun, að því er ég tók rétt eftir. Vissulega er eftirtektarverð sú stefna sem þeir aðilar, sem að því hafa unnið, setja fram. Markmiðið er að bæta lífsaðstöðu aldraðra. Ég tel að hér sé um mjög mikilvæga aðgerð að ræða til að sameina til átaka í landinu fjölmarga aðila sem vilja vinna að úrlausn öldrunarmála, ekki aðeins með aðgerðum ríkisstjórnar eða Alþingis, heldur á vegum frjálsra félagasamtaka og ýmissa áhugahópa um velferð aldraðra. Þetta er mjög mikilvægt og ég fagna því mjög að þetta skuli vera komið á það stig að Öldrunarráð Íslands verður vonandi að veruleika á næstu dögum.
Það er enginn vafi á að samþykkt Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um að undirbúa heimsráðstefnu um ellimál á árinu 1982 og gera alþjóðlega áætlun, sem miðist við að tryggja efnahagslegt og félagslegt öryggi aldraðs fólks, mun hafa mikilvæg áhrif til framfara í þessum málum. Það er því sjálfsagt að við á Íslandi gerum árið 1982 að sérstöku framkvæmdaári í málefnum aldraðra.
Á þessu ári, 1981, hafa málefni fatlaðra verið í brennidepli. Það er vissulega ástæða til að fullyrða að árangur verður verulegur af samstilltu átaki á þessu ári í málefnum fatlaðra hér á landi, þ. e. ný löggjöf. Ekki síst hefur sú umræða og kynning, sem fram hefur farið, opnað augu stjórnvalda og raunar alts almennings í landi okkar fyrir málefnum fatlaðs fólks og þörfinni til úrbóta, og vonandi verður því haldið áfram.
Það væri hægt að tala hér lengi um þennan þátt í umræðum um svona málefni, en ég mun ekki gera það hér. Ég vil aðeins endurtaka það, að ég tel að þessi till. sé lofsverð og tímabær, og lýsi yfir fullum stuðningi við hana. Ég vænti þess, að við verðum svo gæfusöm að þjóðarsamstaða takist um stefnumótun og framkvæmdir í málefnum aldraðra. Er samþykkt þessarar tillögu að mínu mati gott framlag til þess að svo geti orðið.